Tíminn Sunnudagsblað - 28.02.1965, Qupperneq 9
„Hver einn bær á sína sögu,1'
sagði Matthías Jochumsson. Hvert
byggðarlag geymir sögur og sagnir
um það fólk, sem þar hefur eytt
ævidögum sínum. Einn af þeim stöð-
um, sem ríkur er af sögum frá fyrri
árum, er Djúpivogur við Berufjörð,
enda miðstöð fyrir stórt verzlunar-
svæði um langan tima. Sveitin í kring
var nefnd Hálsþinghá eftir prestssetr-
inu Hálsi í Hamarsfirði. Hér verður
sagt í fáum dráttum frá konu, sem
eyddi ævi sinni í Hálsþinghá, undir
hinum fagra og svipmikla Búlands-
tindi.
Háls í Hamarsfirði var fyrr prests-
setur eins og áður er sagt. Þar
rændu Tyrkir á seytjándu öld og
handtóku prestinn og heimafólk
hans. Bæjarstæðið er fagurt í vina-
legum hvammi undir Hálsunum. En
hlunnindi hafa verið þar minni en
á mörgum öðrum prestssetrum. Varp
eyjarnar í Hamarsfirði nefnast Þvott-
áreyjar og voru eign prestssetursins
á Þvottá fyrr meir. Síðasti prestur-
inn á Hálsi, séra Jón Einarsson,
flosnaði þaðan upp á hörðu vori
1812 eftir þriggja ára veru þar. Frá
þeim tíma hefur Háls ekki verið
prestssetur, þótt kirkja stæði þar
fram um aldamótin.
Á undan séra Jóni Einarssyni var
séra Árni Skaftason prestur á Hálsi.
Hann fluttist þangað árið 1795 og
var þar prestur til dauðadags. En
hann drukknaði niður um ís á Beru-
fjarðarleirum 16. febrúar 1809.
Séra Árni var tvíkvæntur. Fyrri
konu sína, Steinunni Sveinsdóttur,
missti hann eftir stutta sambúð. Síð-
ari kona hans var Helga Vigúfsdótt-
ir, Jónssónar, sýslumanns í Þingeyj-
arþingi. Hún var fædd 1775, en dó
30. marz 1855, áttatíu ára gömul,
eflaust södd lífdaganna, því að margt
gekk henni á móti í lífinu.
Eftir að hún fluttist frá Halldóru,
fór hún á Fossárdal. Þar var hún
í þrjú ár, en flyzt þá að Markúsar-
seli í Álftafirði 1853 og er talin lifa
þar á efnum sínum. Þar er hún til
dauðadags, 1855.
Þau séra Árni eignuðust sjö börn.
Henni var því mikill vandi á hönd-
um, er hún missti mann sinn, og
er það dómur síðari tíma, að hún
T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ
177