Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Side 3

Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Side 3
annað að gera en reyna að færa bátinn fram fyrir klettatangann og setja hann upp skjólmegin f tnalarfjöru, sem þar var. Bátnum, sem var sjö smálestir, var svo þokað meðfram tanganum og tókst það án skemmda á honum, og var hann svo dreginn upp í fjöruna og bundinn þar, svo að hann hagg aðist ekki í varinu við tangann. Þetta voru fyrstu kynni mín af séra Þórarni, og viðtökurnar, sem við Einar fengum á Valþjófsstað, voru með iþeim höfðingsbrag, sem ekki gleymist. Við Einar héldum svo áfraim ferð okkar og starfi daginn eftir. Lá nú leiðin út með fljótinu með viðkomu á þeim bæjum, þar sem fjárvon var. Sóttist ferðin því fremur seint, og gistum við á Ormarsstöðum næstu nótt og höfð um þar ágætan beina. Þá bjó Þórarinn Sölvason á Ormarsstöð- um stórbúi. Á Ormarsstöðum var mikill bær í gömlum stíl og virtist hinn ágætasti. Man ég þar eftir tveimur ágætlega búnum sam- liggjandi stofum, borðstofu og viðhafnarstofu. En djúpar þóttu mér gluggakisturnar. Þó var ágæt birta í stofunum. Þarna á Ormars stöðum var vigtað allmargt fé. -Þaðan héldum við svo út Fellin og mig minnir, að síðast vigtuðui.n við fé hjá Runólfi Bjarnasyni, bónda á Hafrafelli. Runólfur var maður gestrisinn og skemmtilegur. En nú var kominn í okkur hugur a'ð komast sem fyrst heim, enda erindinu lokið. Góðgerðir urðum við þó að þiggja 'að loknu starfi- Héldum við svo af stað, og var þá komið kvöld. Hugðumst við hvíla okkur á Egilsstöðum. Þgngað komum við nokkru eftir háttatíma. Samt fór Einar og vakti einhvern til þess að vita, hvort við gætum fengið gistingu. En þá var þar svo mikið af gestum, að engin leið var að hýsa okkur. Við fórum því í hlöðu, sem var þar á hlaðinu, og þar ætluðum við að blunda. Nú var góðviðrið, sem við höfðum fengið í ferðinni, á enda og kom- in rigning. Við fórum inn um vindaugað á hlöðunni, sem var full af heyi, og hafði myndazt stakkur ofan á heyinu, og einhverjir dropar drupu úr þakinu, svo að þarna var ekki sem vistlegast- Samt lögðum við okkur út af i reiðfötunum, en ekki varð okkur svefnsamt. Við höfðum okkur því á fætur og tókum hesta okkar klukkan þrjú eða fjögur um nútt ina og lögðum á Fjarðarheiði. Ferðin gekk greitt. Dálítið rigntíi Sigurður Vilhjálmsson á Hánefsstöðum. á leiðinni. Hestarnir voru heim- fúsir og furðuléttir í spori, þótt þeir væru slæptir eins og við Ein ar eftir daginn á undan, og hvíid in lítil. Við komum svo um fótaferðar- tíma í kaupstaðinn. Þar með lauk þessari fyrstu markaðsferð minni. Eg hélt svo heim að Hánefsstöðum, eftir að ég hafði notið góðgerða hjá Einari og konu hans. Næstu tvö haustin fékk Stefán mig í þessar ferðir, og fór ég þá einn eins og áður segir. Þá fékk ég í veganesti lista yfir skuldir nokkurra bænda, og átti ég að finna þá og krefja um greiðslu ðg taka kindur upp í skuldina. Kaup félag Héraðsbúa var þá að færast í aukana og fékk svo til allt fé a svæðinu, sem ég átti að fara um. Áætlunin um ferðirnar var meö svipuðum hætti eins og áður, og eitthvað tíndi ég saman af kindum í þessum ferðum. Nú man ég ekki lengur töluna. Þessar markaðsferðir lögðust svo niður. Héraðsfé fór allt tii slátrunar hjá Kaupféiagi Héraðs- búa, og sláturfjárrekstrar yfir Fjarðarheiði lögðust með öllu nið ur. Síðasta ferð mín endaði með því, að Stefán bað mig um að reyna að kaupa áttatíu kindur af vinnumanni einum, sem hafði kom ið með kindur sínar til Seyðisfjarð ar og ætlaði að selja þær hæstbjóð anda. Framtíðin hafði líka hug á þessum kindum, enda hafði verð lag þá hækkað verulega vegna styrjaldarinnar. Maðurinn var kominn með kindurnar að slátur húsi Framtíðarirmar, og höfðu ver ið gerð eitthvað losaraleg kaup. Eg náði svo í hann og fékk að vita, hvað hann ætti að fá fyrir kind urnar hjá Framtíðinni. Eg bauð undir eins fimmtíu aurum hærra, og maðurinp beit- á krókinn og kindurnar fóru til Stefáns. En nafni minn Jónsson, sem var framkvæmdastjóri Framtíðarinn- ar, varð ævareiður og hringdi sam stundis 1 símatin og úthúðaði mér við Stefán. Eg fór undir eins til Stefáns og tilkynnti honum kaup in og lét hann vita, að hann yrði að borga kindurnar með pening- um undir eins, og það gerði hann. Var Stefán vel ángður með kaupin og þótti gott að geta leikið á Framtíðina. Eg var harðánægður, hafði alltaf gaman af væringum kaupmannanna, og þó ég fæii þessar markaðsferðir hafði ég eng an áhuga á velgengni þeirra. Hins vegar kynntist ég héraðinu óg mönnum þar í þessum ferðum. Héraðinu var skipt í svæði til þessara fjárkaupa. Þannig var svæði það, sem ég fór um, Vellir. Fljótsdalur ag Fell. Aðrir menn fóru um Tungu, Jökuldal og Hlíð, svo og Eiða- og Hjaltastaðaþing- hár. Svipaða skiptingu hafði Frain tíðin á markaðsferðum sínum. Þótt þetta væru kallaðar mark- aðsferðir, voru engir eiginlegir markaðir haldnir. Bændur voru heimsóttir og féð vigtað og merkt verzlununum heima hjá þeim. Þeg ar hver kind hafði verið vegin, B var ineð pensli slett málningu 1 I hnakkann á kindinni Fénu var § svo safnað saman í stóra rekstra ■ og rekið yfir heiðina. Við, sem íór S um til kaunanna, höfðum ekkeit S af fjárrekstri að segja. Það voru 9 aðrir menn. sem önnuðust þá. ■ Þegar tíð var góð á haustin, voru markaðsferðirnar hinar skemmtilegustu. Eg var heppinn með veður þau haust, sem ég fór þessar ferðir. En sumir dag- arnir voru allstrangir, sérstaklega fyrsta haustið, þegar margt fé var vegið og merkt og svo þeyst á milli fjárkaupastaðanna. Það höfðu verið gerðar áætlanir fyrir fram og bændum tilkynnt, hve- nær átti að vigta hjá hverjum, svo að þeir hefðu féð við. Þess- ari áætlun urðum við svo að fyígja og urðum því stundum seint fyrir á gistingarstöðum. T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 243

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.