Tíminn Sunnudagsblað - 25.11.1962, Page 20

Tíminn Sunnudagsblað - 25.11.1962, Page 20
BENSI GAMLI lagðist í sinnisveiki og var ófáanlegur til þess að stíga í fæturna. Gömul vinkona hans af næsta bæ kom þá til hans og tók að tala um fyrir honum. Sagði hún meðal annars, að nauðsynlegt væri fyrir hann að biðja guð og treysta honum. En þá svaraði Bensi: — Ég hef nú einu sinni leitað til hans, þegar mér lá á og hann sinnti tekki bón minni, svo að ég er nú að hugsa úm að komast af án hans. ★ DÓRI bar blöð og bréf út um þorp- ið, og var hann áhugasamur við starf sitt, oftast á harðahlaupum og mik- ið í hug. Kom þá fyrir, að orðræða hans var ekki sem skipulegust. Eitt sinn hafði honum orðið það á að afhenda annað bréf en vera bar. Kom hann þá til baka með miklu írafári og sagði: — Eg het sKilið hér eftir öfugt bréf til vitlauss manns. ★ ÓLAFUR GAMLI var ekkjumaður, en hafði verið svo heppinn að fá bú- stýru, sem honum var mjög að skapi. Þegar Ólafur fór í kaupstaðinn, sagði hann við bústýruna, að hún mætti biðja sig um eitthvað úr kaupstaðn- um, sem hana vanhagaði um. Bústýr an varð þessu fegin og sagði, að sig langaði sérstaklega að fá efni í skyrtu, þótt það væri af ódýrustu tegund. Þá svaraði Ólafur: — Það þykir mér satt að segja nokkug mikið, sirs í klút hafði ég hugsað mér. ÚR ÁLFTAFIRÐI - Framhald af 899. síðu. hjóna myndarbúi í Hattardal meiri. Þeir, sem kynni höfðu af gömlu hjón unum, bera þeim þag vitni, að þau Jiafj verið gæðamanneskjur og elsku- leg í viðmóti öllu. Það lék löngum hýrusvipur um andlit gamla manns- ins, sem bauð af sér bezta þokka. En þótt hann lifð'i hér langa ævi, lærði hann aldrei ag tala íslenzku, svo að i lagj væri. Nokkurn spöl fyrir utan Hattardal gengur eyri fram í sjóinn. Þar var síldarsöltun á sama tíma og á Dverga- MISSÖGN í 36. tbl. Sunnudagsblaðs Tímans er smásaga úr (Austur) Landeyjum í safninu „Fyndni og flónska". Sögu þessa þekkja margir eldri Landey- ingar, en hún er öll úr lagi færð og er rétt að háfa það, sem sannara er. Skip það, sem beið lendingar, var svokallað „jul“ sexróið, og hét Svan- •ur. Formaður var Jóhann í Krosshjá- leigu, sérkennilegur maður og orð- hákur. Lifðu ýmis tilsvör hans og kringilyrðj á vörum fólks í sveitinni löngu eftir hans dag. — Magnús bóndi í Stóru-Hildisey átti hlut í Svaninum, og var jafnframt háseti Jóhanns. — Nú er það eitt sinn, ag sjór hafði versnað meðan Jóhann var í róðri. Var beðið lags úti á legunni. Nú sýn- ist Magnúsi (ekki Jóni) vera sæmi- steinseyri, og eru margar vörður, sem síldarfólkið hlóð í tómstundum sín- um, uppi á fjallsbrúninni þar fyrir ofan. í þessum vörðum sumum eru flöskur meg nafnamiðum, og kannske minnist einhver, sem les þessar lín- ur, þess dags, er hann fór upp í fjallið með stúlkunni sinni eða piltin- um og skildi eftir lítinn miða í flösku til minningar um þá göngu- ferð. ☆ Vestan Álftafjarðar heitir Sjötúna- hlíð. Þag er dregið af nafninu, að þar hafi verið sjö bæir — er þó sjálfsagt þjóðsaga, þar eru nú allir bæir komn- ir í eyði, enda er þar brattlent og ekki gott til búskapar með þeim hætti, sem nú tíðkast. Lengst var Kambsnes í byggð, og var sá bær utarlega á ströndinni, gegnt Súðavík. Þar bjuggu þau Egill Jónsson og Guðrún Þórð'ar- dóttir, er síðar voru í Árnesi í Súða- vík, fram á fjórða tug þessarar ald- ar. Nokkur ár eru síðan Egill lézt, en Guðrún lifir enh. og á heima hjá dótt- ur sinni í Súðavík, langminnug fróð'- leikskona, er margt hefur séð byltast og breytast í sinni tíð. Og nú látum við staðar numið. Vio- komumst ekki í bifreið út Sjötúna- hlíð. Vegurinn er kominn inn fyrir fjarðarbotninn og nokkuð á leið út hlíðina. Árnar inni í fjarðarbotnin- um, Fjarðarós og Hattardalsá, hafa verið brúaðar. en við verðum enn um hríð að bíða eftir vegi inn í Seyðis- fjörð, ef við kveinkum okkur við að leggja land undir fót. En þegar ak- vegur opnast meg öllum suðurfjörð- um ísafjarðardjúps inn til Langadals og Þorskafjarðarheiðar, verða þeir áreiðanlega margir, sem fara hring- ferð um Vestfirði j sumarleyfinu sínu. Firðina við Djúpið þekkja fáir, sem ekki hafa alið aldur sinn þar vestra að einhverju leyti. LEIÐRÉTT legt lag og segir við Jóhann formann: „Ættum vig ekki að róa í Jesú nafni?“ „Nei, við skulum ekki róa í Jesú nafni“, svarar Jóhann. í sama mund reið yfir vont ólag. Þá segir Jóhann, og beinir máli sínu að Magnúsi: „Hvernig hefði nú farið, hefðum við róið í Jesú nafni? Allir steindrep ið okkur og farið til helvítis!" Aldrei heyrði ég talað um það, að Magnús í Hildisey hafi verig kjark- lítill, enda alvanur sjóvolki, sem og flestir fulltíða karlmenn í Landeyj- um í þá daga. Sem meðeigandi í skip- inu hefur hann trúlega átt meira undir sér en óbreyttir hásetar og vilj- að gefa formanni holl ráð. En Jóhann formaður sá betur. H. G. 908 T f M I N N — SUNNUDAGSBLA®

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.