Tíminn Sunnudagsblað - 05.08.1962, Blaðsíða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 05.08.1962, Blaðsíða 2
EfVSILKA BBERBNG: EG MAN ÞANN MORGUN Þvílík þraut að vakna! Þjáningin seytlar um sál mína og líkama, og það fyrsta, sem ég skynja, er stirð- leikinn í limum mínum og hvað höfuð mitt er þungt — blýþungt, þar er þó engum „timburmönn- «m“ um að kenna, því að á þeim írum höfðu veigar Bakkusar varla vætt varir mínar! En ekki fæ ég að hníga í faðm svefnsins á ný, því að ég er hrist og skekin og heyri nú gegnum svefninn, að ein skólasystir mín kallar — og það heldur hvatskeytlega: „Svona, þú verður að vakna. Þórdís var að hringja og biðja um stúlku — “ Hún kemst ekki lengra í bili, því að í veikri von um undan- komu hvæsi ég: „Ertu vitlaus, manneskja? Það er frídagurinn rninn í dag“. En hún anzar — en nú i hluttekn- ingartón: „Stendur á sama, góða mín, þú veizt, að við höfum nóg að gera á dagvaktinni núna. Ein kona bætt- ist við í nótt og önnur er væntan- leg, og fröken Jóhanna segir, að þú eigir að fara, og þér er betra að hraða þér. Þórdís kernur í bíl hérna heim á lóðina til að sækja þig, innan fimmtán mínútna". Þar með var hún þotin, og ég þeyttist fram úr rúminu, nógu vel vöknuð til að muna, að nú var ekki um annað aö ræða en reyna að standa sig, því að ég var bara ljósmóðurnemi á þvi herrans ári 1935, og þá voru sannarlega engin vökulög gengin í gildi hjá ljós- mæðrum! Við vorum átta ljósmóðurnemar, sem skiptumst á þrjár vaktir: dag- vakt, sem vann frá klukkan sjö á morgnana til átta á kvöldin, með tveggja tíma hvíld um miðjan dag- inn — ef tími vannst til- Á nætur- vakt var einn nemi og þrír á fæð- ingarvakt, sem kölluð var. Þeirra aðalstarf var að taka á móti kon- um, sem komu til að fæða og ann- ast þær, unz/ allt var um garð gengið. Hvíld eða svefn fékk fæð- ingarvaktin ekki — hvað þá held- ur fri! — nema þegar hlé varð á , aðsókn, og allt bóklegt nám urðu nemarnir auðvitað að stunda i sín- um hvíldartíma eða frítímum. Auk ljósmóðurnemanna var svo einn hjúkrunarnemi og ein aðstoð- arljósmóðir, sem ávallt fylgdu dag- vaktinni, og svo auðvitað yfirljós- móðirin — fröken Jóhanna Frið- riksdóttir — sem öllu stjórnaði af sinni alkunnu röggsemi. Okkur nemunum þóiti' alltaf gaman og góð tilbreyting að „fara út“ með frú Þórdísi Carlqvist ljós- móður — og það var líka einn þátt- ur í námi okkar. Hún lagði sig jafn- an fram um að kenna okkur ein- mitt það", sem að gagni hlaut að koma seinna meir fyrir okkur er við stæðum einar i starfinu i heima- húsum úti um land. En í þetta skipti hafði ég kvöld- ið áður endað á óvenjulega erfiðri fæðingarvakt og fagnað því af heilum hug að vera svo heppin að eiga fridag að morgni og geta þá loksins sofið riægju mína En svona fór það! Eg tíndi á mig spjarirnar með hraði og sá varla, að sólin Ijómaði á þakgluggunum, þar sem við nemarnir höfðum okkar vistar verur, allar í einum geim, sem myndaði hálfhring kringum borð- stofu okkar og setustofu í senn, sem tjölduð var af milli burðar- stoða þaksins. Skemmtilegur bú- staður var þetta ekki, en kröfurnar voru aðrar þá en nú. Eftir fáar mínútur hljóp ég al- klædd niður stigann og sá stall- systrum mínum bregða fyrir á göng unum með barn eða matarbakka í höndum. Innan af deildinni barst þessi skemmtilegi og kunni kliður að morgni dags: Hlátur og gaspur hamingjusamra mæðra, org ung- barna, bjölluhringingar, hratt fóta- tak og glamur í borðbúnaði eftir fyrstu máltíð dagsins. Nú var svo mikið að gera, að allir voru á spani — allt varð að vera komið í ró og reglu, þegar Guðmundur prófessor Thoroddsen — með allt sitt fylgd- ariið — kæmi á stofugang. Það var öllum ljúft að reyna að þókn- ast prófessornum, hann elskuðu og virtu allir Ijósmóðurnemar — • og óefað fleiri! En nú var lítill tími til að gleðj- ast yfir gangasinfóníunni. Ég gaf mér ekki tíma til að bíða eftir iyft- unni, sem suðaði einhvers staðar Framhald á 549. síSu. 530 T t M 1 N N SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.