Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Blaðsíða 18

Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Blaðsíða 18
<«■ gen tll þess, af! stelnninn flæltist síðar í netinu. Murtunetin voru öll minni í snið- um. Venjulega voru þau styttri og um það bil helmingi mjórri en bleikjunetin, enda -er möskvastærð þeirra yfirleitt ekki meira en 7/8 úr þumlungi. Þann tíma, sem silungur gengur á grunn, eru bleikjunetin langoftast lögð mjög nærri landi, stundum byrj- að að leggja alveg uppi við land- steina. Er netið þá oft lagt beint út •frá landinu, og síðan beygður krapp- ur krókur á ytri endann. Lendir þá silungurinn oft í króknum, einkum ef hann rennur út með netinu. Þar sem svo hagar til, er lagt út frá töngum og nesjum og þannig fyrir víkur og voga, óg eru það oft beztu lagnirnar. Murtunet eru lögð um 20. septem- ber og tekin upp aftur nálægt 20. október, en þá er murtuvertíðinni lok ið. Veiðin stendur aðeins yfir hrygn- ingartímann. Netin eru lögð á malar kamba, ýmist beint út frá landi eða meðfram landi, eftir bví sem botn- lagið segir til. Bleikjunetanna er vitjað að morgn inum, ef unnt er, því að bleikjan kemur aðallega í netin á næturnar, en þó getur oft komið í á daginn, einkum ef gráð er á vatninu. Það hefur tíðkazt við Þingvalla vatn í síðastliðin 30—40 ár að taka þann silung frá, sem vel er lifandi í netunum, þegar vitjað er um, setja hann í vatnsbala, sem hafður er í bátnum, eða þá í vatn, sem haft er í bátnum sjálfum, og flytja hann þann ig til lands. Þar er hann svo strax látinn í vatnsþró, sem venjulega er hiaðin úr grjóti úti í vatninu sjálfu, og þannig er hann svo geytndur bráð lifandi, þangað til hann er sendur á markaðinn í Reykjavík. Ekki má þó hafa silunginn 'engi i þessari geymslu því að þá horast hann, þar sem ekki ei neitt æti í slíkri þró. Um nokkurt árabil var silungur, sem þannig var geymdur, fluttur í vatnsgeymi á bifreið til Reykjavík- ur og síðan seldur þar beint úr þró til neytenda, en þetta er nú aftur niður lagt. Venja er það við Þingvallavatn að draga netin inn í bátinn, þegar vitj- að er um þau, og er þá silungur greiddur úr þeim jafnóðum. Um leið og þau eru dregin, eru þau skoluð vandlega, ef þau eru óhrein, en það eru þau venjulega, ef stormur hef- ur verið. Veiðin er ekki alltaf mikil, og fyrir kemur, að netin eru alveg tóm eftir nóttina. Það þykir sæmi- leg veiði að fá 5—10 silunga í net eftir nóttina, og fremur mun það telj- ast sjaldgæft að fá meira en 20—30 silunga í einni lögn. Á haustin er einnig vitjað um murtunetin að morgninum, því að murtan kemur eingöngu f á næturn- ar, meðan dimmt er. Þegar murtu- gengd er mikil, eru netin full að morgni. Þau liggja þá við botninn, eins og hvítur, gildur, glitrandi streng ur, og þegar þau eru dregin, finnst ekkert fyrir netinu sjálfu, ekkert ann- að en iðandí, spriklandi murtumergð- in. Þegar netið hefur verið innbyrt, er murtan greidd úr, og netið síðan aftur lagt. Ekki er mér fullkunnugt, hve mikið hefur fengizt í net eftir eina nótt, þegar bezt hefur veiðzt, en þó hygg ég það vera 2—3 hundruð, og þá tollir varla meira í netinu. Áður fyrr var murtan söltuð nið- ur í tunnur heima á bæjunum og síð- an seld út um allar sveitir til vetr- arforða. Var þúsundið af murtunni lengi vel selt á tíu krónur. Á síðari árum hefur murtan verið flutt ný- veidd til Reykjavíkur. Þar er hún soðin niður, mest ti} útflutnings, og er ágæt vara. Oft er kaldsamt við murtuveiðina, þegar haustveðrátta er stirð. Langan tíma tekur að vitja um mörg net, einkum ef murta er mikil, því að seinlegt er að greiða hana úr. Þar sem útgerð var mikil, sátu menn á vatninu frá því í birtingu á morgn- ana, fram til kl. 3 og 4 á daginn næstum hvernig sem veður var. Lítið var um hlífðarföt og stígvél lengi fram eftir árum, og voru menn