Pressan - 06.05.1993, Síða 29
Fimmtudagurinn 6. mai 1993
HVERJIR ERU BESTIR
PRESSAN 29
Þjálfarar fyrstudeildarliðanna velja
PRESSULIÐIÐ
Dagur
p. SlGURÐARSON
&ifgfá, w irí^
Nú er Ijóst aðþað
verður annaðhvort
FH eða Valur sem
hlýtur hinn eftir-
sótta íslandsmeist-
aratitil í ár. Óhœtt
er að segja að
keppnistímabilið,
sem núer brátt um
garð gengið, hafi
verið Valsmönnum
sérlega hagstætt.
Liðið er nú þegar
orðið deildar- og
bikarmeistari og
leikur til úrslita um
sjálfan íslands-
meistaratitilinn.
TRÚFAN í
AFTURELDINGU...
* Það fór eins og við
' spáðum hérna fyrir
skömmu að Aftureld-
ing mundi höggva skörð í raðir
Frammara. En Aftureldingar-
menn eru ekki hættir, því haft
er fyrir satt að þeir ætli að
tryggja sér Alexei Trúfan sem
leikið hefur með FH í vetur.
Trúfan hefur orð á sér fyrir að
vera ffemur félagslega einangr-
aður hér og var það helst Guð-
mundur Guðmundsson,
þjálfari Aftureldingar, sem náði
sambandi við hann á meðan
hann þjálfaði Víking. Þá verður
líklega ekki rnikil fyrirstaða
meðal FH-inga að láta Trúfan
lausan, en á tímabili í vetur voru
þeir að hugsa um að láta hann
fara vegna óánægju með sókn-
arleik hans. Hjá Aftureldingu
yrði líklega helst treyst á Trúfan
í vörninni.
Af öðrum tíðindum má nefna
að KA-menn hafa verið að bera
víurnar í Bjarka Sigurðsson í
Víkingi og þá er hugsanlegt að
Konráð Olavsson leiki með
Stjörnunni, sem búin er að
missa Axel Björnsson í stöðu
hægrihandarhomamanns. Þá er
rætt um að Finnur Jóhanns-
son, línumaður í Þór, fari aftur í
Val ef Geir Sveinsson heldur
utan.
Geir Sveinsson
GUNNAR
BEINTEINSSON
Patrekur
JÓHANNESSON
VALDIMAR GRÍMSSON —
Margir þjálfarar hafa látið
þau orð falla að Valsme'nn séu
einfaldlega með besta liðið um
þessar mundir og því skyldi
engan undra að Valsmenn eru
fjölmennastir í PRESSULIÐ-
INU — liði sem þjálfarar
fyrstudeildarfélaganna hafa val-
ið.
Sú aðferð var viðhöfð við val
PRESSULIÐSINS að þjálfar-
arnir völdu sjö leikmenn hver
— einn leikmann í hverja
stöðu. Þjálfararnir sem tóku
þátt í valinu voru Gunnar Ein-
arsson, þjálfari Stjörnunnar;
Kristján Arason, þjálfari FH; Jan
Larsen, þjálfari Þórs á Akureyri;
Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálf-
ari Hauka; Einar Þorvarðarson,
þjálfari Selfoss; Gunnar K.
Gunnarsson, þjálfari Víkings;
Sigurður Gunnarsson, þjálfari
IBV; Brynjar Kvaran, þjálfari ÍR;
Alffeð Gíslason, þjálfari KA; og
Þorbjörn Guðmundsson, þjálf-
ari Vals. Ekki náðist í Eyjólf
Bragason hjá Fram og Flans
Guðmundsson hjá HK.
Fróðlegt er að sjá hverja þeir
telja bestu leikmennina, en
nokkur nafnanna sem þeir velta
upp hafa ekki verið til umræðu
þegar valið hefur verið í lands-
liðið. En byrjum á markvörðun-
um.
Sigmar Þröstur
markvörður vetrar-
ins
Það þarf ekki að koma nein-
um á óvart að Sigmar Þröstur
Óskarsson, markvörður ÍBV,
hlaut flest atkvæði þjálfaranna,
eða fimm talsins. Þessi frábæri
markvörður hefur óumdeilan-
lega verið í banastuði í hand-
boltanum í vetur og því vel að
heiðrinum kominn. Einungis
tveir aðrir markverðir komust á
blað; þeir Bergsveinn Berg-
sveinsson í FH, sem þrír þjálf-
arar álitu að ætti að vera í
PRESSULIÐINU, og Guð-
mundur Hrafnkelsson hjá
Val, sem hlaut tvö atkvæði.
