Tíminn Sunnudagsblað - 27.05.1962, Blaðsíða 2
Skutu örvum á flugvélina
Flugmaðurinn lækkaði flugið og tók þessa mynd. Nokkrlr menn standa við
enda hússins og finnst flugvélin sennilega vera ógurlegt skrímsli. Þetta
er húsið, sem flugmaðurinn kom fyrst auga á.
í fyrra v?r3 flugvél vör við
þjóðflokk lengst inni í frumskóg
um Venezuela, sem er með öllu
ókunnur.
Flugvélin hafði farið frá flug-
velli við Maracaibovatn í Venezu-
ela og flaug yfir frumskóginn í
átt að nágrannaríkinu Columbíu.
— Séð úr Iofti líkist frumskógur-
inn einna helzt storknuðu hafi.
Enginn hvítur maðu.r hefur
nokkru sinni brotið sér leið í
gegnum þennan mikla og hrika-
lega skóg. Á kortinu af Venezu-
ela heitir þessi frumskógur Moti
lene-svæðið, en enginn veit, hvað
hann hefur að geyma. í hvert
einasta skipti, sem menn hafa
flogið yfir skóginn, hafa þeir svip
azt um eftir ei.nhverju, sem gæti
verið lífsvottur, en án árangurs.
Nú bar hins vegar annað við:
Skyndilega sá flugmaðu.rinn reyk
stíga upp úr skóginum og beindi
hann stefnunni þegar í áttina að
honum. Sá hann þá, að reykur-
inn kom frá rjóðri í skógitium,
og í rjóðrinu sá hann eitthvað,
sem einna helzt líktist báti á
hvolfi.
Þegar hann hafði lækkað flug-
ið til þess að athuga það nánar,
sem fyrir augun bar, varð honum
ljóst, að hann hafði af hreinni
tilviljun uppgötvað þjóðflokk,
sem fram að þessu hafði verið öll
um ókunnur. Þegar hann athug-
aði „bátinn“ betur, sá hann, að
þetta var hús. Nokkrar inngöngu-
dyr voru á því, og frá hverjum inn
gangi lá stígur, sem hvarf in.n í
skóginn.
Er flugmaðurinn lækkaði flug-
ið enn meira, varð hann greini-
lega var við, að þorpsbúar voru
ekki sérlega hrifnir af þeim á-
huga, sem hann sýndi þeim. Þeir
spenntu bogana og.örvarnar þutu
upp í loftið, svo að flugmaður-
inn neyddist til þess að hækka
flugi^ aftur. Hann tók myndir af
rjóðrinu og hélt síðan áfram ferð
inuú. En hann hafði ekki flogið
langt, þegar hann uppgötvaði enn
eitt þorp, sem var af sömu gerð
og hið fyrra.
Menn hefur lengi grunað, að í
frumskógum Suður-Ameríku væru
til þjóðflokkar, sem enginn hvít-
ur maður hefði augum li-tið. Þessi
grunur staðfestist fyrir nokkrum
árum með mjög áþreifanlegum
hætti: Tveir trúboðar, sem voru
í þann veginn ag hefja trúboðs-
starf meðal Indíána á þessum slóð
um, — sem talsvert hafa komizt
Framhald á bls. 310
Báðar þessar myndir eru af hinu húsinu, sem flugmaðurinn fann, þegar hann var á leiö frá því fyrra. Takið eftir
sfígunum, sem liggja eins og geislar út frá húsinu.
290
T í M I N N
SUNNUDAGSBLAÐ