Tíminn Sunnudagsblað - 03.03.1963, Blaðsíða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 03.03.1963, Blaðsíða 6
sótt og ellikröm á nýársdag árið 1860, meira en hálfniræður. XLIII. Því verður vart á móti mælt, að Þorvaldur slapp með vægari dóm en líklegt mátti teljast. Hann barðist til þrautar og hlaut að lokum tíu vandar- högg, þótt Eggert, sem horfði í kostn- aðinn yið tvísýna áfrýjun til hæsta- réttar, yrði að þola þrjátíu högg, svo litlar sakir, sem á hann sönnuðust. En efnahagur beggja varð fyrir miklum áföllum. Báðir voru við dá- góð efni, er málin hófust, en á þau saxaðist mjög, þegar farið var að inn- heimta málskostnaðinn, þótt Jón sýslu maður á Reykjum gæti stillt svo til, að allmikið af eigum þeirra bar und- an. Jón Espólín hafði látið virða og kyrrsetja eigur sakborninganna sum- arið 1819. Var þá gripaeign á Ás- bjarnarstöðum tvær kýr, þrír full- orðnir hestar og veturgamalt tryppi, rúmar fjörutíu ær, fimmtán sauðir og sextán gemlingar. Þar að auki átti Eggert dálítinn jarðaipart, fjögur hundruð í Ytra-Tungukoti í Biöndu- dal, og nokkuð af skildingum í hand- raða sínum. Bendir það ekki til bragð- vísi, að hann skyldi ekki koma þeim undan, svo auðvelt sem það hefði ver- ið. Alls voru “ignir Eggerts virtar á 316 silfurdali Eignir Þoivaids voru metnar á 384 silfurdali, og hafði þá það verið und- an fellt. sem bornum hans þremur af fyrra hjónabandi bar í arf eftir móð- ur sjna og sumu af því ráðstafað þeim til uppeldis hér og þarNí sveit- inni. Búpeningur Þorvalds var þrjár kýr og kvíga, tvö hross, tuttugu og sex ær og sex gemlingar. Peningar komu engir fram hjá honum. Glöggt má sjá af gögnum þeim, þar sem eigum þeirra Þorvalds og Eggerts er lýst, hve þeir hafa verið ólíkir menn í háttum sínum og um- gengni. Á Gauksmýri voru gripahús- in ýmist hurðailaus eða fyrir þau var tjaslað einhverju spýtnabraki, bús- munir flestir, smíða'tól. amboð og eldhúsgögn, vnrtt þar meira og minna sér gengnir og fatnaður ekki á marga fiskana, þótt sitthvað væri til. Á Ás- bjarnarstöðum virðist öllu hafa verið vel við haldið, og þar var til furðu- mikið af fatnaði, sem þá hefur þótt prýðilegur, svo að ekki sé talað um þá mergð silkiklútá, sem í leitirnar komu. Þetta sýnir, að Ásbjamarstaða- hjónin hafa verið natin og hirðusöm, en Gauksmýrarhjónin draslfengin. Skömmu eftn að dómur landsyfir- réttar varð kunnur, tók Jón á Reykj- um sig til og gerði fjárskipti með þeim hjónum, Þorvaldi og Eggerti og konum þeiria. Reiknaði hann eig- inkonum beggja tuttugu ríkisdali í morgungjöf af óskertri sameign, og fékk Guðrún á Gauksmýri á þann veg fjárhús, rúm með öllum sængurfatn- aði, veturgamla kind og nokkuð af guðsorðabókum, þar á meðal bæði Grallarann og Þórðarbænir, en Ragn- heiður á Ásbjarnarstöðum hlaut að mestu leyti búsgögn í búri sínu — fjóra sái, sjö skjólur, sjö trog og pott — og þar að auki sauðahús og smiðjukofa, einn hest, rúmföt og Vídalínspostillu. Þegar morgungjafirnar höfðu verið skildar frá sameigninni, skipti sýslu- maður því að jöfnu, er.eftir var. Þær eignir, sem komu í hlut bændanna, voru ofurseldar en hitt, sem húsfreyj- urnar hrepptu, var það, sem heimilin áttu að bjargast við. Ásbjarnarstaða- heimilið hélt öllu innan stokks, því að það kom í hlut Ragnheiðar, ásamt hálfum bústofni. Eggeiti var talinn hinn helmingur bústofnsins, jarðar- skikinn og peningarnir. Á Gauksmýri var bústofninum einnig skipt, og hvort þeirra hjóna fekk fimm hundruð úr Gauksmýri. Talsvert af amboðum og innanstokksmunum var einnig ánafn- að Þorvaldi. Eignir þær, sem bændurnir hrepptu við skiptin, voru síðan seldar á upp- boði, að nokkru leyti þegar í stað, en að nokkru leyti um haustið. Það, sem fyrir þær fékkst, hrökk auðvitað hvergi nærri til þess að borga máls- kostnaðinn. Hann var orð'inn nálega átta hundruð