Tíminn Sunnudagsblað - 25.11.1962, Blaðsíða 11

Tíminn Sunnudagsblað - 25.11.1962, Blaðsíða 11
Efri myndin: Sé3 inn í botn Álftaf jarðar, Vatnshlíðarf jall á miðri myndinni. Hattardalur vlnstra megin fjallsins, en FjörS- ur til haegri. Þar i hlíðinni sér í dimm gljúfur Valagils, þar sem konan Bóthildur dó frá barni sínu. — Neðri myndin: Gamli bærínn í Hattardal, séð inn dal- inn. í vor fluttu Stella Jónsdótt- ir Ekesdal og Ragnar Þorbergs- son í nýtt hús. ♦ hóldu þeir síðan þaðan í fjallið með tygi sín. En kom ekki til bardaga við kynjadýr eða forynjur, heldur fundu þeir konuna dauð'a á klettanös og barnið lifandi hjá henni. ☆ Fyrir botnj Álftafjarðar er hátt fjall, Vatnshlíðarfjall, og dalir báðum megin. Heitir sá dalur Fjörður, sem er fram af Seljaiandi, en vestan fjalls- ins er Hattardalur. Þar voru þrír bæir. í Hattardal meiri bjó á síðari hluta nítjándu aidar maður, sem varð' all- frægur. Það var Þórður alþingismað- ur Magnússon. Mun hann hafa verið merkur 'maður um margt, en sér- kennilegur nokkuð. Það er talið, að hann hafi verið fyrirmynd Benedikts Gröndals í gamansögu hans um Þórð Geirmundsson, og höfðu það allir fyrir satt, bæði þá, er sagan varð fyrst kunn, og síð'an. Þórði í Hattardal mun hafa sárnað mjög það spé, er hann varð fynr, ef til vill án telj- andi verðskuldunar, og ætla sumir, að þetta spott og þau sárindi, sem þag olli, hafi urðið' til þess, að hann fluttist að lokum úr landi til Vestur- heims. Hafi svo verið, þá er það kaldhæðni örlaganna. Mörgum voru vesturfarirnar sár fleinn í holdi, enda galt landið' við bær hig mesta afhroð. En fáum hneit svo við hjarta að horfa á eftir fólkinu sem einmitt Benedikt Gröndal. Sk-rifaði hann um það marg- ar og harðorðar greinar, og ekki mun honum hafa fallið það' vel, að athafn- ir hans leiddu til þess, að þeir flæmd- ust af landi brott, er ella hefðu kyrr- ir verið. En þag verður margt að óvilja manna, og er stundum erfitt að sjá fyrir allar afleiðingar þess, sem gert er. Annars bónda á þessum slóðum er vert að geta. Ungur Norðmaður, sem starfag hafði á Langeyri, kvæntist íslenzkri stúlku, og þegar hvalveið- arnar lið'u undir lok, gerðist hann bóndi í Álftafirði. Hann hét Bemt Ekesdal og bjó iengi búi sínu á Svarf- hóli. í elli sinm fluttust þau hjónin að Hattardal meiri til sonar síns. Þar refetu þau sér litinn bæ, þar sem áður var Hattardalskot, og stendur sá bær enn. Nú búa tvær sonardætur þeirra Framhald á 908. síðu. T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 899

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.