Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Blaðsíða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Blaðsíða 12
★ I. UM SUMARKOMU 1780 bar það til tíðinda, ef tíðindi skulu kallast, t'ð ung hjón í Laxárdal vestra báru cý- fæddan son sinn til skírnar í Hjarð- arholtskirkju Prófasturinn, sé.a Gunnar Pálsson, jós hann vatni og nefndi Björn. Þetta var ofurhvers- dagslegur atburður. Engan gat órað fyrir því, hvaða saga beið þessa lir.li drengs. Hjón þau, sem þarna voru á feró, hétu Magnús Guðmundsson og Sig- ríður Jónsdóttir. Var Magnús kyn| aður af þessum slóðon. en Sigrið- tir var bóndadóttir frá Tjaldaneii, þar sem foreldrar hennar Jón Svei'is son og Elín Einarsdóttir, bjugg.i um nokkurt skeið. Var Jón af norö lenzkum rótum, en Elín dóttir Em- ars sýslumanns Magnússonar, eins hins alræmdasta ribbalda, og óeirö- armanns i hópi margra misþokkaðra sýslumanna um miðbik átjándu ald- ar. Áður en Jón gekk að eiga Elínu hafði hún eignazt son, sem nokkuð kemur við þessa sögu, með unguin námssveini. Jóni ao nafni, syni Teils sýslumanns Arasoiiar á Reykhólum. Það er af barnsföðurnum að segja, að hann sigldi til Kaupmannahafnai og virðist hafa lent þar í óreglu og armóði. því að hann gekk í herinn, sem oft var þrautaráð hrakhó!v manna, og andaðist skömmu síðar. En sonur þeirra Elínar ólst upp í Ljárskógum hjá móðursystur sinni einni og var settur til skólanáms. -- Sigldi hann og til Kaupntannahaf'i ar, þegar hann hafði aldur og náin - þroska til, og farnaðist stórum betur föður sínum. Gerðist hann hinn lærð- asti maður og komst til mikilla met- orða. Þorri manna mun enn kanna^ við nafn hans: Þetta var Grímur Thorkelfn leyndarskjalavörður. Hau* er meðal annars minnzt fyrir það, að hann fann hið fræga fornkvæði, Bjólfskviðu, er hsnn var við rann- sóknir 1 Bretlandi, og lét fyrstur manna prenta hana í Kaupmanna- höfn allöngu síðar. En nú er aftur að víkja að þeim Magnúsi Guðmundssyni og Sigríði, konu hans, og er þess þá helzt að geta, að þau áttu margar göngur tit kirkju sinnar með reifastranga. Þeim fæddust mörg böin, og dauðinn vTr ekki jafntíður gestur á bæ þeirra og þá var algengt á barnaheimilum. Börnin komust upp. Grímur Thorkelín, bróðir Sigríðar Jónsdóttur, hafði gerzt auðugur mað- ur, og flaug honum í hug, þegar börn þessarar systur hans tóku í-j stálpast, að greiða götu einhvers þeirra til nokkurs frama. Var það ráð hans, að einhver sonanna skyldi sigla til Kaupmannahafnar og læra þar handverk. Björn varð fyrir val- inu, og mun hann hafa farið utan sumarið 1798, er nann var átján ára gamall. Nú stóð svo á, að móður bróðir hans og hálfbróðir Grími, Vigfús að nafni, haíði lært beykisiðn í æsku. Ileiur það þótt allálitlegt handverk, og varð það ofan á, að Björn skyldi einnig læra þessa iðu. Um þetta leyti fluttust foreldra; hans að Illíð í Hörðudal. En þar varð stutt í búskap Magnúsar. í vetrar- lok árið 1800 brast á norðanveður mikið, og í því veðri fórust þrjú skip úr Staðarsveit og önnur þrjú úr Bjarneyjum, og drukknuðu þarna þrjátíu og sjö menn á einum jg sama degi, flestir vermenn úr Dala sýslu. Misstu fimmtán konur eigii menn sína með Staðarsveitarskipun um, og er í frásögur fært, að níu þeirra voru húsfreyjur í Dölum. Ein þeirra, sem þá varð ekkja, var Si", ríður í Hlíð. Björn hafði ekki lokið beykisnám inu í Kaupmannahöfn, er hér var komið sögu. En hann gat huggii) sig við það. að sum systkina hans voru uppkomin, svo að tnóðir hans var ekki forsjárlaus með yngri syst kinin. Og svo fór, að Björn sneri ekki heim að loknu námi sínu. Hann réðst í siglingar og mun fljótlegi hafa gerzt beykir eða timburmaðuv á dönskum skipum, sem sigldu til Asíulanda. Fór því fram um hrið. cf til vill árum saman, án þess að t.il neinna þeirra tíðinda drægi í ferð- um hans, er nú séu kunn. En það orð lék á heima í Döluim, að Björn hefði haft mikinn ábata og væri fjáður vel, enda var þá mikið blóma skeið í Danmörku er á tímabili var hlutlaus í deilum stórvelda þeirra tíma. Juku þá Danir mjög kaupsigl- ingar sínar. því að Englendingar lágu í stöðugum skærum við Frakka og gátu ekki hagnýtt scr tækifæri.i af þeim sökum. bað var einmitt á þessum árum, scir, Kaupmannahö n varð stórborg. En þessi dýrð stóð ekki lengi. Þeir, sem ófriði lágu, kunnu illa hlutleysi Danmerkur, og loks tókst að búa svo um hnútana, að Danir létu leið- ast til þess að snúast gegn Englend- ingum. En það varð þeim dýrl sem kunnugt er Englendingar sendu flota inn á Eyrarsund og skutu á 'Kaupmannahöfn, unz vörn var gef- in upp og danski flotinn fengi.i'i þeim í hendur. Héldu þeir síðan kverkataki á Danmörku og Noregi í mörg ár, unz stríðinu var lokið. Þegar Englendingar létu til skarar skríða gegn Dönum, var Björn Magn ússon frá Hlíð í Asíusiglingum. — Þegar skip hans ætlaði fyrir Góðrar- vonarhöfða, réðusl Englendingar að því, og segir ekki af því, hvort þac varð löng eða skömm viðureign. -- Skipherrann, sem hét Lorch, sá sér þann kost vænstan að gefa sig á vald Englefldingum og var farið með áhöfn alla til Höfðaborgar, þar se;n hún var síðan kyrrsett. Björn vav orðinn stríðsfangi, órafjarri ættjövð sinni. Ófriðurinn dróst á langinn, og Björn átti ekki afturkvæmt til norð- lægra landa. Hann dvaldist upp fra þessu í Höfðaborg. þar sem sól rís í norðri og gengur undir í suðri, nema hvað hann mun hafa farið snögga ferð til Danmerkur árið 1819. Gæti það bent til þess, að hann hafi átt þar verulegar eignir, þegar han j T I M t N N ~ SUNNUDAGSBLAO BEYKIRINN FRÁ HLÍÐ HAFDILÁTIZT SUÐUR í HÖFÐABORG 0G ARFUR Í VÆNDUM. SVIM- HÁAR TÖLUR VORU NEFNDAR. KAUPMENN INA VESTAN LANDS KLÆJAÐI í LÓFANA OG BÆNDURNIR REYNDUST AUÐTRYGGNIR.

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.