Pressan - 06.05.1993, Side 20
20 PPESSAN
Fimmtudagurinn 6. maí 1993
Maður vikunnar
Pierre Bérégovoy
Heiðarlegur,
en dauður
Það átti enginn von á miklu
þegar Pierre Bérégovoy tók við
af Edith Cresson sem forsætis-
ráðherra Frakklands í apríl í
fyrra. Og þess vegna varð eng-
inn hissa þegar ekkert breytt-
ist við valdatöku hans. Og þess
vegna varð enginn hissa þegar
sósíalistar stórtöpuðu í þing-
kosningunum fyrir fáeinum
•vikum. En það átti enginn von
á að maðurinn færi að skjóta
sig út af því.
Það kom reyndar fleira til.
Bérégovoy var heiðarlegur
maður og vildi halda þeirri
ímynd út á við. Eitthvert dóm-
greindarleysi fékk hann hins
vegar til þess árið 1986 að taka
við vaxtalausu láni upp á eina
milljón franka frá Roger-Patr-
ice Pelat, einkavini Mitterr-
ands, sem seinna var kærður
fyrir innherjaviðskipti.
Bérégovoy ætlaði að kaupa sér
litla íbúð í París, þá sextugur,
en eignaleysið var kannsld til
marks um hversu lítið spilltur
hann var. Þeir Bérégovoy og
Pelat geta nú rætt um þessi
meintu mistök við rólegri að-
stæður, því Pelat dó fyrir
nokkrum árum.
Það var sem sagt ekki bara
ósigur sósíalista sem knúði
Bérégovoy til sjálfsmorðs,
heldur hnekkirinn sem mann-
orð hans beið vegna lánsins.
Sjálfur hélt hann því alltaf
fram að ekkert óhreint hefði
verið í pokahorninu og virðist
því ekki hafa skynjað að vaxta-
laust lán til stjómmálamanns
ffá einkaaðila gæti grafíð und-
an trausti almennings á störf-
um hans. Fjölmiðlar þreyttust
hins vegar ekki á því að benda
á þessa staðreynd og það tók
grandvar stjómmálamaðurinn
nærri sér.
Og vitanlega hefur fjölmiðl-
um verið kennt um dauða
hans. Ef þeir hefðu ekki staðið
í þessum pólitísku ofsóknum,
er sagt, þá hefði andlegu jafh-
vægi Bérégovoys ekki verið
raskað svona mikið. Bérégo-
voy var fórnarlamb skipu-
lagðrar ófrægingarherferðar,
sagði Paul Quilés, fyrrum inn-
anrfkisráðherra. Ergo: hann
væri enn á lífí ef ekki væri fyrir
fjölmiðla. Blaðamenn hafa
náttúrlega lítið sér til varnar
annað en að benda á að þeir
skrifi fréttir um stjórnmála-
menn og fleiri án þess að fá
fyrst geðheilbrigðisvottorð til
að tryggja að viðkomandi fari
sér ekki að voða. Og auk þess
megi búast við að maður sem
orðinn er forsætisráðherra eigi
að þola og megi búast við að
hann sé gagnrýndur þegar til-
efni gefast.
En Frakkland syrgir sjálf-
menntaðan járnbrautarstarfs-
mann sem brauzt til æðstu
metorða á greind sinni, heil-
indum og heiðarleika. Það
bendir ekkert til þess að
Bérégovoy hafi sótzt sérstak-
lega eftir embætti forsætisráð-
herra. Það út af fyrir sig eru
meðmæli og ekki svo oft sem
Frakkar hafa tækifæri til að
syrgja saman heiðarlega pólit-
íkusa.
£f)c fWctt 3)oflt íimcé
Hreinsiðþið nú til á Ítalíu
ítalir hafa fengið nýja ríkisstjórn með umboð ffá almenningi til
að hreinsa til í ítölskum stjórnmálum. En trausti rúnir stjórnmála-
menn og iðnjöffar eru enn að reyna hvað þeir geta til að bjarga kerf-
inu sem gerði þá ríka. Italska stjórnkerfið er fjarri því að vera laust
úr krumlum spillingarinnar.
