Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 09.12.1962, Qupperneq 3

Tíminn Sunnudagsblað - 09.12.1962, Qupperneq 3
x:;. :7 : Þegar botnlanginn verður haglapungur Árið 1957 bar svo við, sem þó er varla. í frásögur færandi, að danskur læknir, Jansby að nafni, tók botnlanga úr manni einum. En læknirinn varð næsta forviða, þegar upp úr kafinu kom, að botnlanginn var úttroðinn af höglum. Hann taldi úr honum hvorki meira né minna en sextíu og þrjú högl. Fylgdi það þessari sögu, að sjúklingurinn hefði verið skytta mikil, sem gjarna neytti sjálfur bráðar sinnar. Nú er það ekki hvers manns siður, jafnvel þótt með byssu fari, að nota botnlangann í sér fyrir haglapung. Þetta þótti því saga til næsta bæjar. En ekki var þessi danski veiðimagur einn um það að bera hagla- birgðir innan í sér. Næsta ár leitaði færeyskur bifreiðarstjóri, þrjátíu og fjög- urra ára gamall, lækningar í sjúkrahúsinu í Þórshöfn. Var hann þjáður af verk í lendum. Maður þessi var ökumaður við kolanámu á Suðurey, en hafði þó í seinni tíð jafnan farið til Grænlands á sumrin. Við myndatöku kom í ljós, að fjórði lendaliðurinn hafði sprungið Botnlangatotan í Dananum, full af höglum. „PERLUFESTIN myndinni. endur fyrir löngu og ekki náð að gróa saman, og olli þetta honum þjáningum annað veifið. En það kom annað fram á mynúinni, sem færeysku lækn- unum þótti fáséðara. Þar blasti eitthvað það, sem mest líktist perlufesti, og þegar þetta var borið saman við mynd þá, sem Jansby hafði látið birta í viku- blaði danskra lækna af botn- langa sjúklings síns, fór fær- eysku læknana að gruna margt. Bifreiðarstjórinn færeyski hafði að sönnu aldrei fengið botn- langabólguköst né kennt sér neins meins innvortis og yfir- leitt verið hinn heilsuhraust- asti, að undanteknum óþægind- um þeim, sem hann kenndi í lendunum. En þegar hann var spurður um mataræði sitt, kom upp úr dúrnum, að hann neytti mjög kjöts af fuglum, sem skotnir voru úti á sjó. Nú réðu læknarnir honum til þess að láta taka úr sér botnlangann, og féllst hann á það. En það var samt ekki neitt áhlaupaverk. Botnlangatotan var í manni þessum aftan á sem færeysku læknarnir sáu á röntgen- sjálfum botnlanganum, fast við opið á mjógirninu, og var ekki unnt að nema hana brott á venjulegan hátt, heldur varð Framhald á 957. síðu. Botnlangatotan úr færeyska bif- reiðarstjóranum, Ijósmynduð á borSi. m i u . v _ SUNNUDAGSBLSlÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.