Tíminn Sunnudagsblað - 09.12.1962, Side 8

Tíminn Sunnudagsblað - 09.12.1962, Side 8
ÉG NOTA í MESTA LAGl Islendmgar eru sennilega eín- hver mesta kórþjóS veraldarinn- V. Það er kór í hverri sveit og i sumum sveitum fleiri en einn. Þessi kórnáttúra á líklega rót sína að rekja til þeirra tíma, þeg- ar hver kirkjugestur söng með sínu nexi sem mest hann mátti um drottinn vorn. Þeir, sem sungu hæst og mest allra, urðu forsöngvarar, sem þótti fremdar- titill í þá daga. En þegar söng- mennt íslendinga óx, hættu söfn- uðirnir að mestu að syngja á bekkjum sínum og það þótti ekki lengur fínt að vera forsöngvari. — Síðar komu menn fram á sjón- arsviðið, sem tóku að nokkru við hlutverki forsöngvaranna. Þeir leiddu kórinn, en ekki með því að syngja, heldur með því að pata með höndunum. Það eru orðnir margir slíkir á íslandi núna, og margir þeirra hafa eytt stundum og árum erlendis við að læra þessi ;,handlistarþrögð“. Um daginn, þegar kuldarnir voru hvað mestir og kvefhræddir kórmenn gengu með trefla um hálsinn til þess að fá ekki „stórsöngvarakvef“, sat einn þessara „handlistarmanna" — Ragnar Björnsson, stjórnandi Fóst- bræðra — inni í kaffihúsi og sötraði kaffið sitt. — Eftir að við höfðum rætt saman mjög innvirðulega um veðrið, vindinn og snjóinn, með álls konar tilbrigðum og komizt að þeirri veigamiklu, að ég segi ekki örlaga- þrungnu niðurstöðu, að hitaveitan í Reykjavík geri alla menn að líkamleg um aumingjum, spurði ég hann að því, hvort ekki væri nær að gera einhvern söngstjóra aö einvaldi — nokkurs konar Napóleon söngsins — í Reykjavík og búa til einn góðan kór heldur en að vera með alla þessa smákóra. Honum leizt ekki a þetta: — Það á aj) vera heilbrigð samkeppni í þessu, sagði hann, rétt eins og í vérzl un, annars er hætta á einokun og einangrun. Hins vegar finnst mér, að karlakórarnir mættu vinna meira saman öð'ru hvoru, bæði í söng og félagsmálum. í bæjum á Norðurlönd- unum hinum, þar sem starfandi eru fleiri en einn kór byggja þeir sér liús saman í stag þess að vera að puða sitt í hvoru lagi. — Þýddi nokkuð að hafa samv.nnu, yrðu 'ekki söngstjórarnir ósammála um, hver ætti að stjórna? — Ef kórfólkið gæti unnið saman, ættu þeir einnig að geta það. — Það segja sumir, áð alíir tón- listarstjómendur séu vitlausir á skapsmunum. — Það er vitleysa. Og því minna vitlausir á skapsmununum sem þeir eru, þeim mun betra verður samband þeirra við fólkið, sem þeir vinna með. Þag er náttúrlega nauðsynlegt að halda sinni stefnu við uppbyggingu verks, en það er ekki síður nauð- syn að hafa lagni til að koma henni fram og reyna að skilja þá, sem mað- ur vinnur með. — En eru söngstjórar samt ekki oft óþolinmóðir á æfingum? — Eg var það fyrst, þegar ég byrj- aði, — oft alveg að springa. En með i'eynslunni lærir maður, að menn eru misjafnlega móttækilegir, og sumir' verða að fá meiri tíma en aðr- ir. Þegar ég kom frá námi og byrj- aði að kenna á píanó hér heima, vildi ég láta öllum nemendum mínum fara jafnt fram, en komst fljótt að raun um það, að það var ógerningur, því að þeir höfðu ekki allir sama við- bragðsflýti. — Er dálítið svipað að stjórna kór og spila á hljóðfæri? — Ég nota nú ekki mikið fingurna, 944 T 1 M ! N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.