Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1963, Blaðsíða 22

Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1963, Blaðsíða 22
Ýtt úr vör - - - Framhald af 435. síðu. „Svona spírur ætti að skera við tr-og_“. „Ég hafði rétt setzt með herkjum upp, þegar ein hjúkkan skipaði: — Leggstu niður!“ „Leiðinda rollur“. Því lengur, sem við ræddum saman, því betur féll á með okkur. Hún færi senndega ekki spor, þótt herbergið væri enn minna en raun bar vitni. Jafnvel þótt ég myndi slysast td að hætta að styðja við rúmið með fæt- inum, og það kollsteypast, kynni hún ef til vill líka að geta fyrirgefið það. „Hafið þið hjúkkur hérna?“ spurði frúin. „Já, en það gerir ekkert til“, sagði ég brosandi. „Komuð þér ekki með fjórar þernur? Látum pær allar búa á sjúkrahúsinu, og allur vandinn er leystur. Yðar eigið fólk annast yður auðvitað allra bezt, ég skipa hjúkk- unum að láta hreinlega ekki sjá sig. Væri það ekki fyrirtak?“ „Það er ástúðlega hugsað. Hefurðu nóg rúm?“ Frúin virtist naumast trúa sínum eigin eyrum. „Það hef ég. Þér fáið þessa íbúð eingöngu fyrir yður. Auk þernanna er ekkert því til fyrirstöðu að mat- reiðslumaðurinn búi hérna einnig. Þér borðið hvað sem yður langar I. Ég tek aðeins spítalggjald af yður einni. Þernurnar og matreiðslumaður inn mega búa hér ókeypis Ég reikna þér fimmtíu dali á dag“ Frúin varpaði öndinni léttar: „Skipt ir engu, hve peningarnir verða mikl- ir, ef ég má hafa það þannig. Vorang- an, þú ferð heim og sækir matreiðslu manninn, segðu honum að taka með sér tvær kippur af öndum“ Ég fékk eftirþanka: Hví að setja aðeins upp fimmtíu dali? Mig langaði að snúa upp á trantinn á sjálfum mér. Tii allrar hamingju voru meðulin ekki innifalin. Ekki allur dagur úti enn; ég gæti bætt þetta upp á með- alareikningnum. Hins vegar hlyti að minnsta kosti einn sonur frúarinnar að vera borgarstjóri eftir öllu fylgd- arliðinu að dæma. Þar að auki hlyti hún að fara af spítalanum eftir þrjá til fimm daga, ef hún æti steiktar end ur hvern dag. Það var betra að sjá fram í tímann Það sópaði að sjúkrahúsinu' okkar. fjórar þernur hlupu út og inn eins og skyttur í vefstóli Matreiðslumað- urinn hafði hlaðið upp eldstó við einn vegginn í húsagarðinum, eins og það stæði til að halda stórfagnað. Við vorum ekki með neina óþarfa kurteisi, stungum upp í okkur ávöxtum frúar- innar eftir hendinni, og ef hugurinn girntist, hurfu líka vænir bitar af önd um ofan í okkur. Aldrei fór neinn til að huga að veikindum frúarinnar, öll eftirtektin beindist að því lost.æti sem hún lét kaupa i matinn. Ekki var hægt að segja annað, en við Wang hefðum þegar ýtt giftu- samlega úr vör. Tsjú hafði hins vegar engan frið í sínum beinum. Hann var alltaf að handfjatla skurðarhnífinn. Ég beinlinis forðaðist hann, vissi ekki nema hann myndi reyna bitið á mér. Wang bað hann að bíða rólegan; en hann var alltof framgjarn, gat ekki þolað að afla ekki sjúkrahúsinu tekna. Ég dáði þennan eiginleika hans. Eftir hádegisverðinn kom einn til uppskurðar vegna erfiðleika á gangi. Rúmlega fertugur, feitlaginn með gríðarstóran maga. Frú Wan,g hélt hann kominn til að ala barn, en upp- götvaði síðar á honum karlmanns- skapnað og sendi hann loks til