Pressan - 06.05.1993, Síða 31
4
Fimmtudagurinn 6. maí 1993 18. tbl. 4. árg.
PRESSAN
230 krónur
í lausasölu
(\fikuritid
PRESSAHI fylgir
án endurgjalds)
HAFA SKAL
SEM BETUR HLJOMAR
Gíslatakan í útvarpshúsinu
Umsátrinu lokið
Fólið fær aðalhlutverk í mynd Þráins Bertelssonar.
Efstaleiti, 5. maí. ... ..............
Umsátrið um útvarpshúsið hlaut
farsælan endi í gær. Fólið, sem hef-
ur gengið argandi um ganga húss-
ins og haldið þremur mönnum í
gíslingu, gafst þá upp eftir flóknar
samningaumleitanir.
Fólið gerði kröfu til þess að fá að
leika aðalhlutverk í sjónvarpsmynd
eins gíslanna, Þráins Bertelssonar,
„Sigla himinfley“. Myndin fjallar um
unga, fallega stúlku sem fer í fisk-
vinnu til Vestmannaeyja. „Með nýj-
ustu tækni í andlitsförðun er hægt að
Hrafn og Þráinn þvinga fram bros fyrir Ijósmyndara GPvið undirritun samkomulagsins í út
varpshúsinu í gær. Þegar myndin var tekin var Hrafn Þráinsson nýbúinn að fá að vita um
nafnbreytinguna. Ef myndin prentast vel má sjá kutann sem fólið heldur að hnakka Þráins
Bertelssonar.
vinna kraftaverk,“ sagði Þráinn að-
spurður um hvort aðrir hefðu ekki
verið heppilegri í hlutverkið. Hann
sagðist ekki enn vera búinn að leysa
hvernig hlutverkinu yrði breytt til
samræmis við framsögn fólsins og
tungutak.
Það sem tafði fyrir
samningum voru áköf
mótmæíi annars gísls,
Hrafns Gunnlaugs-
sonar, sem vildi fá að
gera myndina sjálfur.
Sem málamiðlun sættist
hann á að þriðji gíslinn,
sonur Þráins, yrði skírð-
ur Hrafn og fengi hlut-
verk í myndinni.
„Þetta skapar ákveðna
samfellu í sögu kvik-
myndagerðar á Islandi,“
sagði Hrafn. „Ég og vinir
mínir megum ekki til
þess hugsa að hér verði
gerð kvikmynd án þess
að nafn mitt tengist
henni.“
Fólið gaf frá sér
ógreinilegt snörl sem erf-
itt var að skilja, en túlkur
þess, Arthúr Björgvin
Bollason, sagði að það
virtist vera ánægt með
þessi málalok.
Sigrún gnæfir hér upp úr mannþrönginni í 1. maí- kröfugöngunni.
Sigrún Stefánsdóttir var í 1. maí-kröfugöngunni
STILLT, PRÚÐ OG HÆGLÁT
- segir íyfirlýsingu starfsfélaga hennar
Reykjavík, 6. maí.
„Við viljum vera á undan um-
ræðunni núna,“ sagði Hákon
Már Oddsson, einn af vinnufé-
lögum Sigrúnar Stefánsdóttur
fréttamanns og lektors, en þeir
hafa þegar sent frá sér tilkynn-
ingu um framferði Sigrúnar í 1.
maí-kröfugöngunni.
Þar kemur fram að Sigrún hafi
hvorki orgað, æpt né stappað í göng-
unni. „Reyndar tók Sigrún kipp þeg-
ar hún sá Davíð Oddsson ganga inn í
Stjórnarráðið, en okkur tókst að
koma á hana böndum áður en illindi
hlutust af,“ sagði Hákon. „Það var
líka varla nein hætta á ferðum því
Davíð greikkaði sporið um leið og
hann kom auga á Sigrúnu."
„Ég hef ástæðu til að efast um að
þetta sé satt,“ sagði Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, samkennari
Sigrúnar við Háskólann, en hann
hefur tekið að sér að fylgjast með
framferði Sigrúnar. „Ég stillti mér
upp á uppáhaldsnjósnastað mfnum
við Dómkirkjuna en því miður fór
kröfugangan ekki þar ffamhjá. Ég sá
því ekki til Sigrúnar en það þýðir
samt ekki að hún hafi ekki gert neitt
af sér,“ sagði Hannes.
