Pressan - 12.08.1993, Síða 27

Pressan - 12.08.1993, Síða 27
N Y LO Fimmtudagurinn 12. ágúst 1993 PRESSAN 27 tíðarinnar? RALF SAMENS „God looked at the earth and he saw that it was a ball. And itwasgood." — Ogguð leit á jörðina og sá að hún var bolti. Og það var gott. Um síðustu helgi var opnuð samsýning tólf ungra listamanna í Nýiistasafninu að við- stöddu fjölmenni, en talið er að á fjórða hundr- að manns hafi komið opnunarkvöldið. PRESS- UNNI fannst tilvalið að veita lesendum sínum innsýn í hvað ungir listamenn fást við þessa dagana. Listamennirnir ákváðu sjálfir hvaða verk þeirra yrðu fest á filmu, eigin uppstillingu og hvað þau hefðu að segja um list sína. Eng- ar hömlur voru settar. íslensku listamennirnir eiga það sammerkt að l iafa skóiast í Myndlista- og handíðaskóla ís- lands og reyndar útskrifuðust þau öll árið 1991, nema Magnús Sigurðarson og Jóhann Vaidimarsson. Þá eru þau öll úr fjöltæknideild, nema Jón Garðar Henrýsson, Þórarinn Blöi> dal og Sigurður Vilhjálmsson, sem koma úr málaradeild. Tiiurð þessarar tiiteknu sýningar má rekja til þess að Jóhann Valdimarsson og Guðmundur Rúnar Lúðvíksson fengu Nýlistasafnið að láni til að halda saman sýningu. Þeir ákváðu síðan að halda samsýningu með fieiri ungum lista- mönnum og þegar upp var staðið voru þau orðin eliefu talsins. Að auki er Svisslendingur- inn Ralf Samens með á sýningunni, en hann er hér í boði Nýlistasafnsins. LIND VÖLUNDARDÓTTIR vildi að ég væri blóminn í ís- lensku sumri.“ „Verk: Skötuselur. Réttur: Afhausið skötuselinn með beittum hníf, takið í roðið hausmegin og rtfið af og skerið við halann, bregðið beittum hnrf á hrygginn og flakið, hreinsið skvapið (fit- una) af holdinu. Bitið holdið niður og steikið á heitri pönnu í ekki of langan tíma. Skemmtun: Takið roðið og bregðið því á stóran blóm- kálshaus og þurrkið." MAGNUS SIGURÐARSON 271066-8569 r SIGURDUR VILHJALMSSON Hér átti Sigurður að standa og segja eitthvað gáfulegt.. POPP SVEITABOLL FIMMTUDAGURINN 1 2. ÁGÚST FOSTUDAGURINN 1 3. ÁGÚST • Hljómsveit Tómasar R. Einarssonar verður á kaffi- húsinu Sólon íslandus. Þeir félagar flytja dagskrá sem síðar í mánuðinum verður flutt í Þórshöfn í Færeyjum á norrænum útvarpsdjassdög- um. Hljómsveitinni hefur bæst nýr liðsmaður, hinn kornungi tenórsaxófónleikari Óskar Guðjónsson. Hljóm- leikarnir hefjast kl. 22. • Loðin rotta leikur fyrir dansi á Gauknum í sfnu gamla góða formi. Siggi Gröndal, táningurinn á fer- tugsaldri, plokkar gítarinn, Golli vinur á hljómborð, Jói „der Dicke" á bassa, Scób- mundur þenur raddbönd og Halli Gulli sér um trommur. FOSTUDAGURINN t 3. ÁGÚST • Hljómsveitin Langbrók á Gauknum. Alli, Halli, Baldur og Alfreð spila Abba-lög með tvær söngkonur.holdgervinga Annifrid og Agnethu, í broddi fylkingar. Say no more! • Sniglabandið, hljómsveit- in sem fékk menningarverð- launin á Rock-Cup fyrr ( sumar, mun heldur betur láta að sér kveða á Tveimur vin- um í kvöld. Þar mun útgáfu- félagið Slím hf. veita hljóm- sveitinni bullplötu, sýnt verð- ur myndbandið við lagið „Brennivín er bull“, en á því myndbandi leikur Lögreglu- kórinn aðalhlutverkið. Ekki er enn Ijóst hvort þiltarnir verða íklæddir pungbindum og gúmmískóm, en það kemur allt í Ijós. • Lipstick Lovers, hin ann- álaða rokk- og ról-sveit, skemmtir í Tunglinu (já það er opið aftur) frá miðnætti. • FH-hátíð verður um helgina hjá Hafnfirðingunum á