ríkisdalir, þegar Jón Espólín kvað upp dóm sinn í héraði, og síðan kom kostnaður við landsyfir- réttardóminn á herð'ar beggja sak- boininga. Þar á ofan átti Þorvaldur að standa skil á kostnaði við varðhald sitt í sextán vikur veturinn 1819— 1820 og áfrýjunina til hæstaréttar. Það var því langt frá því, að eigur þeirra nægðu til þess að greiða bað. sem af þeim var krafizt. Við það hlaut að sitja. Það varð að grípa til annarra úrræða til þess að jafna metin. En báðir héidu þeir Þorvaldur og Eggert jarðnæði sínu, og þeim mun hafa tekizt furðanlega að öngla sam- an á ný. Eftir Þorvald fundust átta- tíu ríkisdalir í peningum, og alls varð arfur eftir hann á fjórða hundrað rík- isdala. XLIV. Fátt segir af framferði Þorvalds síðari hluta ævinnar. Prestar. hans hirtu ekki um að geta þess, hversu þeim virtist hann, og það, sem gerð- ist á lífsleið hans að beinamálinu út- kljáðu, hvarf í dimman skugga þeirr- ar sögu, sem hann átti að baki. Þó er það hermt, að hann hafi verið kallaður barngóður á efstu árum sín- um, og stingur það í stúf við' þær sögur, sem gengu af meðferð hans á börnum sínum á Sigríðarstöðum og Gauksmýri. Menn, sem sáu hann á efri árum, létu þess helzt getið, hve skuggalegur hann hefði verið, svart- skeggjað'ur, skoteygður og með hatt sinn slútandi mður í augu. Það gervi féll mætavel að þeim orðrómi, sem honum fylgdi. Eins og áður er á vikið, lék það orð á, að Grímur, frændi hans, Jóns- son hefði mildað mál hans í Kaup- mannahöfn. Hann varð amtmaður Norðlendinga nokkrum árum eftir að beinamálum lauk og settist þá að á Möðruvöllum. Hefur svo verið sagt, og er komið frá Gísla Konráðssyni, að Grimur hafi eitt sinn verið á ferð í Húnaþingi og átt leið hjá Gauks- mýri. Amtmaður spurði, hver þar byggi. Förunautar hans sögðu, að þar væri bær Þorvalds Jónssonar. Þá eiga amtmanni að hafa hrotið af vöium orð, sem ekki báru vitni um neina vinsemd í garð Gauksmýrarbóndans: „Það er toppmældur fantur“. Nokkur bama Þorvalds komust upp, og var meðal þeirra sonur, sem hét Stefán. Hann var með visinn fót og kallaður Stefán halti. Líktist hann föður sínum hvorki að greind né harð- sækni, því að hann var lítill fyrir sér, einfaldur í meira lagi og hélt sér uppi á flakki á efri árum. Gekk hann óboðinn til baðstofu, þegar hann kom á bæi, og var það ekki fátíð sjón í Miðfirði um hans daga, að allt í einu ræki skeggjaður maður með röndótta kollhúfu höfuðið upp fyrir Ioftskör- ina eða inn í baðstofugættina. Þar var Stefán halti kominn. Oft létu hús- freyjur hann mala fyrir sig útákast á grautinn, og sat hann þá við kvörn- ina á meis Hitt þótti honum þó betra hlutskipti að syngja á bæjum, og beljaði hann tagleysur af miklu. of- forsi, ef honum var vel launað með sykri eða öðru góðgæti. Stefáni sagðist svo frá, að hann hefði „mesti grélupjakkur" fr’am um þrítugt. Trúði hann þvf statt og stöð- ugt, að svo hroðalegar formælingar hefðu verið hafðar uppi yfir vöggu sinni, að fóturinn hefði visnað af þeim sökum. En heldur þótti honura hafa rætzt úr fyrir sér, þegar á ævina leið, enda var hann þess fulltrúa um skeið, að Viktoría Englandsdrottn- ing væri á leið til landsins til þess að biðja hans.Höfðu várungar sem ’ : ~u fákænsku og auðtryggni hans, talið honum trú um þetta og fengið hon- um fimmeyring með gati, er þeir kváðu tryggðapant fr'á drottningu. Þann grip bar Stefán í bandi um háls sér. Margt þessu líkt var borið í tal við Stefán á reiki hans um Húnaþing, enda mátti jafnan vænta af honum skringilegra svara, er sum voru lengi í minni höfð. Oft var sveigt að beina- málinu við hann, og mátti þá jafnan heyra, að honum var þungt til þeirra, sem hann húgði, að lagzt hefðu gegn föður sínum í því. Björn á Þingeyr- um kallaði hann að jafnaði gamla 198 T 1 M 1 N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.