Tíminn Sunnudagsblað - 05.08.1962, Blaðsíða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 05.08.1962, Blaðsíða 16
l.ans á staðnum, séra Oddur, kæmi til hans og mælti: „Sárt er það að sjá kunningja mína ríða og gaixga svo nærri mér, en geta ekki látið vita, hvar ég er“. Slíkar sögur bárust fljót-t um byggð- ir og héruð og gátu af sér mörg af- kvæmi. Þær voru eins og gróðrar- skúrir á frjósamar ekrur. Hinn þögli hópur, sem þyrpti sér þétt í hvilftum og lautum, brá á leik á vegi einfarans við skin stakrar stjörnu í skýjarofi — Solveig hvimaði í myrkum gátt- um „með höfuðið aftur á baki“. Indriði Einarsson segir svo í endur- minningum, að Solveig hafi í heila öld gengið Ijóslifandi í vitund hvers unglings í Skagafirði. Upp úr þessum jarðvegi spratt kvæði Einars Benediktssonar um hvarf séra Odds í Miklabæ, þegar meira en hundrað ár voru liðin frá atburðunnm, slungið rammri kyngi þjóðsögunnar og magnað beyg margra kynslóða, erfð skáldsins, sem sjálft komst í þau spor að standa ungt andspænis hálfbrostnum heiftarsjón- um deyjandi stúlku, þegar Sólborg Jónsdóttir á Svalbarði í Þistilfirði réð sér bana á eitri í höndum hans, sökuð um útburð barns, sem hún átti með bróður sínum. Mynd séra Odds og Solveigar er þar dregin upp óafmáanlega í bók- menntum íslendinga, líkt og þjóð- trúin hafði áður gætt hana lífi í vit- und fólks. Þegar hér var komið sögu, hafði kirkjugarðurinn á Miklabæ verið stækkaður, eins og áður hefur verið vikið að. Hermdu þá munnmælin orð- ið, að dys Solveigar hefði verið norðan undir kirkjugarðsveggnum austanverðum, og átti hún að hafa lent sem næst útmörkum garðsins, þegar við hann var aukið. Var þar upp úr síðustu aldamótum þúfa eða þúfur úti við kirkjugarðsvegginn, sem kallaðar voru leiði Solveigar. Árið 1910 var enn aukið við garð- inn. Skömmu fyrir jólin árið 1914 var svo gömul kona jörðuð í honum, og var henni valin gröf nálægt mörk- um gamla garðsins og viðaukans þar í nánd, er þúfur þær höfðu verið, er eignaðar voru Solveigu. Tveir sóknar- menn, Jóhannes bóndi Bjarnason í Grundarkoti og Sigurður nokkur Einarsson, tóku gröfina. Þegar þeir voru komnir alldjúpt niður, ■ varð fyrir þeim kista, er sneri út og suð- ur. Þá varð Sigurði að orði: „Hver skyldi þetta vera?“ „Ætli það sé ekki Solveig?" svar- aði Jóhannes. Þegar hreyft var við þessari kistu, sem lá þvert á hina nýju gröf, gliðn- aði hún sundur. Létu þeir Sigurður beinin úr henni í skúta þann, sem varð í bakka grafarinnar, þar sem gamla kistan hafði verið, en röðuðu fjölnnum úr henni meðfram kistu gömlu konunnar, er jarðsett var þarna. Heldur höfðu grafararnir hljótt um fundinn, en þó virðist þetta atvik hafa orðið fóturinn að sögunni um stígvélaða manninn. V. Svo liðu árin, án þess að til tíðinda bæri. Séra Oddur og Solveig virtust vera hætt að vitja Skagfirðinga í draumi. Saga þeirra orkaði ekki leng- ur á fólk með sama hætti og áður. Samt átti enn eftir að koma í ljós, að ekki var áhrifavaldi þeirra með öllu lokið. Það var upphaf þessa lokaþáttar í sögu séra Odds og Sol- veigar, að Jóhannes bóndi Jónsson á Þorleifsstöðum í Blönduhlíð, sem er næsti bær norðan Miklabæjar, var veturinn 1932 að dytta að fjár- húsvegg niðri á túninu. Ætlaði hann að byggja kofa sunnan undir veggn- um. Gamall haugur af mold og taði var þar, sem kofinn skyldi vera, og þegar bóndi fór að ryðja burt haugn- um, kom hann niður á bein. Héldu menn fyrst, að þetta væru kindar- bein, og var ekki farið gætilega með þau. Molnuðu þau því mjög í með- förunum, enda voru þau harla fúin. Seinna sást, að þetta voru manna- bein, og var þá farið að hyggja bet- ur að þessu. Virtist mönnum þá sem hola hefði verið grafin í hauginn og líki troðið niður í hana, mjög saman- kýttu, og var það dregið af því, að höfuðkúpa haugbúans lá milli