Nilla- bar. Diskótek og allir FH-ing- ar velkomnir. LAUGARDAGU RIN N | 1 4. ÁGÚST • Langbrókin enn í stuði á Gauknum. Hjónin á Hlíðar- enda eru fjarri góöu gamni, enda þekktu þau ekki sænsku gæðaafurðina Abba. • Leiksvið fáránleikans stendur fyrir mfní-rokkfesti- vali (Tunglinu við Lækjar- götu. Á þessari rokkhátfð munu einnig koma fram hljómsveitirnar INRI, Yucat- an, Púff og Curver. • Cuba libra verður ásamt Þórönnu á Nillabar í Hafnar- firði. FH-ingar ætla að halda upþ á góðan árangur í deild- inni og lyfta bæði leikmönn- um og stuðningsmönnum upp. SUNNUDAGURINN 15.ÁGÚST • Stjórnin á Gauknum, ný- komin norðan úr landi. Næstu helgi mun sveitin virða fyrir sér Holmenkollen því þá veröur höfuðborg Nor- egs, Ósló, heimsótt og leikið fyrir frændur vora. Á efnis- skránni verða væntanlega nokkur lög með hinni norsku Syssel Kirkjebo. • Festí Gríndavík SSSól hyggst einbeita sér að suö- vesturhorni landsins um þessa helgi og því hefur hinn fornfrægi dans- og skemmti- staður orðið fyrir valinu. Ald- urstakmark er 18 ár. Ætli Eyjólfur sé fundinn? • Félagsheimili Dalvíkur Hljómsveitin Stjórnin lýkur sumarferð sinni um landið þessa helgi, en sumarið hef- ur farið í að fylgja eftir geisla- þlötunni „Rigg“ sem kom út í júní. • Sjallinn ísafirði Nýdönsk, með nýkvænta bassaleikar- ann Ðjörn í broddi fylkingar, lufsast vestur á ísafjörð. Þeir hafa verið latir piltarnir í sum- ar, legið í sólbaði og hugað að búi og börnum, en nú skal bætt úr því og sþilað fyrir landsbyggðina. • Sjallinn Akureyri Plá- hnetan lætur sig ekki vanta og syngur um gervitungl og önnurtungl. •Þotan Kefiavík GCD með Bubba og Rúnar í fararbroddi sjá til þess að Keflvíkingar gleðjist. LAUGAR DAGU R I N N 1 4. ÁGÚST • Ýdalir i Aðaldal Það er alltaf ægilega gaman f Aðal- dalnum og nú er Stjórnin mætt til leiks í síðasta sinn. Sveitin hyggur sumsé á frí þar til í októþer, svo nú fer hver að verða síðastur að sjá þau Siggu og Grella þregða á leik. Lipstick Lovers sjá um upphitun fyrir Stjórnina í þetta skiptið. • Njálsbúð V-Landeyjum. Nú setur Njáll á Bergþórs- hvoli í sig eyrnatappana, því í kveld leikur SSSól fyrir sveitunga hins fallna ættar- höfðingja. Hólmararnir úr sveitinni Vinir vors og blóma hita upp fyrir þá sólarmenn, en þeir eiga lagið Gott f kroppinn á íslenska listanum um þessar mundir. • Sjallinn ísafirði Yfirreið Nýdanskrar er óstöðvandi. Þeir eru reyndar enn staddir í mynni Skutulsfjarðar dreng- irnir. Annars er í burðarliðn- um ný hljómplata sem kemur út f haust og er þessa stund- ina í hljóðblöndun í Lundúna- borg. Kannski spila þeir eitt- hvað af nýju plötunni piltarn- ir? • Sæluhúsið Dalvfk Hið eina sanna Rokkabillýband leikur fyrir Dalvíkinga og sveitunga þeirra. • Miðgarður Skagafirði Pláhnetan er mætt á slóðir hestamanna og Geirmundar. Miðgarður hefur löngum trekkt að norðanmenn og konur og nú fer að verða síð- asti séns að sleppa sér laus- um fyrir haustannir. •Lýsuhóll Snæfellsnesi Það hefur verið heldur dauft yfir Snæfellsnesinu og aðeins haidið eitt ball í sumar á Lýsuhóli. Nú hyggj- ast félagarnir í Sniglaband- inu bæta úr því svo um mun- ar. Skúli og strákarnir eru rétt að þyrja, enda fyrst að ná sér á strik þegar kemur að sláturtíð. •Þotan Keflavík Nú á útvarpsstöin Bros afmæli og af þvi tilefni verður mikið skrall. Suðumesjamenn eru hvattir til að mæta.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.