Tsjús. Auku hans hlupu saman í einn blóð- kepp. í stuttu máli, hnífur Tsjús stakkst inn á augabragði, þessi fer- tugi fitukeppur veinaði af sársauka, bað Tsjú að nota svolitla ögn af deyfi lyfi. En Tsjú hafði sínar athugasemd- ir að gera: „Tókum það aldrei með í samkomulagið. Ekki þar fyrir, ég get notað það, en þá verðurðu að bæta við tíu dölum. Viltu það eða viltu það ekki? Svaraðu fljótt". Litli fitukeppurinn þorði einu sinni ekki að kinka kolli. Tsjú gaf honum deyfilyfið. Hnífurinn fór enn á kaf, en stöðvaðist svo óvænt. „Ég segi þér að þú sért með kýli í vélindinu. Á ég að halda áfram að skera? Ef ég geri það, verðurðu að bæta við þrjátíu döl- um. Annars er þetta búið“. Ég stóð til hliðar, það hlakkaði i mér. Þarna var Tsjú lifandi kominn. Færði sig lengra upp á skaftið, þegar handfestunni var náð, það var lóðið. Rúmlega fertugur fitukeppurinn hreyfði engum mótmælum. Mér tald ist til, að honum væri ekki heldur greiður vegurinn. Skurðaðgerð Tsjús var snyrtile,ga af hendi leyst, hann kom líka vel fyrir sig munni, skar og rak áróður í sömu andránni: „Ég get fullvissað þig um að þetta er vel tvö hundruð dala virði; ekki svo að skilja, ég reyti aldrei fé út úr mönnum. Bið þig aðeins að halda nafni spítalans á loft, þegar þú ert orðinn rólfær. Ef þú hefur tíma, er ekkert á móti því að þú komir á morgun að líta á skurð inn. Kollegar mínir skulu eklti finna einn sýkd þótt þeir beiti 45000 faldri smásjá“ Fitukeppurinn kom ekki upp Lausn 80. krossgátu nokkru hljóði, sennilega gersamlega ruglaður í ríminu. Tsjú fékk fimmtíu dali. Að kvöldl sama dags náðum við okkur í vínleka og fengum matreiðslumann frúarinn ,ar til að framreiða rétti með víninu. Bróðurpartur þess, sem þurfti til mafc- reiðslunnar, var tekinn af birgðum hennar. Við ræddum framtíðarverk- efni okkar meðan við gerðum olckur gott af matnum. Við ákváðum að bæta fóstureyðingum og lækningum við ópíumneyzlu við starfssvið okkar. —- Wang stakk upp á að við útbreiddum í laumi, að við gæfum heilbrigðisvott- orð öllum þeim, sem þeirra þyrftu við til að innritast í skóla eða af öðr- um ástæðum. Skipti engu hvort við- komendur væru klæddir líkvoðunum og þess albúnir að steypast í gröfina, við skyldum votta heilsufar þeirra í bezta lagi, aðeins ef fimm dala greiðsla kæmi fyrir vottorðið. Slíkir hlutir gengu Þka sinn gang án alls args og óþæginda. Faðir Tsjús kom að síðustu með þá uppástungu, að við eyddum nokkrum dölum í að koma upp skilti með fögrum, hjartnæmum málshætti. Gamlir menn grípa til gamalla ráða. Ekki þar fyrir, uppá- stungan sýndi fallega góðan hug hans til spítalans. Við féllumst á að hreyfa engum mótmælum. Tsjú gamli hafði þegar valið málsháttinn: Göfugt hjarta — göfug hönd. Það var að vísu farið að slá nokkuð mikið í hann þennan, en engu að síður, hann hitti beint í mark. Við bundum fast- mælum að senda Tsjú gamla strax morguninn eftir til að kaupa gamalt skilti. Frú Wang vildi mála það fag- urlega og bíða, unz brúðargöngu bæri fyrir td þess að hengja það upp við hljóðfærasláttinn. Þetta sannaði enn hárnæman smekk kvenþjóðarinnar. — Wang var augsýnilega hreykinn af konu sinni 454 T t M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.