Pressan - 24.02.1994, Side 8

Pressan - 24.02.1994, Side 8
Páll Einarsson, fyrrverandi flugmaður Krefur Cargolux um 215 milljónir króna í skaðabætur Hæstiréttur í Lúxemborg hefur dæmt Cargolux skaðabóta- skylt. Leitaði sér aðstoðar vegna fráhvarfseinkenna af notkun verkjalyfja. Yar úrskurðaður „geðveikur“ af geðlækni, sam- kvæmt tilvísun Cornerstone-meðferðarstofnunarinnar, sem er með þjónustusamning við Cargolux. Sú stofnun er rekin af íslenskum rafvirkja á Flórída. Geðrannsókn á íslandi og í Lúxemborg úrskurðaði hann síðan heilbrigðan. Missti vinn- una, konuna og húsið. Rom upp um vopnasmygl Cargolux á meðan á málaferlum stóð. PÁLL EINARSSON: Sagan er ótrúleg, en það fá engir peningar bætt skaðann. Lögfræðingar Páls Einarsson- ar lögðu þann 13. janúar sl. skaðabótakröfur að upphæð 215 milljónir króna fyrir hæstarétt í Lúxemborg, vegna ólögmætrar og „níðingslegrar“ (abusive) uppsagn- ar Páls úr starfi flugmanns hjá Car- golux þann 21. mars 1985. Saga Páls eins og hann segir hana er um margt ótrúleg og er saga baráttu einstaklings við geðlæknabatteríið, dómstóla og lögfræðinga Cargol- ux. Hann tapaði vinnunni og segist hafa tapað konunni og húsinu í þokkabót. Þrátt fyrir væntanlegar skaðabætur verði skaðinn aldrei bættur. Leitaði aðstoðar vegna frá- hvarfseinkenna lyfjanotkun- ar... Páll segir söguna hafa hafist 1983. Þá hafi hann um nokkurn tíma þurft að taka verkjatöflur vegna beinþynningar. Hann hafi fengið slæm fráhvarfseinkenni þeg- ar hann hætti á þeim lyfjakúr og leitað sér aðstoðar hjá fyrirtækinu Comerstone Institute. Það er meðferðarfyrirtæki staðsett á Flór- ída, en með útibú í nokkrum lönd- um og hefur verið með þjónustu- samning við Cargolux. Páll segir Cornerstone Institute rekið af Stef- áni Jóhannssyni, sem sé rafvirki að mennt „en haíi farið á níu mánaða námskeið og líti nú á sig sem sér- fræðing í meðferðarmálum af ýmsu tagi“. Stefán hafi ekki viljað gefa Páli vottorð nema hann talaði við geðlækni. Páll segist hafa fallist á það að lokum, en síðan lent í deilu við geðlækninn sem vildi gefa honum lyf við fráhvarfseinkenn- unum. Páll neitaði slíkri lyfjagjöf, enda hafði honum áður verið ráðið frá slíku. Hann féllst þó á endanum á að taka lyfið Lithium, enda vissi hann að það ylli ekki alvarlegum fráhvarfseinkennum síðar. Geð- læknirinn skilaði hins vegar skýrslu þar sem hann stakk upp á þeirri sjúkdómsgreiningu að Páll væri geðveikur og átti sú skýrsla eftir að verða Páli afdrifarík, þó svo sami læknir hafi síðar snúið sjúkdóms- greiningu sinni á hvolf og ekki talið Á leið í brúðkaupsferð 1970. neinn grundvöll fyrir greiningu sinni. Taka lyfsins Lithiums tafði hins vegar brotthvarf fráhvarfsein- kennanna, sem lýstu sér m.a. í magakrampa. Hann fór þvi til Is- lands og á Vog, þar sem hann losn- aði við öll fráhvarfseinkenni á þremur vikum. Úrskurðaður geðveikur Laus af Vogi hélt Páll nú utan til Lúxemborgar og ætlaði að hefja aftur störf. Cargolux hafði hins vegar fengið veður af skýrslu geð- læknisins og vildi færa tryggingar sínar á Páli sem flugmanni yfir á breskt tryggingarfélag. Til að það gæti gengið hefði Páll hins vegar þurff að þaga yfir skýrslu geðlækn- insins og hefði þá verið að gefa rangar upplýsingar og verið rétt- laus ef upp kæmist. Hann lagði því skýrslu geðlæknisins á borðið fyrir Cargolux og spurði þá hvort það væri rétt að hann væri að fljúga með vottorð upp á að hann væri „brjálaður"? Hann vildi fara í geð- rannsókn, sagði að annað gengi ekki upp. Cargolux ætlaði þá að reka hann fýrir að neita að fara í flug. Flugmannafélagið skakkaði þá leikinn og benti forráðamönnum Cargolux á að ef Páll flygi með „geðveikisvottorð" upp á vasann væru hann og flugfélagið ótryggð. Páll væri því að taka ábyrga af- stöðu. Hann fékk þá þriggja vikna frí með læknisvottorði og átti að nota það til að finna út hvort hann væri heill á geðsmunum eða ekki. Það gekk frekar illa og á endanum