Tíminn Sunnudagsblað - 09.12.1962, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 09.12.1962, Blaðsíða 4
ÞORSTEINN JÓNSSON FRÁ HAMRI: EGILL SNOTRUFÓSTRI @9 Snotrunes í Borgarfirði eystra er fomt býli og hefur heitið svo frá því í fornöld, en á seinni tímum hefur bæjarnafnið orðið kveikja að þjóð- sögu — um Snotru: álfadrottnínguna í álögum, sem eignaðist Snotrunes og bjó þar, unz einn ráðsmaður hennar af mörgum rauf álögin með því að fylgjast með ferðum hennar i álf- heima á jólanótt; en áður hafði ráðs- menn hennar jafnan brostið rág og þekkingu til að vita, hvert þessum ferðum Snotru var heitið um hver jól. Hún hvarf aftur í álfheima að álögunum leystum, en ráðsmannin um fékk hún í hendur búið í Snotru nesi. Þessi saga er skráð í safni Jóns Arnasonar og að efninu á hún sér ýmsar hliðstæður meðal álfasagna, — er nánast flökkusögn. Hún snertir raunar ekki það mál sem hér verður á drepið, en hins '-erður minnzt, að huldan Snotra -réð í raun og sann leika ærið miklu um lífshlaup og at hafnir ákveðins manns á fyrri hluta 17. aldar, hvað sem öllum þjóðsög um líður. — í þann tíma og laungum fyrrum dreymdi menn í álfheima þegar einstæðíngsskapurinn og ráða- leysið svarf harðast að. Þá var uppi Álfa-Árni, sem umgekkst huldufólk jafnt og mennska meðbræður sina; og til samanburðar má geta þess, að nokkru eftir síðustu aldamót trúlof aðist mennsk stúlka huldumanni í Fljótum nyrðra. Þannig er ekki lángt síðan huldufólkshóllinn stóð opinr þeim, sem sterkast þráðu þángað . Ð Guðmundur Ormsson hét prestur er sat að Stafafelli í Lóni. Jórunn héi kona hans og var Pétursdóttir lög réttumanns á Eyvindará, Ásmunds sonar. Séra Guðmundur lézt í stóru bólu 1707. — Þeim hjónum varð ~eins sonar auðið svo getið sé, er skírður var Egill; Anna hét dóttir .þeirra. Að séra Guðmundi látnum giftist Jórunn Pétursdóttir Bessa sýslu- manni Guðmundssyni á Skriðu- klaustri, bróður séra Narfa í Möðru- dal. Bessa sýslumanni er svo lýst, að hann „þótti litt til þess (þ.e. em- bættisins) hæfur, ólærður að kalla mátti og lítt skrifandi, en drambsam- ur mjög“. Hafa þó góðir fræðimenn efazt um sanngirni þessara orða. Þau Bessi sýslumaður og Jórunn áttu ekki barn saman. Af Agli Guðmundssyni er það að egja, að hann ólst upp hjá móður ■ inni og stjúpa og var sagður frábær ið gáfum og öðru atgervi. Árið 1719 var hann settur í Skál- holtsskóla, þá sautján vetra; finnst hann í skólaröðum frá þeim tíma: ..Egellus Gudmundi". Þaðan útskrif- aðist hann 1722 við hinn bezta irðstír. Árið eftir andaðist Bessi sýslu- uiaður, og voru þau Egill og Anna arfleidd að öllu fé þeirra hjóna að þeim báðum látnum. Bessi var maður °uðugur að fé, svo hér var stæðileg- ur arfur í vændum. Egill Guðmundsson beið því ekki hoðanna, en hélt til streitu námskappi únu; hann sigldi til Hafnarháskóla og þar innritaðist hann í tölu stúd- enta 6. nóvember 1723. Þann 6. júlí 1725 varð hann baccalaureus í heim- ;peki. — Um þær mundir hafði hann ekið sér auknefnið Staffeldt, leitt íf fæðíngarstað sínum, og stóð nú /egur hans allhátt. Er þó vert að minna á það nú þegar, að laungum reyndust sárbeittir íslendingum í Höfn þeir Bakkus konúngur og Kan- allinn; og af því sem nú var tíðinda, má ráða að Egill Guðmundsson Staff- eldt hafi ekki orðið hvað siztur „púls- maður hjá Baccho og Veneri“ í hópi stúdenta. Hagur námsmanna í Höfn stóð með litlum blóma í þá daga, — þótt mað- ur freistist til að reingja Jakob Worm, þegar hann segist hafa á Garðsdvalarárum sínum öfundað hlekkjaða Brimarhólmsfánga og talið þeirra ævi betri en þrautadaga solt- ins stúdents. — Fyrsta minnilega „kjarabót" Garðstúdenta var sú, og harla sérstæð, að í drepsótt míkilli er hófst 1711, veitti konúngur Garð- búum einkarétt á líkburði í Höfn„ m-eð taxta: tvö mörk og upp í tvo dali — eftir mannvirðíngum hins dauða. Héldu þeir „hlunnindum" þessum til loka 18. aldar; og þá er að líta á hversu Garði hélzt á íbúum sínum: frá 1714, þegar þeir hrepptu líkburðarstarfið, og til aldarloka dóu 29 íslenzkir stúdentar í Höfn — úr ýmsum kvillum. — Húsakynni á Garði voru ill og þrifnaður var lítt við hæfi. En þess er að minnast, að stúdent- ar voru misjafnlega efnum búnir, og nú verða þeir atburðir á þriðja tug 18. aldar, að Egill Guðmundsson Staffeldt tekur að stunda drykkjur stórar í Höfn. Þessi dugmikli náms- maður, sem öllu hafði virzt geta borig birginn og mælti af munni fram skáld skap á latínu jafnt sem móðurmál- inu, var innan lítils tíma rínglaður „grillumaður". Segir það stytzt af Agli, að út þennan áratug og betur þó var hann áfram í Höfn og sóaði fé móður sinnar. 0 Um þessar mundir var nokkuð um liðið síðan Sviar tóku að gefa gaum ís lenzkum heimildum um sögu Svíþjóð- ar; voru raunar lítt læsir á þær, en undu illa söguleysi sínu gagnvart Dön- um, sem stærðu sig af Saxo. Semkunn ugt er varð Svíum allmikils ágeingt um söfnun íslenzkra handrita, og sú var raunin á, að fulltíngis íslendinga sjálfra var þörf, þegar til átti að taka að nota þau sem heimildir. Hrökk þá skammt hneigð Svía til að eigna sér bækur þessar og kalla þær„ forn- gauzkar“. — Stórvirkastur að söfnun til handa Svíum var Jón Eggertsson af Ökrum, en þeir Jón Rúgmann og T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.