Tíminn Sunnudagsblað - 05.08.1962, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 05.08.1962, Blaðsíða 4
Það er fallegt við Breiðafjörð, og hann er eitt sögufrægasta hér- að á íslandi. Þar eru kostajarðir með margvíslegum hlunnindum og landgæði mikil. Einu sinni þótti eftirsóknarvert að búa við Breiðafjörð og í Breiðafjarðar- eyjum, en byggðin hefur minnk- að svo í eyjunum í seinni tíð, að naumast hefur annað hérað á landinu goldið annað eins af- hroð á jafnskömmum tíma. Lítið er eftir af fornri frægð eyjanna og bændur þar sárafáir, en þó rifjast það enn upp fyrir íbúum höfuðborgarinnár og vetrargest- um Reykjavíkur, að þar er mikið um sel og æðarfugl, þegar þeir setjast að kúfuðu þorratrogi í Naustinu og reka augun í sels- hreifana, sem Halldóri voru send- ir að vestan. — Bergsveinn Skúlason fræðimaður er Breið- firðmgur, nánar sagt eyjamaður, og hefur í stopulum tómstund- um gengið á vit fortíðarinnar og dregið fram í dagsljósið hálf- gleymda atburði, sem einu sinni gerðust við Breiðafjörð, og safn- að breiðfirzkum sögnum handa fjLlFIÐ I BREIÐAFJARÐAREYJUM þeim, sem kynnu að vilja stytta sér stundir við lestur þeirra og verða um leið nokkru fróðari um fjörð og fólk. Við vissum, að líf og atvinnuhættir í Breiðafjarðar- eyjum hafa löngum borið sér- stæðan svip, og eitt kvöld fyrir skömmu komum við að máli við Bergsvein Skúlason og báðum hann að segja okkur eitthvað um eyjarnar. — Fyrsta spurningin verður auð- vitað: Hver ertu? — Eg er Breiðfirðingur alllangt fi'am í ættir og fæddur í Hvallátrum á Breiðafirði 3. apríl 1899, en sama árið og ég fæddist fluttu foreldrar mínir 1 Skáleyjar, og þar ólst ég upp. Þau hétu Skúli Bergsveinsson og Kristín Einarsdóttir. Eg var í eyjun- um til 1931, en síðan bjó ég ag Múla á Skálmarnesi í Múlasveit, það er á Barðaströndinni að norðanverðu við eyjarnar, — og seinna 7 ár í Stykkis- hólmshreppi á Snæfellsnesi. Hingað suður flutti ég 1947. — Við hvað vinnurðu hér? — Eg hef verið verkamaður og unn- iS ýmis störf þennan tíma. — En fræðaþráin er þér í blóð borin? — Þag er nú iítið, ég hef verið að fást við þetta smávegis í tómstund- um mínum. Ritstörf samrýmast ekki vel verkamannavinnu. Þeir sögðu stundum karlarnir í Breiðaf'jarðareyj- um, að það ætti ekki vel saman söngur og sjóferðir, eins finnsrt mér það vera <32 T í M I N N SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.