fór hann heim til íslands og til sál- fræðings sem var hér á vegum Car- golux. Sá heitir Jóhann Loftsson, starfar í Reykjavík og er félagi Stef- áns Jóhannssonar, þess sem rekur Cornerstone-stofnunina í Flórída. Sjúkdómsgreiningin sem Jóhann gaf síðar er rituð á bréfsefni Corn- erstone Institute, enda starfar Jó- hann með Stefáni í fýrirtækinu. Páll segir Jóhann hafa úrskurðað sig geðveikan án frekari rannsókna og viljað að hann færi á lyf og inn á spítala. Páll sagðist ekki vilja á neinn lyfjakúr, nema þá að undan- genginni geðrannsókn sem sýndi fram á þörf á slíku. Staðhæfir Páll að á þessum tíma hafi Jóhann haft undir höndum seinni skýrslu hins bandaríska geðlæknis, þar sem hann kemst að þveröfugri niður- stöðu við fýrstu skýrslu sína. Þar segir að ástand Páls hafi ráðist af fráhvarfseinkennum, ekki geðsjúk- dómi. „Ef Jóhann hefði dregið þessa skýrslu fram hefði ég getað framvísað henni til Cargolux og hafið störf að nýju með það sama,“ segir Páll. Lék sig geðveikan til að fá heilbrigðisvottorð Páll segist síðan hafa beðið Jó- hann að senda læknisvottorð út til Cargolux, þar sem hans fýrra vott- orð væri að renna út. Það vottorð barst hins vegar of seint og þegar Páll var svo rekinn 21. mars var ástæðan sú að hann hefði ekki mætt til vinnu í þrjá daga — og ekki framvísað læknisvottorði! Páll segir að það hafi verið ómögulegt að koma sálffæðingnum í skilning um að hann væri að fara fram á geðrannsókn vegna þess að hann vildi sýna fram á að hann væri ekki geðveikur, — sálfræðingurinn virt- ist álíta að Páll teldi sig geðveikan og hefði því leitað til sín. — Jóhann hafði sent skýrslu til Cargolux, dag- setta 20. mars, sem var samin upp úr fýrstu skýrslu hins bandaríska geðlæknis, þar sem stóð að Páll væri geðsjúkur og færi sjúkdómur hans hraðversnandi. Páll brá því á það ráð að láta eins og geðsjukling- ur sem leiddi til þess að hann var sviptur sjálfræði og „hent inn á Klepp“ þann 1. apríl. Þegar þangað var komið hætti hann hins vegar að „haga sér eins og fífl“ og fékk þá geðrannsókn sem hann vildi. Eftir sextán daga geðrannsókn varð nið- urstaðan sú að hann væri heill á geði. I niðurstöðu sálffæðilegrar at- hugunar á Páli, sem undirrituð er af Júlíusi K. Bjömssyni sálfræð- ingi, kemur ffam að „um rnjög vel greindan einstakling sé að ræða, með jafna dreifingu hæfileika. Þeg- ar prófanir eru gerðar virðist hann í góðum raunveruleikatengslum, laus við ofvirkni, hamlandi kvíða og depurð, jafhframt því að hafa góða stjórn á atferli sínu. Ekki bar á ranghugmyndum eða öðrum hugsanatruflunum í próftökunni. Prófin benda til að Páll sé úthverf- ur, impulsivur og nokkuð laus við hömlur, jafhffamt því að hafa góða sjálfsímynd og sjálfstraust“. Auralaus í málaferii „Mig vantaði eitthvað til að stoppa þetta geðveikikjaftæði. En á meðan ég var í geðrannsókn talaði Jóhann sálffæðingur við bróður rninn og sagði honum að ég væri geðveikur og gæti t.d. ekki farið með peninga og bróðir minn sagði konu minni þetta ffá sálffæðingn- um. Ég komst sjálfur ekki út til Lúxemburg fýrr en í ágúst, því að þegar ég kom út af Kleppi var ég auralaus, það var búið að löka reikningnum í bankanum og ég gat ekki borgað reikninga. Það endaði með því að strákarnir smygluðu mér út með Flugleiðavél. Ég gekk síðan í að koma mínum málum af stað, auralaus. Ég fékk að búa í eitt og hálft ár hjá Valgeiri Tómasi Sigurðssyni, veitingamanni á Cockpit Ínn, og hann hjálpaði mér í málinu. Ég fékk ekki atvinnuleys- isbætur, því þeir vísuðu mér til ís- lands að sækja þær. Þar á ofan hafði Cargolux skrifað atvinnuleys- isskrifstofunni bréf þar sem ég var sagður hafa brotið alvarlega af mér í starfi. Samkvæmt napóle- ónskri lagahefð, sem er við- tekin í Lúxemborg, var það mitt að sanna að svo væri ekki. Ég stóð í málaferlum í þrjú og hálft ár, þar til ég vann málið og fékk bætur, og á meðan þurfti ég að vera staðsettur í Lúxemborg og skrá mig þar atvinnulausan. Á meðan á þeim réttarhöld- um stóð var ég allt í einu í málflutningi , Cargolux kominn með þrjá geðsjúkdóma, sem er sennilega heimsmet ef rétt reynist! Þessi saga er svo ótrúleg að það trúir henni enginn.