Þór Freysson ásatrúarmaður lærir á veðurspátölvuna hjá Eiði Guðnasyni.
Ásatrúarmenn bjóðast til að bæta veðrið
Vílja fá að fórna Magn
úsi Jónssyni til að
endurheimta sumarið
Reykjavík, á miðri hörpu.
Eiður Guðnason umhverfisráð-
herra hefur nú til meðferðar
beiðni frá ásatrúarmönnum sem
vilja fá að fóma Magnúsi Jónssyni,
nýskipuðum veðurstofustjóra, til
að stöðva snjókomu og sudda sem
Kæra lögð fram vegna Fegurðarsamkeppni íslands
Fór í brjóstastækkun en var
svo ekki keppt í peirri grein
Reykjavík, 6. maí. „Ég skalf og nötraði þegar
ég uppgötvaði að ekki átti að S|fr|Jpv P* - v' '
keppa um bestu brjóstin og
að það hafi aldrei staðið til,“ .
sagði Una Geirsdóttir, 19 ára
stúlka frá Þorlákshöfn. Una
hefur höfðað mál á hendur , ,
forráðamönnum keppninnar
Fegurðardrottning íslands
vegna þess að ekki var keppt
um bestu brjóstin í keppn- f >■■ I
inni.
Una komst reyndar aldrei inn
í forkeppnina en sagðist hafa gengist undir próf hjá manni sem hún taldi vera fulltrúa keppninnar heima í Þorláks-
■ a .. . „ , , r.- Una Geirsdóttir við hina meintu brjósta-
Það varekk.fyrr en éghorfð! mælingusemforráðamennk innar
a utsendmguna um h gma em yj ekkj viðurkenna að haf. ™
eg attaði m.g á svikunum. I stað um
þess að keppa um bestu brjóstin
var bara keppt um bestu fótleggina. Ég hafði auk þess (járfest í brjóstastækk-
un þannig að mér finnst lágmark að mér sé endurgreiddur sá kostnaður,“
sagði Una.
„Við skiljum ekki hvað stúlkan er að fara,“ var það eina sem Gróa Ás-
geirsdóttir, forráðamaður keppninnar, vildi láta eftir sér hafa
þeir telja hann bera ábyrgð á.
„Við teljum að þetta sé eina ráðið til
að endurheimta sumarið,“ sagði
Sveinbjörn Beinteinsson æðstigoði
í samtali við GULU PRESSUNA.
„Þess finnast hvergi merki í fornum
bókum að veðurfar hafi áður verið
með þessum hætti í maímánuði. Þacf^*
getur varla verið tilviljun að þetta ger-
ist sama vorið og Magnús Jónsson er
ráðinn veðurstofustjóri.“
„Veðurguðirnir eru æfir. Ég veit
ekki hvað veldur, en það liggur beint
við að þeir vilja fá friðþægingu og
þetta er það eina sem okkur dettur í
hug,“ sagði Þór Freysson í Fórnar-
ráði ásatrúarmanna. „Við berum eng-
an sérstakan kala til Magnúsar, en
það er morgunljóst að hann á ekki ar*
komast upp með að bera þennan kala
til landsmanna."
„Þetta er ekki sá Magnús sem ég
réð,“ sagði Eiður Guðnason og bætti
við að hann leitaði nú að eftirmanni
Magnúsar. Aðspurður um nöfh vildi
hann engu svara og neitaði að hann
væri undir þrýstingi ff á Ólafi G. Ein-
arssyni um að ráða Heimi Steins-
son. „Ég veit ekki til þess að Heimir sé
genginn í Alþýðuflokkinn, þótt hann
sé farinn úr Sjálfstæðisflokknum,"
sagði Eiður.
Effir því sem komist verður næst
munu ásatrúarmenn ætla sér að taka-«.
yfir veðurspána og hafa gert formlegt
tilboð í hana. Eiður vildi heldur ekki
tjá sig um það, en sagði að reynt yrði
að tryggja að veður yrði áfram.