Valdimar Grimsson
besti hornamaður-
inn
Valið virtist auðvelt þegar
kom að því að velja besta hægri
hornamann landsins, en þar
hafði Valsarinn Valdimar
Grímsson talsverða yfirburði.
Sex þjálfarar af tíu töldu hann
besta hægri hornamanninn, en
aðrir sem komust á blað í hægra
horninu voru Sigurður
Sveinsson „míní“, sem fékk
tvö atkvæði, og Matthías
Matthíasson, hornamaðurinn
knái úr ÍR, sem hlaut eitt at-
kvæði. Athyglisvert er að Matt-
hías er eini leikmaðurinn úr ÍR,
„spútnikliði“ deildarinnar, sem
hlýtur atkvæði.
Valið um vinstra hornið var
mun jafnara. Þar komust fjórir
á blað; þeir Gunnar Beinteins-
son, FH, Zoltan Belany, ÍBV,
Páll Þórólfsson, Fram, sem
nýverið skipti yfir í Aftureld-
ingu, og Jakob Sigurðsson,
Val. Gunnar hlaut flest atkvæði,
en Belany kom honum næstur.
Þeir félagar Páll og Jakob fengu
hins vegar sitt atkvæðið hvor.
Athygli vekur að sá sfðarnefhdi
skuli vera nefhdur hér, í vali um
besta leikmann ársins, þar sem
Jakob var meiddur megnið af
keppnistímabilinu. Lesendum
til ffóðleiks má geta þess að það
var þjálfari hans, Þorbjörn Jens-
son, sem greiddi honum at-
kvæði sitt.
Siggi Sveins
í sérflokki
Það leikur ekki nokkur vafi á
því í huga allra fyrstudeildar-
þjálfaranna nema eins, Þor-
björns Jenssonar, að Sigurður
Sveinsson er yfirburðamaður í
sinni stöðu. Siggi fékk níu at-
kvæði, en það var Ólafur Stef-
ánsson, hægri útispilari Vals-
manna, sem hlaut atkvæði Þor-
bjarnar.
Mun jafnari keppni var um
sæti vinstri útispilarans í
PRESSULIÐINU. Þar var það
hinn ungi og efnilegi Stjörnu-
maður Patrekur Jóhannesson
sem hlaut flest atkvæði, eða
fjögur. Hann lék gríðarvel í vet-
ur og átti stóran þátt í velgengni
liðs síns fyrrihluta vetrar. Þá
voru Slóvakinn Petr Baumruk
í Haukum og Jón Kristjánsson
í Val báðir nálægt því að komast
í liðið, en þrír þjálfarar völdu
hvorn þeirra um sig.
Dagur besti
leikstjórnandinn
Valið um besta leikstjórn-
andann var jafnt. Fjórir leik-
menn voru tilnefndir og hlaut
Dagur Sigurðarson, leikmað-
ur Vals, stuðning flestra, eða
fjögurra. Það var einu atkvæði
meira en Guðjóni Árnasyni,
miðjumanni FH, áskotnaðist.
Tveir þjálfarar töldu Jón Krist-
jánsson úr Val einnig besta leik-
stjórnandann og er það athygl-
isvert fyrir þær sakir að þrír
aðrir þjálfarar töldu hann besta
vinstri útispilarann. Samtals
töldu því fimm þjálfarar að
hann ætti heima í PRESSULIÐ-
INU, en vegna dreifingar at-
kvæðanna á tvær stöður kemst
hann ekki inn. Hins vegar skýt-
ur það skökku við að maðurinn
skuli ekki vera í landsliðinu þar
sem hann er greinilega með
bestu handknattleiksmönnum
landsins. Þá fékk gamla kemp-
an Páll Ólafsson í Haukum
einnig eitt atkvæði sem besti
leikstjórnandinn.
Besti línumaðurinn er svo
Geir Sveinsson, en hann fékk
öll atkvæði þjálfaranna.
Glæsilegur árangur hjá Geir.
Jónas Sigurgeirsson
Betri en van Basten og Gullit
Nýr snillingur í
knattspyrnunni
Knattspyrnusér-
fræðingar í Hollandi
eru á einu máli um að
þar sé nýr undramaður
í íþróttinni kominn
fram. Hann heitir
Clarence Seedorf og
er aðeins 16 ára. Þrátt
fyrir það er hann kom-
inn í aðallið Ajax, án
efa yngsti maðurinn til
að vinna sér fast sæti í
aðalliði í sögu félags-
ins.
Ajax er ffægt fyrir að
frnna snillinga, nægir
þar að nefna Marco
van Basten, Frank
Rijkaard, Ronald
Koeman, Ruud Gull-
it, Bryan Roy og
Dennis Bergkamp svo fáein-
ir séu nefndir.
