Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1963, Blaðsíða 17

Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1963, Blaðsíða 17
Gvendur fylgdi ekki foreldrum sín- um á ferli þeirra, en ólst upp í Hafra- fellstungu til tíu ára aldurs, e. t. v. síffasta árið á Gunnarsstöðum í Þistil- firði. Árið 1845 fluttist móðir hans frá Gunnarsstöðum að Desjarmýri til frænda síns séra 'Sigurðar Gunnars- sonar með fjögur böm sín. Þá fór Gvendur að Hjartarstöðum í Eiða- þinghá til Guðnýjar móðursystur siirnar og manns hennar Vilhjálms Árnasonar. Hjá þeim dvaldi hann til 19 ára aldurs, en fór þá að Gilsár- völlum til móður sinnar, ®em var þá gift aftur Ólafi Stefánssyni bónda þar, en hann mun þá fyrir stuttu hafa verið orðinn ekkjumaður. Dvald- ist Gvendur svo á Gilsárvöllum í skjóli móður sinnar og hálfsystur Stefaníu þar til 1874, að hann fer að Laxárdal í Þis’tilfirði. Þar bjuggu þá Kristín systir hans og Jón Björnsson maður hennar. Hjá þeim átt'i hann heima í átta ár, en kom þá austur aftur að GilsárvöEum. Fardagaárið 1884—85 er Gv-endur skráður vinnumaður á Hjaltastað hjá séra Stefáni Péturssyni. Feril Gvend- ar næstu fimm árin hefur ekki enn tekizt að grafa upp. Líkindi eru þó til, að hann hafi þau ár verið í Klúku, því að sumir köíluðu hann Klúku- Gvend. Frá 1890 er Gvendur skráður sveitarómagi á Borgarfirði tU heim- ilis á Gilsárvöllum. Gvendur var farinn nokkuð að reskjast, þegar ég fyrst man eftir honum svona stuttu eftir 1890. Hann var hár maður vexti og þrekinn lika, bolbreiður, fótstór og handleggja- langur, en liðamót öll voru gild og sterkleg. Hár hans var þá orðið nokk- uð hæruskotið, skolgrátt að lit. Skegg- ið, sem líklega hefur einhvern tíma verið gult eða rauðgult, var gulgrátt orðið, skeggstæðið mikið, óx næstum upp undir augu og langt ofan á háls- inn. Ekki var það sítt, en þykkt mjög, framstætt um hökuna og brúsaði út á vöngum, svo að andlitið sýndist nokkuð breitt. Hárskúfar miklir héngu fram af augnabrúnunum, sem með miklu leyti huldu augun, en þau voru ljóshlá. Hann var seinn £ snún- ingum og hreyfingar allar stirðar og ófimlegar. Þegar hann gekk, fór hann ætíð hægt, tók fæturna naumast al- veg hvorn fram fyrir hinn, geld< gleiður, ruggaði út á hliðarnar. Var hann þá oft eitthvað að tauta við sjálfan sig og púaði í skeggið, pú, pú, pú- Undarlegt þótti sumu fólki, hvað Gvendur gat verið ankannalegur og auðnulítili, svo vel kynjaður sem hann var. Mam ég, að talað var um það og ýmiislegs til getið um, því hanin hefði orðið svona. en sagt var, að hann hefði upphaflega verið efnilegt barn. Töidu sumir hann hafa orðið svona út úr veikindum. Aðrir sögðu hann hafa sofnað úti í sterku sólskinj og orðið viðutan af þeim sökum. Svo voru enn aðrir, sem mun hafa þótt trúlegast, að hann væri bara umskipt- ingur og þá náttúrlega átján barna faðir í álfheimum, sem huldukona hefði komið af sér í skiptum fyrir barn mennsku konunnar. Mun sú trú alll'engi hafa haldizt hjá sumu íólki, að slíkt gæti átt sér stað, ef ekki væri gætt fyllstu va-rúðar með að skilja aldrei barn einsamalt eftir, nenra hafa áður gert krossmark bæði yf[r því og undir, ef þurfti að ganga í burtu frá þvi. En krossinn var líka óbrigðul vörn til þess að geta séð við slíkum glettum frá huldufólki. Ekki • nu;n Gvvsidoi hala verið neitt sérlega ófríður maður, en hann klædd ist löngum einhverjum fatalörfum, sem ekki voru við hans hæfi og hon- um munu hafa verið gefnir stu'ndum þar senr hann var á ferð, ofta-st of stórir. En allir þekkja. livað bað getur umskapað hvern og einn að vera ve] eða illa t:l fara Þá sjaklan að sást, að einhver hafði tekið sig til að snyrta Gvend, laga á honum skeggið og klippa hár hans, sem venjulega hékk í flóka-bendlum niður á jakkakragann, var sem hann yrð> allur annar og miklu mennilegri Sem áður segir, fluttist Soffia móð- ir Gvendar að Desja-rmy: 18-ty >g EFTIR HALLDOR ARMANNSSON T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 449

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.