Tíminn Sunnudagsblað - 05.08.1962, Blaðsíða 21

Tíminn Sunnudagsblað - 05.08.1962, Blaðsíða 21
þegar þær voru að bisa við karl, og heyrði þá, að hann sagði: __ Verið þið nú sterkar, en farið þó hægt með limina. Bóndi þreif nú Styrbjörn og setti hann upp á pallinn, en fann þá, að hann var furðu linur átaks að fram an. Gætti hann þá betur að, og fann að karl hafði troðið kodda framan á sig. Lauk skiptum þeirra svo, að Styrbjörn snaraðist út og stökk á bak hesti sínum hjálparlaust. Eitt sinn sagði Styrbjörn við ung an vergangspilt, er lítt hafði orðið til fjár á ferðum sínum: — Þú verður að bera þig hörmu lega. Eiigin nýiúnda SUNLENZKUR maður réðst í kaupamennsku til bónda eins á. Norð- urlandi, er þótti fremur kaldur í svörum. Kom hann að kvöldi i mein- lausu veðri á ákvörðunarstað og svaf vært fyrstu nóttina. Að morgni gekk hann út til þess að svipast um. Þótti honum illa hafa skipazt veður, því að komin var naprasta kuldabræla af norðaustri. „Hann er kominn á norðaustan“, sagði kaupamaður með hrollí, er hann kom aftur inn í baðstofuna. „Og það hefur hann nú verið síð- ustu þrjátíu árin“, svaraði bóndi, stuttur í spuna. Lífið í Breiða- f|arðareyjum Framliald af 535. siðu. því að einu sinni voru mörg höfuð- ból við Breiðafjörð og í Breiðafjarð- areyjum. Það ei enn hægt að lifa góðu lífi við hinn fagra og gæðamikla Breiðafjörð. Þeim, sem hann ól, er hlýtt til hans, og þar er sumarfallegt. Hann er börnum sínum góður, ef þau svíkja hann ekki. — hjp. —O— Leiðrétting: Inn í viðtalið við Lárus Rist í 20. tölu- biaði Sunnudagsbiaðsins slæddist. vegna mismælis sú villa, _að móðir hans hefði verið Jakobína Jakobsdóttir frá Sogni í Kjós. Þetta er rangt eins og kunnugir vita. Móðir hans var Ingi- björg Jakobsdóttir frá Valdastöðum. í viðtali við Guðmund frá Hrófá í 21. tbl. hefur bæjarnafnið Þiðriksvellir misritazt Þyrilsvellir. Margt er undarlegt - Framhald af 531. síðu. misstórar — fjórar stórar f toppinn á sumum eintökum, en á öðrum skipt- ust á misstórar körfur efst. Sumir stönglar lágu hálfflatir og voru þá aðeins blöð á efra borði, en blaðör ein á hinu neðra. Ekki veit ég, hvernig á þessum samvexti eða óeðli stendur, í Noregi kenna sumir um jurtalyfjum, en aðr- ir geislunum eða í þriðja lagi stökk- breytingum af ókunnum ástæðum. Gefið gaum að gróðrinum. Ef til vill finnjð þið fjögurra laufa smára. Börn í Reykjavík fundu fyrir nokkr- um árum nokkra fimmlaufa, einstaka sexlaufa og einn sjölaufasmára. Býð- ur nokkur betur? Ingólfur Davíð'sson. EG MAN ÞANN MORGUN Framhaid af 530. síðu. niðri á hæöum, en hljóp niður alla stiga. Á tröppunum varð ég þó að hægja ferðina til að svelgja i mig svalt og tært morgunloftið — og hvílíkur morgunn! Allt glitraði bók- staflega í sterku sólskininu og sterkan gróðurilm lagði að vitum manns frá jörðunni, sem var að vakna af vetrardvalanum. Þá mundi ég það allt í einu, að það var sumardagurinn fyrsti; en þetta voru nú aðeins augnabliks hughrif, því að enn herti ég á sprettinum vestur fyrir hornið á spítalanum, og — jú, heppin var ég! Svartur leigubíll var að renna heim braut- ina með frú Þórdísi Carlqvist hvít- klædda og værðarlega í hvíldar- stellingu í aftursætinu. — Skiljan- legt reyndar, að hún væri