Seedorf er talinn bera af
þeim öllum. Hann er ættaður
frá Súrínam eins og Ruud
Gullit, en sérfræðingar segja
að strákurinn sé mun betri en
Gullit og van Basten voru á
hans aldri. Hann hefur leikið í
öllum unglingalandsliðum
Hollands, alveg upp í 21 árs
liðið, þrátt fyrir að vera aðeins
16 ára. Rætt er um að hann
verði með hollenska liðinu í
Bandaríkjunum á næsta ári —
efliðiðkemst áffam.
Handbolti
PER
BAUMRUK
BESTIÚT-
LENDING-
URINN
Þjálfarar fyrstudeildarlið-
anna völdu einnig besta út-
lendinginn í fyrstu deildinni,
en þeir voru alls sjö sem léku
þar á keppnistímabilinu. f
huga flestra þeirra er ekki
nokkur vafi á því að Hauka-
maðurinn Petr Baumruk
hafi leikið þeirra best í vetur.
Aðrir sem komust á blað
voru Michal Tonar, leik-
maður HK í Kópavogi, og
Zoltan Belany, sem leikur
með Vestmanneyingum. At-
hygli vakti að Serbinn f liði
ÍR, Branislav Dimtrijevic,
hlaut ekkert atkvæði, en
hann þykir hafa staðið sig
sérlega vel með ÍR, einkum
undir lok keppnistímabils-
Einu stúkur íslenskra íþróttafélaga Héráiandihafaaðeins tvö iþróttafé-
lög, KR og Valur, ráðist íþað stórvirki að byggja stúku við leikvelli sína. Hin nýja stúka
þeirra KR-inga er afar glæsileg á íslenskan mælikvarða, þótt hætt sé við að útlendingum
þyki ekki mikið til hennar koma. Hvað ætli þeim finnist þá um stúku Valsmanna, sem eitt
sinn fauk um koll og er hér skeytt í réttum stærðarhlutföllum inn í stúku þeirra KR-inga.
Jordan og arftakinn
Nú í miðri úrslitakeppni NBA er Ijóst að Chic-
ago Bulls, með besta körfuknattleiksmann
heims, Michael Jordan, í fararbroddi, ætla að
gera allt til að verja titilinn.
Almennt er hins vegar talið að hann sé búinn
að fá verðugan arftaka þar sem er miðherjinn
Shaquille O'Neal hjá Orlando Magic. Það er að
sjálfsögðu margt ólíkt með þeim félögum;
Jordan bakverði, sem hefur órðið stigahæsti
leikmaður deildarinnar undanfarin sjö ár, og
nýliðanum O'Neal, sem leikur sem miðherji.
Það sem þeir eiga hins vegar sameiginlegt er
að Jordan kom til Bulls þegar liðið var I mikilli
lægð og lyfti því i hæstu hæðir og O'Neal virð-
ist ætla að gera það sama við Magic. Jordan
hefur á milli tveggja og tveggja og hálfs millj-
arðs króna í tekjur á ári. Fær til dæmis um
1.300 milljónir vegna samnings við skófram-
leiðanda, en hann notar nýja númer 13 í
hverjum leik. (Skórnir hans eru seldir eftir
hvern leik.) O’Neal fær 850 milljónir frá sínum
skóframleiðanda; hann notar númer 20 og
hafin er framleiðsla undir vörumerkinu Shaq
Attaq. AirJordan þekkja allir.
Jordan og O'Neal á góðri stundu. Það munar 18
sm á hæð þeirra og 50 kg í þyngd, O'Neal í vil, en
Jordan er ennþá kóngurinn.
Auðvitað á 'ONeal eftir að vinna afrekin, en
fyrsta árið dugar vel til að byggja upp vænt-
ingar í kringum hann.
SUNDRAST VALSLIÐIÐ
NÆSTAÁR?...
JÁrangur Valsliðsins í
I vetur er sérlega glæsi-
legur, enda langt síðan
jafnskemmtilegt lið hefur leikið.
Hafa menn haft á orði að helst
mætti líkja leik þess við leikstíl
rússneska landsliðsins, þar sem
djörf kerfi eru í gangi í takt við
ríkulegt einstaklingsframtak. En
því miður er útlit fýrir að Vals-^"
ntenn haldi þessu góða liði ekki
saman. Gert er ráð fyrir að Geir
Sveinsson fari til Spánar á
næsta ári. Jak-
ob Sigurðsson
mun vera á leið
til Bandaríkj-
anna í fram-
haldsnám í
efnafræði og
sömuleiðis
hyggur Jón
Kristjánsson á
framhaldsnám,
en hann er
verkfræðingur.
Þá er allt eins
búist við að Valdimar Gríms-
son fái langþráð atvinnutilboð
erlendis ffá.