lær- leggjanna. Sýnilegt var, að beina- grindin hafði legið þarna lengi, því að hryggjarliðir voru gerfúnir og rif flest. Aftur á móti voru tennur heil- ar og virtust þær lítt slitnar. Tók nú bóndi það ráð, að hann safnaði beinunum í kassa, er hann kom síðan fyrir i jötugarða nýja kofans, sem næst þeim stað. er þau höfðu áður legið á. Síðan leið og beið fram á sumar 1934. Þá fór Matthías Þórðarson þjóð minjavörður norður í Drangey til þess að _ rannsaka menjar um vist Grettis Ásmundssonar í eynni. Kom hann þá við á Þorleifsstöðum og hafði beinin, sem fundust í taðhaugnum við fjárhúsvegginn, með sér til Reykjavíkur. Spratt af þessu mikið umtal, og voru uppi um það ýmsar getgátur, hvernig á þessum beinum stæði. Þótti flest benda til þess, að þarna hefði verið fólgið lík myrts manns, og hölluðust margir Skagfirð- ingar að því, að þetta væru bein séra Odds Gíslasonar á Miklabæ. Hið sama sumar og Matthías þjóð- minjavörður flutti Þorleifsstaðabein- in til Reykjavíkur voru bein þeirra Friðriks Sigurðssonar og Agnesar, sem tekin voru af lífi við Vatnsdals- hóla árið 1830, grafin upp og jörðuð á ný með viðhöfn í kirkjugarðinum á Tjörn á Vatnsnesi, að fengnu leyfi Jóns Helgasonar, biskups. Var síðan bænasamkoma haldin á hinum gömlu brunarústum á Illugastöðum á Vatns- nesi, þar sem þau Friðrik og Agnes myrtu Natan Ketilsson og Fjárdráps- Pétur, svo sem alkunnugt er. Var þetta að hvötum konu einnar í Reykja vík, sem ritaði ósjálfráða skrift og kvaðst margsinnis hafa veitt viðtöku óskum frá öðrum heimi um það, að „reynt yrði að milda málstað þeirra Friðriks og Agnesar".. Þetta tvennt, umræðurnar um beinafundinn á Þorleifsstöðum og umstangið með bein Friðriks og Agn- esar, varð til þess, að hugur manna fór á ný að beinast að Miklabæjar- Solveigu. Hana tók að bera á góma á miðilsfundum í Reykjavík, og senn kom einnig í Ijós, að enn voru uppi draumamenn miklir. Þetta komst á hástig vorið 1937. Var þá sagt, að Sol- veig hefði sjálf komið fram á einum miðilsfundinum, ásamt fleirum, er studdu mál hennar, og farið þess á leit, að bein hennar væru tekin úr dysinni og flutt í kirkjugarðinn í Glaumbæ. Fylgdi það með, að hún hefði ekki drepið séra Odd, heldur hefði honum verið sökkt í Solkupytt svonefndan, yzt í Gegni, og þar lægju leifar hans enn. Voru svo á einhverj- um þessara miðilsfunda tilgreindir þrír menn, sem hrinda skyldu beina- flutningunum í framkvæmd — Pétur Zóphóníasson, ættfræðingur, séra Lárus Arnórsson á Miklabæ og þriðji maður, sem ekki hefur- verið opin- berlega verið nafngreindur og virð- ist ekki hafa látið þetta mál til sín taka. Þeir Pétur og séra Lárus vildu ekki víkja þessu frá sér, er tilmæl- unum var beint til þeirra. Fyrst hafði verið leitað til Péturs, og laust fyrir miðjan júnímánuð átti hann símtal við séra Lárus og sagði honum mála- vexti. Séra Lárus svaraði því, að hann væri fús til þess að eiga hlut að þessu máli, ef biskup landsins veitti leyfi sitt til þess að taka beinin upp og jarðsetja þau á ný í vígðri moldu. Hér var þó úr vöndu að ráða, þár eð ekki fylgdi tilmælunum nein leið- beining um það, hvar beina Solveigar væri að leita, heldur þess eins getið, að áreiðanlega myndu þeir menn vera í Skagafirði, sem vissu það. En nú rifjaðist upp sagan um beinin, sem varð vart við, þegar gamla kon- an var jörðuð árið 1914. Svo hittist á, að sonur þessarar konu, er annars átti heimili á Suður- landi, var staddur á næsta bæ við Miklabæ um þetta leyti. Varð það að ráði, að biðja hann að koma og vísa til leiðis móður sinnar, ásamt Sigurði Einarssyni, öðrum manna þeirra, er tók að henni gröfina. En nú fór svo, að þeim bar ekki saman, og munaði þar að minnsta kosti grafarlengd. Lét séra Lárus grafa þar til, að son- 544 T í M I N N SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.