Bezta leiðin til að hreinsa til í ítölskum stjórnmálum og leysa
efnahag landsins úr höftum er að draga mútuþega og mútugjafa
hvern og einn fyrir dómstóla. ítalir geta hvorugt ef þeir eru ekki
reiðubúnir að horfast í augu við fortíðina. Spillingin á rætur í kalda
stríðinu, þegar það þurfti að kaupa atkvæði handa kristilegum
demókrötum og sósíalistum til að halda kommúnistum ffá völdum.
Bandarísk stjómvöld tóku þátt í þessum subbuskap og sannarlega
er ástæða til að vekja athygli á því. En það getur enginn hreinsað til
á Italíu nema ítalir sjálfir.
Mannréttindabarátta íBandaríkjunum
Hommar og
lesbíur taka
flugiðfc - f!i
Hommar og lesbíur
hafa verið að öðlast
áðuróþekktáhrifí
bandarísku þjóðlífi.
Þó benda kannanir til
aðþauséufærrien
áðurvartaliðog
meira að segja vinir
þeirrahopaþegará
hólminn kemur.
Það liggur við að það sé í
tízku að vera hommi og lesbía í
Bandaríkjunum þessa mánuð-
ina. Mannréttindabarátta sam-
kynhneigðra hefur aldrei verið
jafnmikið í sviðsljósinu og
aldrei hlotið jafngóðan hljóm-
grunn meðal valdhafa. Nýjar
kannanir um fjölda þeirra, svo
og hvort líffræðilegar ástæður
liggi til samkynhneigðar, hafa
hleypt enn meira lífi í umræð-
una, sem þurffi þó varla til, þar
sem öðrum megin víglínunnar
stendur umdeildasti minni-
hlutahópur landsins og hinum
megin heittrúarmenn sem veifa
Biblíunni með bölbænir á vör.
Barátta samkynhneigðra í
Bandaríkjunum er af tvennum
toga. Annars vegar barátta fyrir
sjálfsögðum mannréttindum,
sem fær helzt birtingarform
þessar vikurnar í deilunni um
homma og lesbíur í hernum.
Hins vegar er barist fyrir auknu
fé í rannsóknir á alnæmi og
stuðning við þá sem smitast af
HIV- veirunni. Til að ná árangri
í hvoru tveggja þurfa þau hins
vegar meiri pólitísk áhrif og við-
urkenningu en þau hefur
dreymt um í áraraðir. Þetta hafa
samkynhneigðir verið að öðlast
smám saman, en nýjar kannan-
ir um fjölda þeirra og undan-
sláttur vina þeirra hefur sett
óvænt strik í reikninginn.
Eitt prósent á móti
tíu
Hingað til hefur því verið
haldið fram að um tíu prósent
karla að jafnaði séu samkyn-
hneigðir. Þessi tala er 45 ára
gömul, hefur alltaf verið um-
deild og hafa bæði hærri og
lægri tölur verið nefhdar henni-
til höfúðs. Fyrir nokkru kom út
í Bandaríkjunum könnum sem
gaf til kynna að einungis eitt
prósent karlmanna væru
hommar og rímar sú tala við
svipaðar nýlegar kannanir í
Bretlandi og Frakklandi.
Sumir talsmenn samkyn-
hneigðra benda á að í þjóðfélagi
sterlö-a fordóma sé ekki líklegt
að fólk svari rétt spurningum
ókunnugra um samkynhneigð
sína. Aðrir benda á að það
skipti engu máli, hversu mörg
hommar og lesbíur séu; þau
hljóti að eiga að njóta sömu
mannréttinda og aðrir burtséð
ffá höfðatölu.
Hins vegar gera allir sér grein
fyrir að í pólitík skiptir at-
kvæðafjöldi máli og það kann
að draga úr þeirri pólitísku upp-
sveiflu sem samkynhneigðir
hafa notið. í síðustu kosninga-
baráttu voru hommar og lesbí-
ur meira áberandi en nokkru
sinni fyrr og það sem ekki skipti
síður máli: létu meira fé af
hendi rakna og skipulegar en
nokkru sinni fyrr. í lykilfylkjum
á borð við Kaliforníu og New
York gat stuðningur samkyn-
hneigðra því skipt sköpum og
það nýttu þau sér. Það er hins
vegar óvíst hvaða ffambjóðend-
ur hefðu Iagt sig eftir stuðningi
svo umdeilds hóps, ef hann var
aðeins eitt prósent af þjóðinni.
