Tíminn Sunnudagsblað - 16.12.1962, Side 9

Tíminn Sunnudagsblað - 16.12.1962, Side 9
hvorki bragðag þurrt né vott í fimm- tíu og fjórar klukkustundir. En nú hresstust þeir til muna, er þeir höfðu svalað sárasta þorstanum, og gátu ró- ið af meiri snerpu en áður. Veður hélzt bjart og gott allan dag- inn. Þeir reru látlaust, því að sýni- legt var, ag þeir mjökuðust nær landi. Helzta von þeirra var samt næturmyrkrið og eldflaugarnar, sem þeir ætluðu að skjóta á loft jafn- skjótt og dimmdi svo, að þær sæjust úr fjarlægð. En oft verða veðrabrigði í ljósa- skiptunum. Svo varð einnig þetta kvöld. Ekki var orðið hálfrokkið, er þokubakki reis úr hafi og lagðist yfir allan sjó. Grá og þögul læddist hún að þeim, blökk og draugaleg var hún, og áður en varði hafði napur og úrigur hrammur hennar steypzt yfir þá. Undan honum varð ekki flú- ið og vonlaust var að hrópa á hjálp, sem hvergi var að fá. Sá, sem er úti á sjó á lítilli fleytu í blindþoku, finnur bezt, hve órabreitt hafig er, og þó þykir honum þröngt um sig, því að þokan hylur allt, og sá grunur læðist að honum, að kannski sé ekki framar neitt kvikt í þessum gráa þoku heimi annað en hinn bjargarlausi skipbrotsmaður. Samt létu þessir fær- eysku skipbrotsmenn ekki hugfallast. Þeir l'étu eldflaugarnar eiga sig, en sigu í þess stað á árarnar. Þeir höfðu róið allan daginn, og nú reru þeir líka alla nóttina. Þokunni fylgdi norðaustangola, og var nót|in heldur kaldranaleg. Varla sást bátslengd frá flekanum, og alla nóttina var látlaus suddaýringur. Þeir skiptust á um að róa. í tíu mínútur hvíldu þeir sig til skiptis, en reru síð an tuttugu mínútur í lotu. Svefn sótti á þá eftir heitan sólskinsdag, og fljót- ir voru þeir að stirðna, þegar þeir höfðust ekki að, enda svarf þreyta og vosbúð mjög að þeim, En á þenn an tfátt gátu þeir varizt svefni og haldið á sér hita án þess að ganga al- veg fram af sér. Það glaðnaði til um sólarupprás. Þá var kominn fimmtudagur. Þeir sáu, ag þeir voru staddir suðaustur af Papey á vanalegum fiskileiðum smá- báta. Sólin merlaði hafflötinn milli þokubólstranna, og eyna hillti upp. Þeir skyggndust um og hugðu vand- lega að því, hvort þeir sæju hvergi fjöl fljóta. Nú víkur sögunni á Djúpavog. Þar hafði verið hið fegursta veður síð- ustu daga. Lífið lék við þá, sem reru til fiskjar. Þeir, sem ætluðu í_róður, beittu lóðir sínar að kvöldi miðviku- dagsins 20. ágústmánaðar, svo sem venja þeirra var. Meðal þeirra, sem það gerðu, voru þeir Sigurður ívars- son á Sólvangi, Ingibjörn bróðir hans, á Bjargi og Jón Sigurðsson í Rjóðri. Þeir voru bátsfélagar og stunduðu sjó inn á dálítilli trillu. Menn héldu til báta sinni, þegar tími þótti til þess kominn að leggja af stað, ræstu vélarnar og hófu veiði- förina. Trillurnar ösluðu geltandi fyr- ir Langatanga, og síðan var stefnt til hafs. Bátarnir voru komnir á fiskislóð- irnar, þegar skipbrotsmennirnir fær- eysku sáu til ferðar eins þeirra all- langt frá sér. Við það færðist í þá nýtt fjör. Þeir einblíndu fyrst litla stund á þennan bát, sem skaut þarna allt í einu upp, og brátt sáu þeir, að bátsverjar tóku að leggja línu sína. Það var sýnilega enginn asi á þessum íslenzku fiskimönnum. Þeir fóru að öllu með mestu gát. Færeyingarnir kölluðu, en vélin í trillunni var í gangi, svo að hinir heyrðu ekki köllin. Færeyingarnir veifuðu, en þag stoðaði ekki heldur. fslendingarnir voru niðursokknir í verk sitt og gáfu engan gaum að öðru. Þetta urðu Færeyingunum vonbrigði. Þokuhrannir voru hér og þar um hafið, og nú bar einn þokukúfinn yfir þessar slóðir. Hrakningsmenn á flek anum höfðu séð, hvar lóðabelgur flaut, og nú réðu þeir af að freista þess að róa í áttina að honum. Og svo reru þeir og reru, en sáu þó lítt frá sér um sinn. Eftir alllanga stund kom þó rof, og þá sáu þeir einn bát. Hann lá við línu, ekki mjög