Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1963, Page 20
ir núna, Gvendur minn“. „Æ, skiptu
þér ekki af þí, éld þú gefir onum
Gendi ekki neina skó“, svaraði
Gvendur. „Þé e bezt að hussa um káp
una þína, sem fannst í Vestdalsánni“.
Sýnir svar Gvendar, að eitthvað hef-
ur hann fylgzt með því máli, s'em
var þá allmikið umtalað. En það var
upphaf þess máls, að mánudaginn
14. janúar 1901 famnst peningakassi
bæjarsjóðs Seyðisfjarðar ekki, þegar
taka þurfti til hans til að greiða
verkamanni kaúp. Gjaldkeri bæjar-
sjóðs var þá Árni Jóhannsson, sýslu-
skrifari. Fimmtudagsmorguninn 24.
janúar fundu drengir bl'áa kápu Jó-
hannesar sýslumanns frosna niður
við skör að kvísl úr Vestdalsá. Á
svipuðum stað fannst peningakassinn
sem stolið hafði verið af bæjarskrif-
stofunni. Af þessu spunnust mikil
málaferli, en aldrei hefur sannazt,
hver þjófnaðinn framdi. Oddrún
nokkur Sigurðardóttir, sem dvaldi
nokkur ár á Seyðisfirði, bar út þá
sögu, að hún hefði staðið þá Árna
sýsluskrifara og Friðrik Gíslason úr-
smið að því að koma kassanum fyrir
í ánni eftir þjófnaðinn. Var hún hin
versta kjaftakerling og hrökklaðist
nokkrum árum síðar af Austurlandi.
Eftir kápufundinn fór ekki hjá því,
að bæjarslúðrið bendlaði Jóhannes
bæjarfógeta við málið l'ika. (Sjá Odd-
rúnarnál eftir Jón Helgason í bók-
inni íslenzkt mannlíf).
Tdja má nokkurn veginn víst, að
Gvendur hafi verið fílefldur að kröft-
um, ef dæma má eftir útliti hans og
sögusögnum af honum. Ein saga
hermir, að hann hafi einhvern tíma
í Klúku dregið þar einsamall upp úr
feni hryssu, sem orðin hafi verið þar
föst niðri í og hætt öllum tilraunum
við að komast sjálf upp úr. Hafi hún
á eftir verið draghölt og aumingja-
leg. Hafði þá Gvendur sagt, að „púls-
æðin“ væri slitin í merinni og henni
nnind; seint batna. Þótti þetta rætast,
að hryssunni batnaði ekki heltin og
varð að lóga henni, Öðru sinnj var
sagt, að Gvendur hefði dregið upp úr
pytti eða grafningi hræ af hesti, sem
legið hefði niðri vetrarlangt, til þess
að geta flegið af honum bjórinn.
Fleiri sögur áþekkar eru til um
Gvend.
Tilsvör Gvendar gátu stundum ver-
ið snjöll, svo að þau hafa geymzt en
ekki gleymzt. Eilt sinn, er Gvendur
var staddur á Seyð’sfirði, kom hann
bar -að, sem fjöldi fólks hafði safn-
izí :-3.man og horfði á hús, sem stóð
í fejörtn báli. Emhver veik sér að
Gv.mdi og spyr, hvernig honum gef-
iit á '■$ Hta hsúbrunann. Gvendur
Iiafð'i ekki svarið alveg á reiðum
en segir eftir augnabliks
umhugsun: „Það er bæði tignarlegt
og hræoilegt". — Vafasamt hvort
aðrir hefðu svarað þessu eins vel eða
betur.
Kona sagði við Gvend, eða svo að
hann heyrði, eitthvað á þá leið, að
mikið mætti hann verða feginn, aum-
inginn, þegar hann fengi að deyja og
losna við þetta sífellda rjátl, sem
hann væri alltaf á. Gvendur var
„gæðakonunni góðu“ ekki meir en
svo sammála um það, því að hann
sagði: „Æ, éld þa sé nógur tíminn
að veltast í moldimni".
Þá set ég hér að lokum eina stutta
sögu af Gvendi, sem er orðrétt höfð
eftir Sigurbirni Snjóffssyni í Gilsár-
teigi.
Lárus Eiríksson, sem kallaður var
snikkari, var bróðir Jónasar fyrrver-
andi skólastjóra á Eiðum, föðurbróð-
ir Þórhalls hreppstjóra á Breiðavaði
og þeirra bræðra. Lárus hafði á viss-
an hiátt mikið uppáhald á Gilsárvalla-
Gvendi, einkum var það vegna hnytti-
legra tilsvara Gvendar, sem hann
kunni vel að meta, því að hann var
greimdur vel' og gamansamur.
Einu sinni sagði Lárus þessa sögu
af orðaskiptum Gvendar við sig: —
Ég var við smíðar á Hallormsstað
einu sinni sem oftar og kom þá Gvend
ur þar á ferðalagi sínu inn Hérað.
