Pressan - 24.02.1994, Blaðsíða 4

Pressan - 24.02.1994, Blaðsíða 4
YFIRHEYRSLA Safna ekki Júróvisjónplötum Landsbankinn átti mjög háar kröfur í þrotabú Sanitas án þess að fá neitt upp í þær. Risavaxið eignalaust þrotabú Sanitas hf. Landsbankinn tapar háum fjárhæðum Nýlega lauk skiptum í þrota- búi Sanitas hf. en samtals voru lýstar kröfur upp á 463 milljónir króna, þar af for- gangskröfur 2,3 milljónir króna. Farið var ffam á gjaldþrotaskipti í mars 1993. Engar eignir fundust í búinu þannig að rannsókn á veg- um skiptastjóra var í lágmarki enda enginn vilji meðal kröfuhafa til að kosta slíkt. Eignaleysi bús af þessari stærðargráðu er óvenjulegt, en vitað er t.d. að fýrirtækið Viking Brugg lýsti ekki kröfu upp á 160 milljónir í búið. Þá eru ekki mörg ár síðan Sanitas var skráð með eig- ið fé upp á um 200 milljónir. Nú hefúr fýrirtækið Pólaris, sem sömuleiðs var í eigu Páls G. Jóns- sonar, verið lýst gjaldþrota og má gera ráð fýrir háum kröfúm þar. Landsbanki íslands er lang- stærsti einstaki kröfúhafinn í þrotabú Sanitas, en þeir lýsa 201 milljónar króna kröfu í búið sem tilgreind var sem víxilskuld ásamt fleiru. Þessi krafa Landsbankans hefur vakið athygli, en heimilda- menn kunnugir rekstrinum telja að bankinn tapi verulegum fjár- hæðum á þessu gjaldþroti Sanitas. Landsbankamenn sjálfir verjast hins vegar allra ffétta. Eignaleysi búsins kemur meðal annars til af því að helsta eign þess, verksmiðjuhús á Köllunarkletts- vegi, var seld á nauðungaruppboði í júní árið 1992. Hæstbjóðandi var iðnlánasjóður, sem leysti til sin eignina á 20 milljónir króna. Var hún síðan seld aftur til Gosan hf. ásamt öflum tækjum og tólum, sem sjóðurinn hafði einnig leyst til sín. Þá átti Iðnþróunarsjóður veru- legar kröfur. Iðnlánasjóður taldi sig hafa sloppið bærilega ffá lánum til Sanitas og lýsti engum kröfúm í þrotabúið. Sagði lögffæðingur fé- lagsins að sjóðurinn hefði ekki þurft að afskrifa neitt út af þeirri meðferð. Eins og áður segir eru uppi miklar vangaveltur um hvaða tryggingar Landsbankinn hafi haft fýrir þessum lánum til Sanitas, en einnig vakti athygli að fýrirtækið skyldi. komast í viðskipti hjá bank- anum sem þegar var með hin öl- gerðarfýrirtækin, Vífilfell ög Egil Skallagrímsson, í viðskiptum. Var því haldið ffam að þar hefði Páll notið persónulegs kunningsskapar við Steingrím Hermannsson, bankaráðsmanns Landsbankans, og Val heitinn Amþórsson banka- stjóra. Einhverjar eignir átti Sanitas á Akureyri, en þær eru löngu seld- ar, auk þess sem öll tæki þar voru á kaupleigusamningi þannig að bankinn getur ekki haft miklar tryggingar þar. Birgðir Sanitas, svo sem sykur, fóru að mestu aftur til birgja. Siguröur Már Jónsson Sveinbjörn I. Baldvinsson dagskrárstjóri Hvað réð því að Gunnar Þórð- arson, Anna Mjöll Ólafsdóttir og Friðrik Karlsson voru valin til að semja Júróvisjónlag fyrir okkar hönd? „Það var ákveðið að leita til þriggja aðila. Við fengum ábend- ingar ffá sjö aðilum sem hafa tengst íslenskri dægurtónlist á síð- ustu tuttugu árum og báðum þá að setja tíu nöfn á blað. Við höfð- um það til hliðsjónar við valið.