langt frá þeim, beint undan sól. Þeir hrópuðu og veifuðu, en þess sáust engin merki, að bátsverjar yrðu þeirra varir. Svo nærri voru þeir þó bátnum, að þeir sáu hvern fisk, sem kom upp á lín- unni, er bátsverjar voru að draga. Vél þessa báts var í gangi eins og hins fyrri, og hún yfirgnæfði köll hinna nauðstöddu manna. í þetta skipti var afstaða sólarinnar þannig, að ekki var von til þess, að þeir sæj- ust. Það er torvelt að eygja það, sem á sjónum flýtur, þegar horft er beint móti sól, sem enn er lágt á lofti. — Óheppnin elti þá. Oftast var svo dimmt yfir, að þeir sáust ekki, en þeg ar þokan var ekki til meins, var svo bjart, að ekki nýttist af því. Ekki var svo lengi þokuskil, að þeim tækist að róa nema stuttan spöl. Nei — þokumökkur lagðist yfir á ný. „Þökk fyrir, að þú faldir þá, á með- an ég var ekki við látin“, hefði þok- an getað sagt við sólina, j.im leið og hún umlukti þá. Þungt féll hinum aðþrengdu mönn- um að vera svo nærri hjálpinni, en auðnast þó ekk'i að vekja athygli á sér. Og nú kom þeim í hug hinn gamli málsháttur, að ekki verður feigum forðað. Þrátt fyrir allt höfðu þeir trúað því til þessa, að þeir björg uðust á einhvern hátt. En nú þótti þeim líkurnar orðnar svo litlar, að þeir örvæntu um, að þeir myndu framar stíga fæti á land. Það leið að hádegi, og þeir vissu, að norðurfallið var liðið hjá og nú tæki þá senn að bera ótt til suðurs. Þá myndu þeir fljótt fjarlægjast allar bátaleiðir, því að sunnar en þetta var ekki von um fiskibáta um þetta leyti árs. Fyndust þeir ekki á meðan kyrrð var á veðri, var úti um þá. Þeir reru eins og þeir orkuðu og reyndu að halda stefnunni á lóðabelginn. Með suðurfallinu greiddi alveg til, þá sáu þeir marga báta, smáa og stóra. Rétt hjá þeim var báturinn, sem átti belginn, sem þeir höfðu reynt að kom ast að um morguninn. Enn hrópuðu þeir og veifuðu, en þag bar engan árangur. Þá fór skipstjórinn úr peysu sinni og veifaði henni. Hann stóð þarna snöggklæddur á flekanum, svo að liann átti að sjást vel, og veifaði og kallaði eins og hann frekast mátti. Þetta hreif. Bátsverjar tóku að skima, svo veifaði einn þeirra. Og þessu næst sáu þeir mann iúta yfir línuna, skera hana sundur og setja dufl á endann. Þetta voru þeir Sigurður á Sól- vangi og félagar lians. Því verður ekki með orðum lýst, hve þeim létti, skipbrotsmönnunum á Sólarrisi. Þeir voru í rauninni bún- ir að kveðja lífið og tilveruna. En nú sáu þeir, ag þeir áttu lengra líf fyr- ir höndum, og þeir fögnuðu því af öllu hjarta. Allt breyttist á svip- stundu. Fyrir örskammri stundu höfðu þeir séð fram á, að þeir hlytu senn að gefast upp, og þeir vissu, af þorstinn myndi að siðustu pína þá til þess óyndisúrræðis að drekka sjó. Og það vissu þeir líka, að færði þeim ekki annað að höndum en aumasta kvaladauða. Því meira sem þeir drykkju, þeim mun þyrstari yrðu þeir, og loks hlaut lífsljós þeirra að slokkna við hræðilega kvöl. Þetta helmyrkur hugrauna og þján inga, sem við þeim blasti sópaðist brott, og lífið breiddi faðminn á móti þeim með fögrum fyrirheitum. Þeir áttu ekki að deyja einmana og hjálpar vana á reki á hafinu að þessu sinni, þeim var ekki búin vot gröf á þessum slóðum, þeir áttu aftur að fá að stíga fæti á iand og leggjast niður við nið- andi læk og drekka vild sína af köldu, svalandi vatni. Já — þeir áttu að fá þurr klæði, koma inn í hlýtt hús og sofa í mjúku rúmi. Og enn myndi þeim auðnast að sjá Færeyjar rísa úr hafi, sjá ástkæra heimabyggg sína, njóta fagnaðarhóta ástvina sinna og granna. En þungt var að hugsa til þess, að þeir fóru átta að heiman, en komu ekki aftur nema þrír, og næsta örðugt yrði að segja þeim, er söknuðu hinna fimm, hvað þeir vissu síðast um þá. Framhald á 982. síðu. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 969

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.