“ Kom upp um vopnasmygl Cargolux „Lögffæðingur Cargolux gerði ekki annað en að rægja mig í dómsölum og í lok árs 1986 skrif- aði ég forstjóra félagsins bréf og sagðist mundu upplýsa um óþægi- leg mál fýrir félagið ef þessu linnti ekki. Síðan beið ég í eitt ár og lét þá Magnús Guðmundsson blaða- mann, sem þá var á Vikunni, fá söguna um vopnasmygl Cargolux í Falklandseyjastríðinu 1982. Þeir höfðu þá nýverið orðið uppvísir að slíku smygli og lofað bót og betrun, en þetta kom í kjölfarið. Það varð allt vitlaust í Lúxemborg þótt þetta vekti ekki mikla athygli hér heima. Þeir kærðu mig fýrir sakadómi, en ég safhaði gögnum sem sýndu ffam á þetta, kærunni var vísað frá og ég sýknaður,“ segir Páll. Síðan gerðist það í ágúst 1989 að at- vinnudómstóll dæmdi uppsögn Páls Einarssonar ólöglega en ekki „níðingslega“ (abusive). Þá fékk Páll greitt „skilnaðarkaup“ eða bætur upp á um fjórar milljónir króna og flutti til íslands. „Þá var ég búinn að fara í aðra geðrann- sókn í Lúxemborg sem sagði að það væri ekkert að mér. Það var nauðsynlegt, því geðrannsókn ffá íslandi var ekki tekin gild fyrir dómi úti. Cargolux sneri þá blað- inu við og sagði að fýrst það væri ekkert að mér, og hefði aldrei ver- ið, hefði ég bara verið að útvega mér þessa skýrslu frá geðlækninum til að krækja mér í ólöglegt ffí! Sem þýðir raunverulega það, að ég hefði átt að halda áffam að fljúga þrátt fýrir fyrstu skýrslu geðlæknisins, eða m.ö.o. að það sé í lagi að geð- veikir menn fljúgi flugvélum í Lúx- emborg. Með þetta fórum við inn í Hæstarétt og þar gufaði þessi fá- ránlegi málflutningur Cargolux upp. Málflutningur hefur staðið fyrir Hæstarétti síðan dómur at- vinnudómstólsins var kveðinn upp, óslitið í á fjórða ár.“ Krafist 215 milljóna króna og frekari kröfur hugsanlegar Þann 30. september kvað Hæsti- réttur upp þann úrskurð að upp- sögnin væri óréttmæt eða „níð- ingsleg“ eins og Páll vill þýða hug- takið abusive. „Það þýðir að Car- golux er skaðabótaskylt fýrir öllum þeim skaða sem hef orðið fýrir síð- an uppsögnin átti sér stað. Skaðinn núna er orðinn 215 milljónir króna, samkvæmt mati lögmanna minna. Síðan eiga sérffæðingar réttarins eftir að fara yfir þetta og leggja sitt mat á réttmætar bætur. Lögmaður rninn telur það hins vegar algjört kjaffshögg ef ég fengi ekki meira en 40 milljónir króna. Hann á von á meiru. En ég missti líka atvinnuna, fjölskylduna, konan leitaði sér huggunar hjá öðrum manni, við töpuðum hús- inu og starfsferiUinn er á enda. Fyrir utan þá þol- raun að þurfa að standa í þessu öllu — afgreiddur geðveikur af mörgum, því slíkur stimpill þvæst seint af — og að vita aldrei hver endanleg niðurstaða yrði. Maður fær því skað- ann aldrei bættan með einhverjum peningum. Ég hef líka íhugað málsókn á hend- ur Stefáni Jóhannssyni hjá Comer- stone Institute, þar sem geðrann- sókn þeirra kom þessu af stað. En Cargolux hefur hingað til neitað því að ég hafi verið rekinn á grunni þeirrar rannsóknar, heldur sagt að ég hafi verið íjar\'erandi í þrjá daga án læknisvottorðs. Á meðan á mál- sókn minni á þá stóð gat Cargolux illa viðurkennt að það hefði verið ástæðan því þá hefðu þeir tapað málinu umsvifalaust. Nú þegar niðurstaða er fengin gæti það breyst. Lögmaður minn í Orlando segir að viðurkenni Cargolux þessi tengsl, þá sé þetta borðleggjandi krafa á tryggingarfýrirtæki Stefáns upp á nokkrar milljónir banda- ríkjadollara," sagði Páll Einarsson að lokum. Páll H. Hannesson „EfJóhann hefði dregið þessa skýrslu fram hefði ég getað fram- vísað henni til Cargolux og hafið störfað nýju með það sama. “ 8 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 24. FEBRÚAR 1994

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.