Pressan


Pressan - 12.08.1993, Qupperneq 3

Pressan - 12.08.1993, Qupperneq 3
SKI l A BOÐ Fimmtudagurinn 12. ágúst 1993 PRESSAN 3 B, 'rúðkaup þeirra Kol- finnu Baldvinsdóttur nema og Björns Fr. Jör- undssonar poppara er á allra vörum, en það fór fram á Búðum á Snæfells- nesi um síðustu helgi. Að athöfn lokinni var slegið upp veislu góðri til heiðurs hinum nýgiftu hjónum og var gleðin víst mikil og skemmtun hin besta. Þegar leið á kvöldið sáu ýmsir ástæðu til að hylla brúð- hjónin með ræðuhöldum og skemmtiat- riðum. Þeirra á meðal var enginn annar en faðir brúðarinnar, Jón Baldvin Hannibalsson, sem kom nokkuð á óvart með vasklegri framgöngu sinni. Ekki flutti hann ræðu um EES, eins og ef til vill var við að búast, heldur gerði hann sér lítið fyrir og tók að rappa af miklum móð. Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem utanríkis- ráðherra er liðtækur í söngnum og segja kunnug- ir að hann eigi það til að hefja hressilega upp raust sína ef þannig liggur á hon um... F /ftir að Morgunblað- ið flutti í nýja húsið í Kringlunni stendur starfs- mönnum í fyrsta skipti til boða að snæða í mötuneyti á öllum matmálstímum. Starfsmennirnir eru nokk- uð ánægðir með þá tilhög- un en ekki eins kátir með verðlagið. Mogginn var nefnilega ekkert að hafa fyr- ir því að bjóða umsjá mötuneytisins út, heldur lagði það í hendur hinna þrautreyndu kokka í Múla- kaffi, sem blaðið hefur reyndar haft regluleg við- skipti við í mörg ár...413- 3.slu M J-TAagnús „ríki“ Magnússon er lesendum PRESSUNNAR áreiðanlega kunnur, en blaðið hefúr áð- ur greint frá ýmsum við- skiptum hans og fyrirtækis hans, Geymsluþjónustunn- ar hf. Nú hefur Jöfur hf. stefnt Magnúsi sem og Páli Þórðarsyni fyrir hönd sam- eignarfélags þeirra, Gisti- heimils Reykjavíkur/Skaga- strandar, og vill Jöfur fá tæplega 700 þúsund króna skuld greidda ásamt drátt- arvöxtum upp á rúmt ár. Um víxla er að ræða sem stofnuðust með maka- skiptasamningi aðilanna á milli, en skipt var á fast- eignum í Kópavogi og á Ár- túnshöfða. Það er annars um Magnús að segja að samkvæmt skattskrá var hann í fýrra með að meðal- tali 67 þúsund krónur á mánuði í tekjur og skuldin við Jöfur þvi tíföld sú upp- hæð... Það eru margir sem bjóða en það er aðeins ein pizza upp a pizzur, sem hittir í mark Pizza-heimsendingar: Kópavogur - Reykjavík - 44444 Hafnarfjörður - Garðabær - Reykjavík - Seltjarnarnes - 629292 Að sjálfsögðu fylgir hvítlauksolía með öllum pizzum fyrir þá sem vilja SENDUM FRITT HEIM, OG EKKI BARA PIZZUR

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.