Það var vandi hans að gista fremur
á betri heimilum, auk þess sem hann
taldi til frændsemi við Elísabetu á
Hallormsstað (móður Sigrúnar Blön-
dal og Guttorms skógarvarðar — þeir
Gvendur og séra Sigurður Gunnars-
son, faðir Elísabetar, voru systrasyn-
ir). Segir hann við Lárus, svona til
að fá hann í orðahnippingar við sig:
„Alltaf ert þú hér“. Lárus anzaði
engu. Gvendur heldur áfram:
„Kannski þú sért trúlofaður". Ekkert
svar frá Lárusi. „Kannski frænku
minni“. Þá segir Lárus: „Hel'durðu
ég kæri mig um hana, afgamla kerl-
inguna". Gvendur sneri sér þá frá
Lárusi með hreint ólýsanlegri fyrir-
litningu, bæði í orðum og látbragði,
og sagði: „Æ, skítt á þig“. — Þegar
Guðmundur lá banaleguna, bað hann
fólk sitt að skila til Lárusar hinztu
kveðju sinni.
Eins og áður segir, var Gvendur
alltaf einfær um að komast það, sem
hann ætlaði sér. Njarðvíkurskriður
voru oft, áður en bílvegur var rudd-
ur um þær, heldur óárennilegar í
hörkum og veðraham á vetrardaginn,
sást þá víða ekkert fyrir götu eftir
að harðfenni voru komin í skriðurn-
ar, og margir voru þeir, sem alls ekki
höfðu kjark til að fara þær fylgdar-
laust. Þetta fór Gvendur án fylgdar,
eins eftir að hann var gamall orðinn,
oft með allþunga bagga á baki. Bár
það ótvírætt vit'ni um kjark hans og
áræði.
Seinustu ferðina, sem Gvendur
lagði í til Héraðs, kom haon að
Snotrunesi að áliðnum degi og gisti
þar eins og svo oft áður. Enginn mun
hafa fundið á lionum neinn bilbug
með að ieggja upp í þessa ferð frek-
ar venju, var þó ailmikill snjór og
tíðarfar stirt. Lagði Gvendur svo af
stað um morguninn, um það bil að
fullbjart var orðið, hress og glaður
eins og vanalega, án þess að kvíða
neinu. Munu þó skriðumar í þetta
sldpti hafa verið með lakara móti.
Þeta mun hafa verið á góu eða
snemma á einmá'nuði 1905. Eitthvað
komst hann norður í skriðurnar, en
haft hefur verið fyrir satt,' að hann
hafi mætt þar sjálfum sér (svipnum
sínum). Varð han.n þá hræddur og
sneri aftur, kom aðeins við á Snotru-
nesi, næst'a bæ við skriðurnar, en
slóraði ekki. Komst hann heim að
Gilsárvöllum um kvöldið. Var hann
þá orðinn veikur af garnaílækju og
varð hún hans hani. Munshann þá
hafa verið á sjötugasta aldursári.
Guðmundur tók hetjulega dauða
sinum. Þegar hann fann, að ti'i eins
mundi draga fyrir sét, var haft eftir
honum: „Þa e bezt a fara a bera mig
út' í skemmu, é er dauur hvort sem
er“. Rétt á eftir var hann liðið lík.
Heimil'dir: Halldór Stefánsson
fyrrv. alþingismaður. ísi. þjóð-
sögur og sagnir Sigfúsar Sig-
fússonar. „Völuskjóða" Erlu
skáidkouu. Gunnlaugur Jó-
hannesson. Eigið minni og
fleira, sem f'ram kemur f þætt-
inum.
^2*£££t2t0*2*0*0*0*0#0*0*0*0«oeo*0#0*°*0#0*c*cí2£2£
■>«q»o«o*o«o*o«o*o»o«o«o*o*o«o*o*o«o»q»o«o»o»o*o*o»o
o*
Allmörg töIublöÖ af |
fyrsta árgangi Sunnu-
dagsblaísins hafa lengi |
§ verií ófáanleg, einkum §§
fyrstu blöíin, er prent- |
uð voru í mun minna
r.
8§
upplagi en hin sííari.
| Gintök af þessum blöS-
um kosta nú þegar orcJ- :•
iS tuttugu til fjörutíu
krónur hjá fornbóksöl-
um, og skal fólki, er á
þau í fórum sínum, bent
á aí fleygja teim ekki,
Jjví aS vafalaust hækka
þau í verÖi til mikilla
muna, þegar fram Iíða
stundir.
So«o»o»o»o*o»Q*o*o*o»o»o»o*o»o*o«o»o»ofo*oto*o*o«
•J»0*0»0*0*QéQ»0»0»Q»0*0*0*Q»U*0«0«0«0*0*0»0»0*.
452
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