“ Spamaðurinn sem næst með einungis þremur höfundum, er hann ekki of dým verði keyptur með tilliti til hversu einlit tónlist- in verður? „Hugsunin á bak við það er að ffía fjármagn til þess að gera tón- listarprógrömm almennt. Ég er búinn að heyra þessi lög og finnst þau alveg hliðstæð því sem út hef- ur komið síðustu árin. Mér finnst útkoman reyndar betri núna, en það er smekksatriði." Nú er almennt talið að þessir þrír aðUar falli í hóp með alhörð- ustu skallapoppumm landsins. Er með þessu verið að gefa ákveðna línu? „Nei, þegar ákveðið var að leita til höfúnda var ekki verið að spá í hvers kyns viðkomandi væri eða hvort viðkomandi hefði starfað lengur eða skemur í þessari tónlist. Við reyndum auðvitað að hafa ekki alla höfundana jafngamla eða svoleiðis. Hins vegar hafa höfúnd- amir algjört sjálffæði um hvemig lagið er sem þeir skila inn.“ Er ekki verið að viðurkenna að söngvakeppnin sé skaUapopp og þvt verði ekki breytt? „Það var ekkert ffekar hugsað þannig af okkar hálfu. Þetta er bara einhver eilífðarpæling hvort eigi að stíla inn á hreina popptón- list eða ltvort Júróvisjón sé vett- vangur fyrir einhverja ffamúr- stefnu í lagasmíðum. Ég held að þetta sé ekki kjörinn vettvangur fýrir framúrstefnu.“ Hefði eldd verið nær að leita þjóðlegri einkenna en greina má í fjölþjóðlegri dægurtónlist (les: froðu) ofantalinna? „Mér finnst Júróvisjón ekki vettvangur fýrir Islendinga að sanna okkur í einhverri etnískri tónlist og veit ekki til hverra við ættum að leita, hvort við ættum að stifla upp með einhvern lang- spilsleikara eða hvað.“ Nú ert þú gamaU tónlistarmað- ur sjálfúr. Er þetta í samræmi við þinn eigin tónlistarsmekk? „Augljóslega stóð ég í að velja þessa höfúnda þannig að þú getur rétt ímyndað þér hvort það sé mér á móti skapi. Þetta er í samræmi við það sem við vildum gera í þessari keppni. Ég hef ekki safnað Júróvisjónplötum í gegnum árin, ef það er það sem þú ert að pæla. Við megum ekki gleyma því að þetta er dægurlagakeppni og hefur afltaf verið og hvort sem okkur finnst það smart eða ekki er það það sem þetta gengur út á. Mér finnst ekkert dónalegt eða slæmt við það að lög séu popplög og séu einfaldar og snotrar melódíur." Hvers vegna var þátturinn Á tali með Hemma Gunn lagður undir söngvakeppnina? Hefði ekki verið nær, auglýsingaiega séð, að hafa sérstakan dagskrárlið sem gæfi auluiar auglýsingatekj- ur? „Það er spurning um það hvort menn miða dagskrárgerð sína við auglýsingar eða við dagskrá sem slílta. Við fýlgjum ekld þeirri stefnu að búa til dagskrá sem mið- ast við að hala inn sem mestar auglýsingatekjur. Við lítum á út- sendingar okkar sem þjónustu en ekki viðskipti." Sjónvarpið ákvað í sparnaðarskyni að velja einungis þrjá höfunda til að semja framlag okkar í Júróvisjón. Það var gert til að reyna að hafa forkeppnina ódýrari en þær tólf milljónir sem hún kostaði í fyrra. Mörgum þótti höfundahópurinn einlitur og í ætt við skallapopp eins og sjá mátti í Hemma Gunn í gærkvöldi. Það er ótrúlegt hvernig þeir leyfa sér að fara með reyk- ingamenn á spítulum lands- ins. Það er farið verr með þá en skepnur, þeir eru nánast eins og fjórða og