þá blautir mjög, stirðir og kaldir, því að um verulega hreyfingu var ekki að ræða, þar sem bátarnir voru aldrei annað en smákænur, og tveir menn oftast saman við veiðina. En murtan stendur ekki við nema sinn takmarkaða tíma. Það verður því að grípa gæsina meðan hún gefst, þótt á gangi með slagvéðurshryðjum, slydduéljum, sífelldri kviku og jafn- vel ágjöf. En óneitanlega er murtu- veiðin skemmtileg, þegar vel gengur, er haust er gdtt og vatnið kyrrt. Oft hefur mikið aflazt af murt- unni, og mikil búbót hefur bændum í Þingvallasveit og Grafningi verið að henni eftir að veiði hófst. Veiðiskýrslur sýna, að á tíu árum, frá 1935—1945 hafa veiðzt í vatninu rúmlega tvær milljónir af þessum fiski, eða til jafnaðar 210 þúsund á ári. Að meðaltali munu fara 10 murt- ur í kílógrammið, og svarar það til, að 21 lest hafi veiðzt á ári, eða 210 þúsund kílógrömm á þessum tíu ár- um alls. Þá vil ég minnast hér á írekstrar- veiðina. Hún var mikið stunduð frá því einhvern tíma á öldinni, sem leið og allt fram yfir 1940, en þá mun hún með nýrri veiðisamþykkt hafa verið bönnuð. Ekki er kunnugt, svo að ég viti, hver hefur átt frumkvæð- ið að þeirri veiðiaðferð, og ekki held- ur, hvenær hún var fyrst tekin í notk un. Sennilega hefur hún hafizt áð- ur en verulega var farið að nota lag- net, því að til hennar þurfti aðeins eitt net. írekstrarveiðin hófst að vorinu, þegar ís leysti af vatninu, því að þá byrjaði silungur oftast að ganga upp að landi, að minnsta kosti ef tíð er góð. Veiðin fór fram að næturlagi og einungis, þegar logn var og vatnið kyrrt. Þá gengur silungurinn á grunn- ið, alveg upp í landsteina, beint úr djúpinu, eftir hina löngu kyrrð og hvíld vetrarins. Virðist hann þá á lognkyrrum nóttum liggja næstum því hreyfingarlaus, og er hann þá sjálfsagt að gæða sér á sniglum og lirfum á grjótinu eftir djúpfæðu vetr- arins. Það er þó ekki útlit fyrir, að silungurinn komi úr neinni sveltu, þvi að aldrei er hann eins feitur og góður og fyrst á vorin. Þótt ég sjálfur hafi stundað þessa veiði öll mín æskuár, þá ætla ég, í stað 'þess að lýsa henni nánar sjálf- ur, að birta frásögn Hjartar heitins frænda mins frá Skálabrekku. Lýsing hans, sem hér fer á eftir er af veiði- nótt yið Þingvallavatn, sem hann, ásamt Þorláki föður mínum, tók þátt í, en þeir voru báðir upp aldir á Skálabrekku. Vornótf víð Þingvallavatn Það er fcomið kvöld. Sólin er setzt, og sunnankaldi vaggar nýgræð- ingnum, sem gægist upp. Allir eru komnir inn og búnir að borða kvöldmatinn. Við bræðurnir lítum öðru hvoru út á vatnið, til þess að sjá, hvort ekki lygni. Okkur lang- ar til að fara „út á“, eins og það var kallað, og vita, hvort ekki fæst í soð- ið. Lognrönd sést syðst á vatninu. Við bíðum með óþreyju eftir að hún nálg- ist. Eg ligg úti í gluggakistunni og skrifa á vormóðuna á rúðunni, en þurrka svo allt út jafnharðan. Jæja, nú er lognið komið, vatnið er að verða eins og einn firnastór spegill. Eg grip vettlingana mína um leið og ég fer út, og Lalli tekur sil- ungspokann á bæjarveggnum. Svo göngum við niður túnið og spölkom austur með vatninu. f Bátsvíkinni, rétt hjá naustinu, tínum við nokkra steina í pokann og hellum þeim svo í bátinn. Því næst ýtum við frá landi. Eg skýzt upp í skutinn, en Lalli sezt undir árar. Eg athuga dufl og stjóra á netinu, svo að allt sé til reiðu, þeg- ar á þarf að halda. Við höldum drjúgan spöl austur með landinu, austur á svo kallað Hellunesgrun, en þar er aðalveið'- svæðið. Eg stend upp, tek dufl og stjóra, sitt með hvorri hendi, held þeim dálitla stund á borðstokknum, unz ég fæ bendingu um að kasta hvoru tveggja útbyrðis. Síðan leggj- um við netið, fyrst beint út frá landi, svo i stóran boga upp að því aftur. Eftir það er róið inn fyrir netið, 258 T t M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.