Pressan - 12.08.1993, Side 10

Pressan - 12.08.1993, Side 10
FRETTI R 10 PRESSAN Fimmtudagurinn 12. ágúst 1993 Bankasljórinn í Bröttugötu í fjárhagsvandræðum ? HRIKTIRISTOBUM HERLUFS GUUSEN Ved og fjárnám hrannast upp á fasteignir hans Herluf Clausen er umtalaður og jafn- framt umdeildur. Hann efnaðist vel á viðskiptum sínum og var eitt árið krýndur skattakonungur landsins. Síðustu árin virðist hafa harnað í ári hjá honum samfara hnignun Lauga- vegarins og fatamarkaðarins, auk al- mennrar kreppu í landinu, sem hefur þýtt mikil afföll meðal viðskiptavina hans. Hann hefur yfirtekið fasteignir og verslanir sem hafa gengið illa og situr uppi með verðlitlar eignir. Veð- kröfum hefur fjölgað mikið og fjár- nám verið gert á heimili hans og í höfuðstöðvunum. Þá virðist staða hans innan bankakerfisins hafa versnað talsvert. Veð og fjárnám hrann- ast upp Svo virðist sem ný veð hafi verið að hrannast á fasteignir Herlufs Clausens, fasteignir sem hafa lengst af verið veð- litlar. Þannig hafa 60 milljónir króna bæst inn á veðbókar- vottorð fasteigna hans á síð- ustu tveimur árum. Hafa verður í huga að ekki er víst að þar með séu allar fasteignir hans upptaldar svo veðin gætu numið hærri upphæð, en einnig getur verið um ein- hverjar tilfærslur að ræða. Sú fasteign Herlufs sem mestum veðum hefúr safnað er Lauga- vegur 95. Á árinu 1992 bætt- ust fjórir veðhafar á eign sem fram að því var að heita má veðlaus. Búnaðarbankinn er skráður fyrir 5 milljónum króna, Sparisjóður vélstjóra fyrir 3 milljónum, Búnaðar- bankinn síðar á árinu fyrir 9,5 milljónum og SPRON fyrir 13,5 milljónum. Á þessu ári bættist svo Kristján Knútsson við með 1,5 milljónir króna, en hann átti fyrir tvær veð- kröfúr í Laugaveg 95. Aðrar fasteignir hafa einnig bætt á sig veðum og vekur at- hygli að heildverslunin Hildi- berg er með tvær veðkröfur á Herluf, báðar frá þessu ári og samtals upp á 7 milljónir króna. Einnig er athyglivert að tvö fjárnám hafa verið gerð í eignum Herlufs. Verðbréfa- markaður Fjárfestingarfélags- ins gerði fjárnám upp á 1 milljón króna í glæsihýsinu á Hofsvallagötu 1, þar sem Herluf Clausen býr, og Gjald- heimtan í Reykjavík gerði 3 milljóna króna fjárnám í höf- uðstöðvunum í Bröttugötu 3B. Það er dagsett 16. mars 1993. Þá hefur hluti af fast- eigninni í Efstasundi 10 verið seldur Gunnari Emi Gunn- arssyni. Mfnnkandi umsvif inn- an bankanna Staða Herlufs innan fjár- málastofnana virðist einnig hafa versnað í seinni tíð. Áður skipti hann einkum rið Bún- aðarbankann og að nokkru við Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis en nú hafa viðskipti hans dreifst víðar. Lengst af hlaut hann bestu fýrirgreiðslu innan bankakerfisins, enda hefur staða hans verið talin firnasterk. Áður var hann einn af stærstu sölumönnum víxla og var umsvifamikill í svoköll- uðum kvótaviðskiptum á því sviði. Heimildamenn PRESS- UNNAR innan bankakerfisins segja að stórlega hafi dregið úr þeim viðskiptum og þau séu nú ekki svipur hjá sjón. Einnig nefndu nokkrir aðilar stórt bréf sem gekk á milli banka og endaði hjá lögffæðingi. Staða Herlufs innan bankakerfisins mun einnig hafa versnað til muna vegna skakkafalla sem hann varð fýrir. Herluf er vin- ur vina sinna en þeir hafa margir hverjir farið flatt á sín- um viðskiptum og við það tapar Herluf fjármunum. Einnig er rétt að nefna að lánastofnanir eru nú farnar að krefjast sterkari trygginga, ekki síst í kjölfar svokallaðra BlS-reglna. Með þeim skiptir miklu fyrir eiginfjárhlutfall bankanna að veð standi á bak við lánveitingar. Jafnvel þótt Herluf sé eignasterkur er óhagstætt fýrir banka að lána út á sjálfskuldarábyrgð og Herluf fær væntanlega betri vaxtakjör ef hann leggur ffarn veð. Hnignun Laugavegar og tuskubúða Hugsanleg hnignun Herlufs Clausen er að margra mati tal- in tengjast hnignun á Lauga- veginum og í tískuvöruversl- un, erfiðleikum í rekstri veit- ingahúsa og kreppu almennt, þar sem Herluf mun hafa tap- að miklum fjármunum við gjaldþrot annarra einstak- linga. Meðal þeirra sem heim- ildamenn PRESSUNNAR nefndu í því sambandi eru Pálmi Lorensson í Gestgjaf- anum, Sævar Baldursson í Plaza, Ólafur Laufdal og verslanirnar P&Ó og Skó- verslun Þórðar Péturssonar, svo eitthvað sé nefht. Nánasti samstarfsaðili Her- lufs frá upphafi var Brynjólf- ur Bjarkan, en hann lést svip- lega í umferðarslysi á Reykja- nesbraut