fimmta flokks borgarar,“ sagði Óskar Engilbertsson öryrki, sem nýlega hefur lokið tveggja vikna sjúkrahúsvist á Landspítal- anum. Áður hafði hann verið á Borgarspítalanum og segist hafa kynnst sama aðbúnaði þar. „Ég segi það enn og aftur; það er ekki einu sinni farið svona með dýr! Þó að aflir geti tekið undir fullyrðingar um skaðsemi reykinga þá blasir við að það er ekki rétti tíminn til að hætta að reykja þegar þú átt í veikindum eða ert að jafna þig effir uppskurð.“ Óskar segir slæmar sögur af aðbúnaði reyk- ingafólks á Landspítalanum, fólk verði að fara alla leið niður í kjall- ara þar sem megi reykja í litlu her- bergi sem manna á meðal er kallað Syndin. Þeir sem séu rúmliggjandi fari þangað með aðstoð ættingja í heimsóknartímum og rúmin kom- ist ekki einu sinni inn í reykinga- herbergið. Oftar en ekki verði þeir ÓSKAR ENGILBERTSSON: Fólk verður að fara alla leið niður í kjall- ara til að reykja á Landspítalanum. því að vera frammi á gangi í kjall- aranum, þar sem sé bæði dragsúg- ur og kuldi. Svipaður aðbúnaður segir hann að sé á Borgarspítalan- um. Á geðdeild Landspítalans þurfi sjúklingar einfaldlega að fara út til að reykja og skipti þá engu máli hvernig veður sé. Aðstæður starfsfólks eru engu betri segir Óskar, — það verður einfaldlega að reykja úti. „Reykingar eru einhver versta ávanabinding sem yfir menn getur dunið og mér finnst grimmúðlegt að ætla að láta menn hætta því þegar svona stendur á. Ég veit urn fólk sem hefur liðið miklar þján- ingar aukalega vegna þess. Þegar ég fór niður að reykja þurfti ég að dröslast með tvær stangir með slöngum fyrir fæði og blóð og klæða mig í öfl tiltæk föt til að lifa kuldann af,“ sagði Óskar, en þess má geta að þegar hann lá á Borgar- spítalanum fýrir tveimur árum var komið með mann þangað sem hafði stokkið út um glugga á þriðju hæð geðdeildar Landspítalns til að komast í reykingaffelsi. PKESSAN talaði einmitt við þennan mann á sínum tíma. Óskar sagðist ekki vera ffá því að margir sjúklingar væru sama sinnis. „Þá vil ég geta þess að bæði læknar og hjúkrunarkonur sögðu mér að reykingamenn væru yfir- leitt fýrr útskrifaðir vegna þess að þeir færu fýrr á stjá til að komast í reykherbergin og væru fýrr ferða- færir fýrir vikið.“ Um atvinnuleysi? „Ef Pálmi Jónsson eða Matthí- as Bjarnason hefðu verið for- sætisráðherrar í núverandi stjórn — réttir menn á réttum stað — væri ekki eins mikið atvinnuleysi og hörmungar og þjóðin þarf að glíma við í dag. Við mundum ekki vita af at- vinnuleysinu. Þeir hefðu getað skipt þjóðarkökunni réttlát- lega. Annars hefur þjóðin gott af því að lifa svolítið atvinnu- leysi. Mér finnst alveg voða- legt hvað börnin eru orðin mat- vönd. Af núverandi ráðherrum eru í mesta lagi fjórir sem mættu sitja í næstu stjórn, Jó- hanna og Sighvatur og svo eru Össur og Halldór minn Blöndal efnilegir." Reykingamenn kvarta yfir aðbúnaði á spítulum landsins I reykingalausu víti í veikindum — segir Óskar Engilbertsson, reykingamaður og sjúklingur 4 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 24. FEBRÚAR 1994

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.