minni eftirvæntingu haldin en ég, nem- inn, sem allt þurfti að læra og öllu að venjast fyrir væntanlegt starf mitt í stétt ljósmæðra. En nú sagði hún mér, að í þetta skipti þyrft- um við engum erfiðleikum að kvíða, því að þarna þekkti hún til og þar væri allt í lagi. — Með þessu innti hún að þvl, að ég var stuttu áður með henni þar, sem átakan- legir atburðir gerðust. En nú var létt yfir öllu og siðustu leifar svefndrunga míns svifu út í buskann, er við beygðum á leið aust- ur úr bænum,-því að nú var ferðinni heitið alla leið inn i Kleppsholt. Það þótti nú góður spölur í þá daga og ekki hratt ekið, svo góð- ur var ekki vegurinn orðinn, en út- sýnið var þeim mun betra. Þetta var yndisleg ökuferð. í þá daga máttu „hestar postulanna" bera fátæka ljósmóðurnema flest sem þær fóru, svo að það var nú sann- arlega nýnæmi að dilla sér í dún- mjúku bílsæti og drekka svo í sig fegurð þessa dásamlega morguns. Víst er bærinn okkar fallegur í dag, en ekki fannst mér hann síðri þá. Reykjavík vorra daga getur státað af mörgum og dýrum mannvirkj- um, en óneitanlega hafa sum verið reist á kostnað hinnar dýrðlegu, - ósnortnu náttúrufegurðar. Og í þetta sinn fannst mér Laugarásinn rísa fagurlega framundan með sínu gráa grjóti og grænkandi grastopp- um, með hvíta gufuslæðu frá gömlu þvottalaugunum á aðra hönd, en blikandi, lognslétt sundin á hina. Eyjarnar móktu letilega í logninu, lítið farnar að breyta sín- urn gula vetrarbúningi, en Esjan teygði sig tignarleg upp í bjartan himinblámann með hvítan fald á höfði Það lá við, að mig svimaði af sælublöndnum fögnuði vfir feg- urð hins íslenzka vors. Við stigum út úr bílnum sunnan tii í ásnum, þar sern hús sængur- konunnar stóð hátt uppi ) brekk- unni. Þangað upp eftir löbbuðum við eftir grýttum götutroðningi og bar ég ljósmóðurtöskuna. Litla hús- ið, sem við áttum erindi í, stendur enn þá í brekkunni — gott ef það er ekki eini kofinn, sem eftir er á þessu svæði. "ög í hvert sinn. sem mér verður litið þangað. streymir fögnuður þessa fagra morguns fram í huga minn, þó að húsið væri lágreist og húsgögn fátækleg — jafnvel s þeirra tíma mæli- kvarða — þá leið manni þar vel. Andrúmsloft hvers heimilis fer ekki eftir íburði eða ytra skrauti. Ekki leizt þó frú Þórdísi á blik- una, þegar móðirin væntanlega mætti okkui á tröppunum hlæj- andi og hress að sjá, kvað hún sig þó ekki hala neitt gabb í huga og vildi gjarnai, „ljúka þessu af“ sem fyrst, en í bili gætum við þó komið inn í eldhúsið með sér og fengið kaffisopa — svo sæi maður nú til. Kaffið var þegið með þökkum og gamanyrði óspart látin fjúka yfir borðum — ekki sízt^ eftir að hús- bóndinn bættist í hópinn. Þvi næst var gengið inn í iitlu stofuna þar sem húsmóðirin hafði búið um sig á legubekk, en húsbóndinn fór inn í svefnherbergið, sem var þar inn af til að koma krökkunum á fætur og út í góða veðrið, áður en þau færi að gruna neitt — ekki man ég nú, hvað mörg þau voru fyrir. Brátt var ég send fram til að sjóða áhöldin og Þórdís fór að huga að öðrum undirbúningi; var mér ekki grunlaust um, að ein lítil sprauta hefði komið þar við sögu. Það eitt er víst, að innan hálftíma T í M I N N SUNNUDAGSBL^ 549

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.