Tíminn Sunnudagsblað - 04.11.1962, Side 4
vatnsins. — Til hægri: Tjöld veiðimanna við Baulárvallavatn. — Myndirnar allar teknar af Magnúsi Karli
MED MAGNÖSI KARLI ANTONSSYNI
UM ÚTBOTNA HELGAFELLSSVEITAR
Magnús Karl Antonsson er verzl-
unarmatSur í Ólafsvík. Hann hefur
ekki átt heima á Snæfellsnesi nema
í rúm fimm ár, en eigi að síður er
harrfi orðinn þar kunnugri staðhátt-
um en margur, sem mun lengri dvöl
hefur átt þar. Þessi fimm ár hefur
það sem sé verið yndi hans og ár-
átta að kynnast því héraði, þar sem
lífið hefur haslað honum völl. Hann
hefur haldið að heiman, hvenær sem
tómstund hefur gefizt, arkað viða
vegu milli fialls og fjöru og ekki ver-
ið í rónni, fyrr en hann var búinn
að spranga fram og aftur um þær
slóðir, sem hugur hans girntist að
kanna. Hann hefur ekki talið sporin
á þessum ferðum sínum né skeytt
um það, þótt gangan yrði drjúglöng,
ef eitthvað það var annars vegar, er
honum þótti slægur í — fagurt eða
sérkennilegt landslag eða gróin rúst,
sem talaði sínu hljóða máli í þögn-
inni.. Og Magnus hefur ekki verið
einn á þessum ferðum sínum um
fjöll og firnindi, dal og hlíð: Mynda-
vélin hefur verið hinn dyggi föru-
nautur hans.
k
Nú er komið haust, og dagur ger-
ist skammur um hríð. Þá framkalla
náltúruskoðarar myndir sínar og ylja
sér við minningar frá sumarferðun-
um. Það hefur Magnús Karl einnig
gert. Með því að álitleg syrpa af
þessum myndum hefur borizt Sunnu-
dagsblaðinu, skulum við takast á
hendur dálitla ferð með honum og
hlýða leiðsögn hans á þeim slóðum,
sem hafa heillað hann svo mjög og
miðlað honum af ríkdómi þeim laun
um, sem eru gulli betri: Hóglátri
gleði ferðamannsins, sem skynjar hið
þögla mál landsins í brjósti sér, og
finnur æðaslög kynslóða, sem þar haía
lifað, stritað og hnigið að velli, þótt
horfnar séu og standi aðeins vall-
grónir veggir og yfirgefin uppsát-
ur frá þeirra dögum.
Og svo skulum við vakna með
Magnúsi fyrir allar aldir einn sunnu-
dagsmorgun í ágúst, því ag um þessa
helgi mega verzlunarmenn um frjálst
höfuð strjúka í 'tvo daga samfleytt.
Ferðinni er-heitið‘í Útbotna í Helga-
fellssveit, þar sem varla mun geta
kallazt fjölfarið lengur.
En fyrst verðum við að fara suður yfir
Fróðárheiði. Magnús kemst alla leið
að vegamótunum í Miklaholtshrcppi
í bifreið kunningjafólks, sem er á
wmM.
Selveflir við Selvallavatn við rætur Horns.
820
T í M I N N
SUNNUDAGSBLAÐ