Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1963, Page 4
NY GHSLAORKA FUNDIN
- ÓHÁO TÍMA OG RÚMI
ÁRIÐ 1960 kom út bók eftir danska
heimspekinginn Paul Goos, sem heit-
ir á frummálinu „Hinesides vor verd-
en“. Bók þessi er ekki heimspekinit
eins og ætla mætti í fljótu bragði af
titlinum. Ilún fjallar um vísindastarf
og tilraunir ensks verkfræðings, Ge-
orge de la Warrs, og samstarfsmanna
hans undanfarna áratugii á tilrauna-
stofnun de la Warr I Oxford, sem
við hann er kennd.
Hér verður enginn dómur lagður
á það, hvort tilraunir þær, árangur
og uppgötvanir, sem bókin skýrir frá,
hafi við raunveruleg haldgóð rök og
sannanir að styðjast, þótt hinu verði
hins vegar ekki neitað, að margt virð-
ist renna stoðum undir það, að bókin
. greini frá vísindastarfi, sem — ef rétt
• reynist — eigi eftir að valda alda-
- ihvörfum í nútímavísindum og við-
borfum. Það er ekki ag efa, að margt
af því, sem hér verður borið fram
mun láta ótrúlega í eyrum margra, en
athuganir höfundarins sjálfs í Dela-
vvarr-tilraunastofnuninni í Oxford,
rökleiðslur, vísindaleg framsetning
og sönnunaraðferðir hámenntaðra
vísindamanna, verkfræðinga og
lækna, sem starfa vig stofnunina,
mega virgast hlutlausum augum nokk
ur trygging fyrir því, að þar séu að
verki menn, sem setja vísindalegan
árangur á vísindalegum grundvelli
ofar öllu öðru.
í stuttu máli greinir bókin frá því,
að de la Warr hafi tekizt að búa
til tæki, sem sýni og sanni geisla og
krafta, sem ekki eru skynjanlegir
með þeim aðferðum, sem til þessa
- eru kunnar. Enn fremur hefur hon-
um heppnazt að búa til eins konar
myndatökutæki, sem nemur þessa
krafta og festir orkusvið þeirra á
veniulega ljósmyndaplötu — þannig
getur hann til dæmis myndað það
orkusvið, sem stjórnar hinni efnis-
i legu uppbyg.gingu allra efnislegra
! líkama, blóma eða annars efnis. Með
sérstökum athugunum og greiningu
á blóðdropa í sjúkdómsgreiningar-
tæki de la Warrs hefur komið í ljós,
að hin kerfisbundna orka, sem bygg-
ir upp dropann, er óháð tíma og
rúmi. Þetta þýðir, að orkusvið drop-
ans er í órjúfandi sambandi og óað-
skiljanlegur hluti þess heildarorku-
sviðs, sem stjórnar uppbyggingu lík-
amans, sem blóðdropinn er úr, —
þetta samband helzt burt séð frá því,
hvort blóðdropinn er í Oxford og
líkaminn (til dæmis) í Smgapore.
Leggi maður blóðdropann í greining-
artækig og stUli þag (líkt og þeg-
ar útvarp er stillt á ákveðna bylgju-
lengd) á eitthvert líffæri í líkaman-
um, sem blóðdropinn tilheyrir, er
hægt á fá fram mynd á ljósmynda-
plötu af orkusviðinu, er byggir upp
líffærið, sem tækið er „stillt" á. —
Stilli maður tækið síðan á-annag líf-
færi í þessum sama líkama og hafi
sama blóðdropa í greiningartækinu,
fær maður mynd af uppbyggingar-
sviffi þess líffæris o. s. frv. burt séð
frá því, hvort blóðdropinn er í Ox-
ford, en lí'kaminn í einhverri ann-
arri borg. Enn fremur, — hafi mað-
ur fundið „stilli-formúluna“, sem
táknar tíðni orkusvæðisins í heil-
brigðu líffæri, er hægt að greina hugs
anlegan sjúkdóm með því að finna,
aff „formúlan" hefur breytzt — þ. e.
a. s. tíðnin er þá orðin önnur en í
hinu heilbrigða líffæri. De Warr læt-
ur einnig í ljós þá skoðun, að mögu-
legt sé meff svipuðum hætti að „fjar-
lækna“ (þ. e. lækna sjúkling, sem
hvergi er nálægur) marga sjúkdóma,
sem eiga rót sína að rekja td breyt-
inga á tíffni orkusviðanna. Hann hef
ur að sögn Poul Goos uppgötvað að-
ferð til þess að leiðrétta þessa röngu
bylgjutiðni og þar með séu sjúkdóm-
ar, sem hún veldur, úr sögunni.
★
Rétt er að taka það fram, áður en
lengra er haldiff, að ekki er mögu-
legt að gefa neina heildarmynd af
frásögn og skýringum Paul Goos á
vísindastarfi de la Warr vegna tak-
markaðs rúms í blaffinu, því síður að
hægt sé að rekja lið fyrir Uð í rök-
rænu samhengi tilraunastarf de la
Warr, sem leitt hefur til margs kon-
ar árangurs og uppgötvana, sem hér
verður lítillega greint frá og stiklað
á stóru.
Poul Goos hefur mál sitt með þvf
ag skýra frá, aff áriff 1952 hafi kom-
iff út bók hjá bókaforlagi „Pantheon
Books Inc-“ í New York eftir ein-
hvern mesta kjarneðlisfræðing nú-
tímans, nóbelsverðlaunahafann próf-
essor Werner Heisenberg, sem var
samverkamaður Einsteins.
Bók þessi ætti að hafa vakiff mjög
mikla athygli meðal raunvísinda-
manna, en hafi að líkindum ekki náð
nema til fáeinna meffal þeirra. Maður
skyldi ætla, segir Goos, að þegar
meistarinn talar, hlusti að minnsta
kosti hinir leiffandi vísindamenn nú-
tímans, aftur á móti virðist ekki
greinileg nein breyting á viffhorfum
minni spámannanna", sem enn séu að
reyna af veikum mætti að telja sam-
tíðinni trú um, að grundvöllur raun-
vísindanna hafi ekki breytzl til mik-
illa muna og það sé enn góð latína
aff bera fram grundvallarsetningar
efnishyggjunnar frá síðustu aldamót-
um.
HÚFUNDUR SKÝRiR FRÁ ÞVÍ, AD FUNDiZT HAFI
NÝ GEISLAORKA, SEM ER ÓHÁÐ TÍMA 0G RÚMI
— TEKIZT HAFI AÐ FESTA GEISLAFORM HENNAR
Á LJÓSMYNDAPLÖTU. MEÐ TILSTILLI HENNAR,
SEGIR HANN, AÐ UNNT SE AÐ GREINA SJÚKDÓMA
GEGNUM ORKUSVIÐ BLÓÐDROPA 0G FJAR-LÆKNA
MENN, DÝR 0G PLÖNTUR, MEÐ SAMSTILLINGU
ÞESSARAR GEISLAORKU 0G HUGARORKU MANNS-
INS.
436
jflllNN - SUNNUDAGSBLAÐ