Tíminn Sunnudagsblað - 12.08.1962, Side 3
r‘-v, i
j
ÞaS eru reist félagsheimili vfSar en á íslandi. baS
gera þeir líka suSur á Fijieyjum. Þar hvíia ekki þungar
kvaSir á mönnum, þvi aS eyjarnar eru gjöfular og lifn-
aSarheeftir fábrotnir. En þeim mun meiri nauSsyn er aS
eiga samkomuhús, því aS nægur tími er til þess aS
skemmta sér i þvi viS söng og dans. ÞaS er þvi eln
helzta skyldukvöSin, sem hvílir á mönnum sameiginlega,
að byggja samkomuhúsin og halda þeim við.
Þegar byggja skal nýtt samkomuhús eru kvaddir til
menn úr næstu þorpum, oft hundruSum saman. Þeir
velja stór tré, sem þeir höggva og draga síðan stundum
langa vegu að hússtæðinu. Þótt trjábolirnir séu þungir.
verSur þeim ekki skotaskuld úr því aS koma þeim á leið-
arenda og fella þá í húsgrindina, svo sem vera ber, því
að ekkl skortir mannaflann. Margar hendur vinna létt
verk, og allt, sem átök þarf við, gerlst með söng. Þeir
einbeita sér eftir hljómfallinu.
Það eru ekki nein smáhýsi, sem þeir reisa. Sam-
komuhús þeirra eru bæSi stór um sig og mjög há. Sjálfir
veggirnir eru að vísu lágir, þótt firnaþykkir séu, venju-
lega þrjár álnir á þykkt, en risið er hátt. Þegar viSir
alllr hafa verlð reistir og felldir í sínar skorður, er gert
þykkt stráþak á húsið, en veggir eru þaktir blöðum að
íSx«'i<wK'
T f M I N N
SUNNUDAGSBLAÐ
555