Tíminn Sunnudagsblað - 03.03.1963, Blaðsíða 21

Tíminn Sunnudagsblað - 03.03.1963, Blaðsíða 21
■ '___________________________________í Margrét Jónsdóffírs Óður til vorsins Þú kemur senn meg græna gróðurfeldinn og glitvoð blóma yfír tún og haga, með bláar nætur, birtu krýnda daga, í brjóstum enn þú kveikir vonaeldinn. Svo jafnvel gamlir verða ungir aftur, er af sér jörðin klakans fjötra brýtur. Allt lifnar við og vorsins töfra nýtur, svo voldugur er lífsins undrakraftur. Það fæðist bros á rauða rósavör, í runnum heyrist margraddaður kliður. Á himni glampa gulli brydduð ský. íiæiswmmMmm AUt kemst á flug með aukið afl og þor, frá efstu brún að lægstu ströndu niður. Á vorin margur verður barn á ný. s s m VELRAÐ KVENNA Framhald af 195. síöu. hana út á eyðieyju, þar sem ást þeirra gat notið sín í friði fyrir öðru fólki. En því miður er þröngt um vik í snjóhúsi og ekki í neina afkima að flýja. Þar er erfitt, raunar ógem- ingur, fyrir unga stúlku að fara í felur meg leymdardóma sína. Það komst fljótt upp, að ekki var allt með felldu um hárprýði hinnar ungu eiginkonu. Hún var fengin með lodd- arabrögðum, hreinum og beinum svik- um: Hún hafði fléttað svart hár af sauðnautum í strýið A séri Þetta hafði hún að sönnu gert af mikilli leikni og UstfengL En það er nú einu sinni svo, að þessm hárhnútum þarf að hagræða annað veifið. Hún gat ekki komizt hjá þvi að greiða sér að minnsta kosti einu sinni í viku, ef nokkur mynd átti að vera á útlifí hennar. Brúðguminn komst að því, hvaða brögðum hann hafði verið beittur, og ástin rauk út í veður og vind á sömu stundu. Það, sem hann hafði séð, hlaut innan skamms að komast á margra vitorð, og þá varð ekki hjá því stýrt, að hláturinn klingdi í eyrum hans og hús hans bergmálaði af háðsyrðum. Og að lok- um mátti hann eiga von á því, að níðvísur yrðu ortnar um þetta. —- Hneykslið vofði yfír, að Akrióq neytti hvorki 6vefns né matar. Hann ók með stúlkuna ag húsi föð- ur hennar, fleygði henni af sleðan- um og þakkaði fyrir lánið: Hann var búinn að fá nóg af svo góðu. Kona með ekki meira hár en karlmaður var honum ekki hugleikin. Akrióq liraðaði sér síðan heim til sín, og Napsangúaq sat uppi með dóttur sína og skömmina, sem hlauzt af fíltæki hennar. Arnangúaq var enn þá verr sett en áður. Hjúskaparvonir hennar höfðu enn daprazt, því að nú hafði hún verið gerð afturreka. Ég vorkenndi Arnangúaq sárlega. Allt frá þeirri stundu, er ég steig fyrst fæti á grænlenzka grund, hafði seint og snemma verið fíl mín leitað í trausti þess, að ég hefði á taktein- um holl ráð eða eygði lausn á ásta- málum fólks. Ég veit ekki, hvers vegna ég naut svo einstaks trúnaðar- trausts, sem olli því, að mér fannst ég helzt vera eins konar farandráðu- nautur eða hjúskaparerindreki. En smám saman varg ég hinn slyngasti á þessu sviði, og í þetta skipti lagði ég mig allan fram. Ég hafði fyllstu samúð með innilegri löngun stúlkunn ar fíl þess að njóta gæða hjónabands- ins, og ég varð ag hafa hendur í hári brúðgumans, hvað sem tautaði og raulaði. Ég slóst í för með Napsangúaq, þegar hann hélt heimleiðis. Fólk var heima í flestum húsum í byggð hans um þetta leyti árs, svo að ég gat feng- ið nægjanlega marga tilheyrendur fíl þess, að för mín mætti heppnast. Eg lét ekki á mér standa að mi'ðla fólki af lífsreynslu minni og vizku. Ég mat- aðist hjá Napsangúaq, og allt foikið í byggðinni heiðraði gestinn að g unl- um sið með því að setjast einn,t að kræsingunum. Mér þóttí líklegi i ar- angurs að hefja ræðu mína, þegar allir voru mettir orðnir og samræður farnar að fíðkast. „Ég hef séð þessu líkt í mörgurn löndum“, sagði ég. „Konur vdja laða karlmennina að sér, og hver getur legið þeim á hálsi fyrir það? Ég veit þess nokkur dæmi meðal hMtra kvenna — jafnvel eiginkvenna beztu veiðimanna í fjarlægum löndum —• að þær hafi reynt að gera sig .em fallegastar“. Roskin kona greip fram i t'yrir mér af nokkrum móði: „Þessi kona óskaði að gera sig fallegri í augum manneskjanna en náttúran æUaðist til, að hún væri“. „Já, það er rétt. En ég þekki á rnörgum stöðum konur, er auka við það, sem náttúran hefur gefíg þeim, eða nema af því, hér um bd eftir geð- þótta. Það eru fíl konur, sem bæta við hárið, þegar þeim fínnsi pess þurfa við, bera á sig lit, ef það bætir um, og láta upp í sig nýjar tennur, þegar gömlu tennurnar eru dottnar úr þeim. Enginn álasar þeim fyrir það, og þær hafa á sér bezta orð“. Áheyrendur mínir göptu af undr- un, en þeim kom ekki til hugar að bera brigður á það, sem þeir heyrðu sjálfir af munni mínum. Þetta hlaut að vera svona, fyrst hann sagði það. „Hvað svo, ef mennirnir þeirra taka eftir þessu?" spurðu margir í einu. „Þeim þykir vænt um, ef konan þeirra vill vera kát og falleg og láta það sjást, ag henni líður vel í húsi þeirra“. Ég sá, að margir urðu hugsi við þessa röksemd. Og brátt lét þetta fólk, sem lifir lífi sínu norðan við allt og alla, sér skiljast kosti þess, að konan yki þannig hróður manns síns. Og ég hélt áfram ag fræða það um klækjabrögð siðmenningarinnar: Ofur lífíll litur getur orkað því, að þreytu svipur hverfi af andliti konu, dálítíð hár til viðbótar gerir hana unglegri og girnilegri, og þá öfunda þeir, sem ókunnugir eru, manninn hennar. Ég lét móðan mása, og Akrióq hlustaði á mig með vaxandi athygli. Það þurfti ekki að fræða hann á því, að sæmd manna er kröfuhörð, og konan á að vera stoð hans og stytta við að halda uppi sæmdinni, eins og í svo mörgu öðru. Og um nótfína læddist hann til stúlkunnar. Foreldrar hennar létu af nærfærni sinni sem þau yrðu þess ekki vör. En hjónabandinu var borg- ið. , J- H. þýddi. 21° T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.