Tíminn Sunnudagsblað - 05.08.1962, Page 3
T í M 1 N N - SUNNUDAGSBLAÐ
í NÁTTÚRUNNAR RÍKI
Hvert barn þekkir sóley á túni. En hafið þið séð hana
með kúlulaga blóm og 15—-20 smá krónublöð? Þá er hún
kölluð ofkrýnd, líkt og margar ræktaðar rósir. Frævlar og
frævur hafa breytzt f krónublöð, sem verða við þetta óvenju-
lega mörg. Jurtin leggur allt í fegurðina, en þroskar þá ef
til vill fá eða engin fræ.
Ofkrýnd holtasóley, með um 20 krónublöð, fannst norður á
Melbreið í Fljótum.
í Reykjavík fannst fyrir nokkrum árum mjög einkennilegur
dvergfífill (bellis) í garði. Upp úr körfu hans uxu stönglar,
sem báru smáar körfur f toppinn. Svipað fyrirbæri þekkist
hjá fjalldalafífli. Blágresi ber venjulega blá blóm. En stöku
sinnum finnst blágresi með hvít eða jafnvel rósrauð blóm. Til
eru líka hvít krækiber.
Allir þekkja baldursbrá. En hafið þið rekizt á baldursbrár
með flata stöngla og körfur? Þannig lagaðar hafa þær fund-
izt hér og hvax í Reykjavík og á Akranesi, að minnsta kosti
síðan um 1950. 13. júlí í sumar fundu börn nokkrar slíkar í
Kópavogi. Sú stærsta mældist 41 sm. á hæð og breidd hins
flata stönguls 8 sm., en þykkt aðeins 3 mm. Árið 1952 sá ég
aðra flata, 65 sm. á hæð, en breidd stönguls 7 sm., þykkt 2 mm.
Körfur beggja voru flestar aflangar eða jafnvel bugðóttar,
líkt og ormur. Tvær körfur sums staðar vaxnar saman eins
og myndin af Kópavogsbaldursbránni sýnir. Litlar, eðlilegar
körfur bax hún neðan við flötu körfurnar, sem voru mjög
Framhald á 549. síSo.
4 ÞESSAR einkennilegu baldursbrár fundu börn í Kópavogi 13.
ÍúlH sumar. Sams konar baldursbrár meS flata sföngla og fjölda
margar körfur, meira og minna samvaxnar, sá ritstjór! þessa
á blaós þar fyrir nokkrum árum. — (Ljósmynd: Ingólfur Davíðsson).
531