Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Blaðsíða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Blaðsíða 10
Nokkuð af þeim tækjaútbúnaði og mælum, sem notað er við að skilja vetnisatómin að eftir þyngd þeirra. Þetta tæki er nefnt massaspektrómeter á erelndum málum. (Ljósm. Tíminn-GE) ég Braga Arnason efnafræðing, en hann hefur starfað hjá eðlisfræði- stofnuninni um skeið, eftir að hafa lokið efnafræðiprófi i Þýzkalandi. Erindi mitt við Braga var að hnýsast örlítið eftir því, hvað hann hefði fyr- ir stafni, og fyrsta spurning mín, er við höfum heilsazt, var þessi: Hvað gerir þú eiginlega hérna? — Eg skal sýna þér hérna tæki, svaraði Bragi og gekk með mér inn um dyr, sem á var neglt háspennu— lífshættu—slcilti, svipað þeim sem notað er á rafmagnslínur og spenni- stöðvar. í herberginu, sem við geng- um inn í, stóð heljarmikið bákn á miðju gólfi, leiðslur, pípur, flöskur, seglar og mælar, sem allt var fest saman á mér naér óskiljanlegan hátt. — Þetta heitir massaspektrómeter, segir Bragi. Með þessu tæki er hægt að mæla þyngd vetnis og skilja mis- þunga ísótópa þess að, og við höld- um, að með þeim mælingum megi fá i vitneskju um, hvernig vatnið hreyf- I■ ist í jörðunni. Þetta byggist á því, að ; vatnið er ekki allt alveg jafnþungt. Eins og við vitum þá er sjórinn einn allherjarvatnsgeymir, og þaðan guf- ; ar vatn stöðugt upp og berst síðan j með vindum inn ýfir landið og fell- j ur þar niður sem regn. Nú verður ■ aðskilnaður á vatninu strax í sjónum, því að þyngra vatnið hefur aðeins hærri suðupunkt og gufar því seinna upp. Og úr skýjunum þvæst vatnið því fyrr sem það er þyngra, þannig að regnið verður stöðugt léttara og léttara. Með því að mæla þyngdina er þ'ess vegna hægt að komast að því, hvar vatnið hefur fallið til jarðar. —Er ekki þetta ný tækni? — ísótópar, þ. e. misþung atóm sama frumefnis, voru fyrst skildir að 1918 og þá var massaspektrómeterinn fundinn upp. 1947 komu svo fram hugmyndir um, að vatnið væri ekki alveg eins alls staðar í náttúrunni. Hér á landi urðu þeir Gunnar Böðv- arsson og Þorbjörn Sigurgeirsson frumkvöðlar að þessum rannsóknum og töldu hugsanlegt að með þeim mætti fá hugmyndir um vatnshring- inn. Fyrir áratug voru því tekin hér nokkur sýnishorn og send utan til mælinga og niðurstöður þeirra bentu til, að þetta mætti takast, ef mæling- arnar yrðu meiri. í sumar kom svo þessi massaspektrómeter hingað, gjöf frá alþjóða kjarnorkumálastofnun- inni í Vín. Bandarískur sérfræðingur, dr. Friedmann, kom þá hingað og setti upp tækið, og hann lánaði einn- ig teikningar af því og hafði yfirum- sjón með smiði þeirra hluta þess, sem gerðir eru erlendis. Spektrómetrar af þessari gerð eru mjög fáir til í heiim- inum; ég veit held ég ekki nema um eitthvað þrjá sams konar. En sumir hlutar tækisins eru smíðaðir hér á landi, hjá Rafagnatækni af Erni Garðarssyni. 1 haust var tækið svo komið af stað og þá var hafizt handa við að mæla, en vatnssýnishornum er búið að safna reglulega síðan árið 1958. — Standa þessar mælingar ekkert í sambandi við aðrar athuganir? — Þetta er annar liðurinn af tveimur í vatnsmælingum. Sá ísótóp ur, sem við mælum í massaspektro- metrum kallast deuterium, og með þeim mælingum viljum við komast að uppruna vatnsins og leiðum þess um jörðina. En það er einnig unnið að mælingum á öðrum ísótóp, sem er nefndur tritium, þyngri en sá fyrri og geislavirkur. Með þeim mæling- um á að vera hægt að finna aldur vatnsins, þ. e. hvað langt er síðan það féll sem regn. Páll Theodórsson eðlisfræðingur sér um þær mæling- ar, og ég er með massaspektrómeter- inn en yfir öllu saman er svo auðvitað Þorbjörn Sigurgeirsson prófessor, forstöðumaður eðlisfræðistofnunar- innar. — Og hvaða gagn er svo að því að vita aldur og hreyfingar vatnsins? 250 T 1 M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.