Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1963, Side 15

Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1963, Side 15
Þótt í flóttamannabúðum sé, bregða börnin á leik. Og hvað liggur beinna við fyrir ungling, sem víða hefur ratað, þrátt fyrir fárra ára ævi, en að venja sig við akstur hjólatækja? kom fyrir alls konar misskilningur og jafnvel rígur. En við friðsamleg störf tókst samvinna hinna ólíkustu þjóð- ema ágætlega. Og aðalstarf okkar í Kongó átti að vera friðsamlegt, eigin- lega lögreglustarf, þótt ekki yrði hjá því komizt að beita hernaði til þess að unnt væri að rækja lögreglustörfin. Og ef frá eru skildir bardagarnir í Katanga, hafa störf okkar að mestu verið friðsamleg. Furðu lítið hefur verið um árekstra milli okkar og íbú- anna. Auðvitað kemur öðru hverju upp einhver smáágreiningur, deilur og jafnvel slagsmál á veitingahúsum og strætum úti milli okkar manna og Kongóbúa, eða milli annarra hvorra innbyrðis, en það er ekkert meira en kemur fyrir í Svíþjóð, Danmörku og yfirleitt öllum löndum. Það er sem betur fer sjaldgæft, að ráðherra blandist í slíkt eins og fyrir kom í haust með utanríkisráðherrann, Bom- koko. Yfirleitt virtust íbúarnir taka okkur vel, og á kynþáttahatri, óvild gegn okkur sem hvítum mönnum, virtist alls ekki bera neitt. Ég held, að slíkt sé ekki til. Og það virðist sem fólki finnist, að Belgíumenn hafi farið of snemma burt úr landinu. Mörg fyrirtæki hafa lokað við brott- för þeirra og margir hafa misst at- vinnuna við það. Eg held, að Svert- ingjunum finnist þeir þurfa á aðstoð Evrópumanna að halda enn þá. Ég spyr Persson að því, hvort það sé alvanalegt, að liðsmenn í her Sam- einuðu þjóðanna gegni störfum jafn- lengi og hann hefur gert, nærri þrjú ár. — Nei, það venjulega er, að sami maðurinn sé í Kongó sex mánuði eða heilt ár. Það er skipt um hersveitir á sex mánaða fresti, og hvert sex mánaða tímabil hafa verið 800 til 1000 sænskír hermenn í einu í Kongó. Ég er búinn að vera þar ári lengur en gert var ráð fyrir í upphafi. Annars hef ég verið víðar en þar. Ég var í Ghana áður en Kongódeilan hófst, en þar hafa Sameinuðu þjóðirnar eftir- Þtsher og hafa _haft síðan 1956 að Súezdeilan stóð. í Ghaza hafði ég ver- ið í sjö mánuði, þegar ákveðið var að senda sænskar hersveitir til Kongó og voru fyrstu sveitirnar flutt- ar frá Ghaza. í Kongó var ég svo á ýmsum stöðum. Fyrst var ég í Kat- anga og lenti í bardögunum þar haustið 1961. Þá fékk ég jólaorlof í þrjár vikur og fór heim, en eftir það tók ég við störfu-m í aðalstöðvunum í Leopoldville. Það voru störf af allt öðru tagi en í Katanga, ekki vígvalla- hernaður, heldur friðsamleg skipu- lagsstörf. Síðan var ég um tíma við flóttamannabúðir í Burundi austan við Kongó. — Burundi er nafn, sem líklega stendur hvergi á landabréfum enn þá. Það hét áður Urundi, og var í stjórn- arfarslegum tengslum við Ruanda, en hvort tveggja voru belgísk vernd- arsvæði. Þessi lönd hlutu sjálfstæði 1. júlí 1962, og þá var b-i bætt fram- an við Urundi, svo að löndin heita núna Burundi og Ruanda. Þegar þessi lönd fengu sjálfstæði, höfðu menn víti Kongós til varnaðar, og sjálfstæðistökunnar var á engan hátt minnzt þá strax eða nein gleðilæti höfð í frammi á sjálfan sjálfstæðis- daginn. Það var ekki fyrr en séð var, að stjórnarfar landanna ætlaði að reynast nokkuð traust og engin hætta var talin á, að veruleg átök brytust út, að sjálfstæðinu var fagnað, og þá var komið fram á haust. Það er þó kannski ofmælt að seg'ja, að engir árekstrar hafi átt sér þár stað. Þegar Ruanda hafði fengið sjálf- stæði, fiúðu þaðan nærri 175 þúsund- ir manna. Þeir voru allir af Watutsi ættbálknum, en hann hafði áður ríkt yfir landinu. Ruanda var áður kon- ungsriki, og þá voru Watutsarnir (se-m voru komnir að norðan, frá Etiopiu og Nílarlöndum, eins og fleiri yfir- stéttarmenn í Mið-Afríku) þar yfir- stéttin. En við sjálfstæðistökuna náði Bahoutu ættbálkurinn_ völdum, enda miklu fjölmennari. Áttatíu prósent af íbúum landsins eru af þeim ætt- bálki, en aðeins fimmtán prósent íbú- anna eru Watutsar. Nú flúðu Watuts- arnir sem sagt í allar áttir, til Kongó í vestri, til Uganda í norðri, til Tanga- nyka í austri og suður til Burundi. — í Burundi og reyndar í fleiri löndum hefur Rauði krossinn sett á fót flóttamannabúðir til að aðstoða Framhald á bls. 453. T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ 447

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.