Vinur samkyn-
hneigðra — en ófor-
betranlegur pólitík-
us
Það sem opnar samkyn-
hneigðum ekki sízt leið að
valdastofnunum nú eru kyn-
slóðaskipti í stjórnkerfinu. Fólk
á borð við Bill og Hillary Clin-
ton er af fyrstu kynslóðinni sem
hefur leyft sér að umgangast og
eiga vingott við samkynhneigða
opinberlega. Sem forseti á Clin-
ton sér meira að segja opinber-
an ráðgjafa í málefnum sam-
kynhneigðra, gamlan vin sinn
David Mixner. Það eru þrír
„opinberir" hommar í starfsliði
Hvíta hússins og þar af einn
eyðnismitaður. Einn maður,
Bob Hattoy, hefur á sinni
könnu tengsl við samtök
smkynhneigðra.
En í stuðningi við samkyn-
hneigða eins og svo mörgum
öðrum málum er Bill Clinton
hentistefnumaður par excel-
lence. Enginn forseti hefúr sýnt
réttindamálum homma og
lesbía eins mikinn stuðning og
meint það eins einlæglega. Pól-
itíkusinn í honum bauð honum
hins vegar að láta sig hverfa úr
bænum þegar samkynhneigðir
fóru mikla kröfúgöngu í Wash-
ington fyrir skömmu; hann lét
sér nægja fund í Hvíta húsinu
með forystumönnum þeirra
nokkrum dögum áður. Það var
náttúrlega heigulsháttur, en
pólitískt klók ákvörðun, þar
sem meirihluti þjóðarinnar er
andvígur veru samkynhneigðra
í hernum og stór minnihluti lít-
ur á samkynhneigð sem óásætt-
anlegan „lífsstíl“. Andstæðingar
samkynhneigðra eru auk þess
vel skipulagðir og háværir.
Það kom í ljós þegar umræð-
an hófst um samkynhneigða í
hernum. Clinton ætiaði (og seg-
ist enn ætla) að aflétta því
banni, en lét undan vel skipu-
lögðum mótmælum heittrúar-
manna, íhaldsmanna og for-
ystusveitar hersins. Hann segist
ætla að aflétta banninu upp úr
miðju ári, en fátt bendir til að
andstaðan verði minni eða pól-
itískt kapítal forsetans meira þá.
Mannréttindabar-
átta tiunda áratug-
arins
Clinton hefur sýnt alvörutil-
burði til að auka fé til eyðnimál-
efna, sem var áberandi um-
ræðuefni í kosningabaráttunni.
Hann hefúr eyrnamerkt hluta af
AndrewSullivan
Breti, íhaldsmaður, hommi
og ritstjóri áhrifamesta pól-
itíska tímarits Bandaríkj-
anna.
styrkjum ríkisins til borga til
notkunar í þessum tilgangi og
ætlar að stofnsetja nýtt embætti,
„AIDS-czar“, í stíl við það sem
George Bush gerði í upphafi
baráttunnar gegn eiturlyijum.
Það er hins vegar einföld
mannréttindabarátta sem mun
setja svip sinn á málflutning
samkynhneigðra. Þeim hefur
ekki nýtzt sá árangur, sem náð-
ist í mannréttindabaráttu á sjö-
unda áratugnum, en reka nú
málflutning sinn á mjög svipuð-
um nótum. í mörgum fyikjum
eru mök milli fólks af sama kyni
enn lögbrot. Fyrir tilverknað
Hæstaréttar hefur þeim tilvik-
um farið fækkandi þar sem
hægt er að neita fólki um þjón-
ustu eða réttindi — húsnæði,
vinnu, opinbera aðstoð, aðgang
að veitingastöðum — á grund-
velli kynhneigðar, en bæði er
ÚTÚRSKÁPNUM
Það er enn bannað að vera hommi i hernum.