Tíminn Sunnudagsblað - 27.05.1962, Blaðsíða 18
Marstrand. Efst á myndinni er virkið Karlsten, sem talið var óvinnandi, en Tordenskjold hernam það án þess að hleypa
af einu skoti.
SJÓHETJAN TORDENSKJOLD
I byrjun aprílmánaSar áriS 1714
barst Friðriki Danakonungi bréf frá
ungum sveini, sem nefndi sig Peter
Jansen Wessel. í bréfi þessu, sem upp
hefst á mjög lotningarfullum ávarps-
orðum, biður þessi ungi maður erfða-
lconunginn allra náðarsamlegast að
veita sér inngöngu í skólaherflokkinn
á Hólminum. Wessel var Norðmaður,
og þegar hann skrifar þetta bréf, er
hann fimmtán ára að aldri og laus
undan forsjá föður síns fyrir tveim
árum. Þrettán ára gamall hafði hann
haldið til Danmerkur og hafði, þegar
hér var komið sögu, verið búsettur
hjá hirðpresti einum, að nafni Pétur
Jespersen, í tvö ár. Honum féll ekki
vistin sem bezt hjá nafna sínum,
fannst lífið á heimili hans snautt af
þeim ævintýrum, sem hugur hans
girntist. Hann langaði til þess að kom-
ast í siglingar og kynnast þeim ævin-
týrum, sem hann þóttist viss um, að
heimurinn væri yfirfullur af.
Konungurinn bænheyrði hann. Og á
árunum 1706—08 sigldi Wessel á
þrælaskipum, sem voru í förum milli
Vestur-Afríku og Vestur-Indía, en
næstu tvö ár var hann farmaður á
skipum, sem sigldu til Austur-Ind-
lands.
Þegar hann hélt heim til Kaup-
mannahafnar síðla sumars 1710, geis-
aði orrusta milli Svía og Dana, og
börðust báðir aðilar af miklum móði.
Á þessum tímum höfðu Evrópulöndin
svo lítið samband hvert við annað, að
það var hægt að' heyja tvær styrj-
aldir samtímis í Evrópu, án þess að
nokkurt samband væri þar á milli.
í Suður- og Vestur-Evrópu höfðu ríki
þau, sem Frakkland hafði hernumið,
gert uppreisn, en Eystrasaltslöndin
höfðu hins vegar sameinazt gegn Sví-
þjóð og hinum kjarkmikla og vilja-
sterka konungi hennar, Karli XII.
Þesrsi síðast nefnda orrusta hefur
verið kölluð Nor'ð'urlandaófriðurinn
mikli. Og í henni vinnur Pétur Wess-
el hin mörgu og fræknu afrek sín,
sem skipa honum á bekk með mestu
sjóhetjum Dana. Dáðir hans hafa ver-
ið notaðar sem efni og uppistaða í
mörg skáldverk, þar sem hetjuskap er
sungið lof og prís. Mörg þessi kvæði
eru sungin enn þann dag í dag eins
og til dæmis: „Jeg vil sjunge om en
helt“, og í upprunalegri útgáfu kvæð-
isins Tordenskjold, sem fjallar um
dáðir Wessels, eru 48 vísur. Þar er
ævi hans dregin upp s'kýrum dráttum
í örstuttum Ijóðlínum. Tuttugasta og
þriðja vísa hefst á þessum orðum:
„Engang fra den svenske strand
gik han med sit folk í land . . .“
Sá atburður, sem þessar Ijóðlínur
gefa til kynna, átti sér stað snemma
vors 1714, þegar Wesrsel, sem var um
þessar mundir orðinn sjóliðsforingi,,
sigldi á freigátunni Lövendals Galej,
upp að ströndum Svíþjóðar. Hlutverk
hans var að fylgjast með gerðum
Loftmynd af Hirtshólmunum utan viS Fredrikshavn. Ósjald- . Fyrr á tímum var Fladstrand — nú Fredrikshavn — bæki-
an lá floti Tordenskjolds I varl vlð þennan hólma og beið stöð Tordenskjolds. Gamla púðurgeymslan stendur enn og
byrjar til stranda Svlþjóðar. mlnnir í fornar dáðlr.
306
T í M I N N
SUNNUDAGSBLAB