Tíminn Sunnudagsblað - 25.11.1962, Blaðsíða 13
í Súðavik
♦
Þetta gamla hús nefnist Saurar,
og er oftast orSið í 'eyöi, þótt
stundum muni búið í því á vetr-
um. Hér átti heima kunnur mað-
ur, Þorlákur Jónsson, kallaður
'Hrefnu-Láki. Sonur hans, Krist-
ján er þekktur hvalveiðiskip-
stjóri, og kemur hann heim, þeg-
ar hvalveiðibátarnir eru í lagi í
Hvalfirði, og dvelst þá um tíma
í gamla húsinu, þar sem hann
átti bernskudrauma sína.
☆
♦
Þetta iaglega hús heitir Litla-
Býli. í baksýn er Sjötúnahlið
austan Álftafjarðar. "
*
Þetta eru hinir svonefndu Trað-
arbæir. Gamla bæinn í Tröð er
búið að rífa fyrir löngu, svo að
hann verður ekki sýndur á mynd.
Húsið í garðinum byggði maður
sá, er hét Bjarni Jónsson, Síðan
eru 72 ár. Þar býr nú nafni hans
og dóttursonur, Bjarni Hjalta-
son.
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
901