í vetur. Nú er Magn- ús Ketilsson helsti samstarfs- aðili Herlufs en hann hefur starfað með honum síðan á áttunda áratugnum. Einnig vinnur Birgir Hralnsson náið með honum og sér meðal annars um heildverslun Kon- ráðs Axelssonar og BH fram- tak hf. Annar maður sem starfar mikið fyrir Herluf er fornvinur hans, Valur Magn- ússon. Hann hlaut á sínum tíma þungan dóm fýrir fjár- málamisferli en sér nú meðal annars um rekstur Café Óperu. Hann á skrautlegan feril að baki í veitingarekstri og má þar nefna Eldvagninn, Ítalíu og Café Óperu. „Lúffi var sterkefnaður í lok áttunda áratugarins, það veit ég fýrir víst. Þá átti hann nær eingöngu lausafé. Frá þeim tíma hefur hann staðið í lána- starfsemi til illa rekinna fýrir- tækja og hélt áfram að lána þeim í von um góða vexti. Á endanum hafa þessi fýrirtæki komist í hans eigu og Herluf situr uppi með verðlitlar fast- eignir og verðlítil fyrirtæki sem hann losnar ekki við. Oft á tíðum eru það sömu aðil- arnir sem sjá áffam um rekst- urinn og því ekki mikið sem hefur breyst,“ segir einn þeirra sem hafa starfað með Herluf. Fleiri töluðu um að þar sem fjármagn Herlufs hefði verið bundið í illseljanlegum fast- eignum sem skiluðu litlum sem engum arði hlyti að ganga á lausafé hans. Þá séu þeir aðilar, sem hafa fengið lánafyrirgreiðslu hjá Herluf, oft aðilar sem bankarnir hafi hafúað. Afföllin geta því verið mikil, einkum á krepputím- um. Þá var einnig nefnt að Herluf hefði átt að halda sig við heildsöluna eingöngu, hann hafi haft of mörg járn í eldinum. Það að vera góður heildsali þýddi ekki endilega að hann yrði góður í fyrir- tækjarekstri. Hagnaðist vel á heild- sölu og innflutningi Herluf Clausen er af dönsk- um ættum og er fimmti ætt- liður Clausena sem stundar viðskipti hér á landi. Faðir hans varð gjaldþrota og flutt- ist til Danmerkur en Herluf ólst upp hjá móðurforeldrum sínum í Grindavík. Hann út- skrifaðist frá MR 1964 og tæpu ári síðar hafði hann stofnað heildverslun sína. Hún fór vel af stað og hagnað- ist Herluf vel á innflutningi á steiktum lauk, frönskum kart- öflum og tertubotnum. Síðan flutti hann mikið af fatnaði inn í heildsölu og má þar nefna gallabuxnamerkið UFO. Hann þykir góður sölu- maður og heildsalan gekk mjög vel. Einnig leysti hann út vörur fýrir aðra verslunareig- endur og hagnaðist mjög vel á því. Hann fjármagnaði inn- flutninginn og fékk síðan greitt til baka eftir 1-2 mán- uði. Fullyrt hefúr verið að slík viðskipti hafi getað skilað allt að 200 prósenta ársávöxtun. Fyrir íjórum árum var tolla- löggjöfinni breytt og fjárþörf Herluf Clausen: Veðtilfærslur og óbreytt „Ég á nú ekki von á þvi að þessi veð hjá mér hafi aukist neitt á undanförnum árum. Skýringin sem ég hef á þessu er að eignir hafa væntanlega verið seldar. Þetta er tilfærsla á veðsetningum og megnið af þessum veðsetningum er tryggingar fyrir einhverjum öðrum viðskiptum. Ég á ekki von á að það hafi aukist á einn eða annan hátt.“ Eru viðskiptin ekki þyngri utn þessar mundir með hnign- un Laugavegarins, erfiðleikum {fataviðskiptum og aukinni kreppu almennt? „Öll viðskipti eru þyngri í augnablikinu og hafa verið það undanfarið eitt ár eða svo. En þau eru ekkert þyngri hjá mér en gengur og gerist og sjálfúr er ég tiltölulega lítið í þessum fatabransa.“ Hvað með tengsl þín við Laugaveginn? „Þetta er náttúrulega ein- hver gömul tugga sern er ekki svaraverð. Þau eru ekkert öðruvísi en þau hafa verið. Ég veit ekki hvað menn eru að fílósófera, en í sambandi við þessi veð, þá hafa þau ekkert aukist, þetta eru tilfærslur út af eignasölum og slíku.“ Hvað tneð nýleg veð á Laugavegi 95? „Það eru einhverjar til- færslur. Það er ekkert óeðli- legt við það á einn eða annan hátt.“ Veðin tengjast ekki versn- andi afkomu hjá þér eða á Laugaveginum? „Nei, það er bara þessi sami gangur hjá mér og öðr- um. Það er ekkert öðruvísi.“ Nú hefitr þú verið talsvert í afkoma lánaviðskiptum og ert sagður hafa tapað fé á gjaldþroturn ákveðinna einstaklinga. „Það er ekki rétt að ég hafi tengst einhverjum lánavið- skiptum til einstaklinga. Ég er bara heildsali sem selur vör- ur. Ég hef leyst út vörur og selt mönnum vörur og greiði mína skatta og skyldur af því eins og ég hef alltaf gert Ég er ekkert öðruvísi en aðrir heildsalar hérna á Islandi og hef raunar aldrei verið.“

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.