Tíminn Sunnudagsblað - 28.02.1965, Síða 12
Þannig er Skálholtskirkja nú. Enn eru til undirgöngin frá dögum hinna gömlu biskupa, og sést í dyrnar á þessari mynd.
En fátt mun annað mannaverka í Skálholti með svipuðum ummerkjum og á tímum þeirra Ögmundar og Gissurar Einars-
Mnar. Ljósmynd: Þorsfeinn .lósepsson.
XVjl.
Biskupunum á íslandi hafa bor-
izt þau boð Kristjáns konungs sum-
arið 1642, að hann vill þeir sigli
á sinn fund. Gissur Einarsson
fcregzt Ijúfmannlega við þessari orð
gendingu, enda á hann sjálfur er-
indi til Danmerkur, þar eð hann
hefur ekki enn hlotið vígslu. Jón
Arason á Hólum ætlar ekki að fara
utan — hann sendir í umboði sínu
þrjá menn af Norðurlandi.
Eitt er þó það, er Gissur vill
ekki láta hjá líða, áður en hann
fer af landinu. Nú er kennimönn-
um öllum heimill hjúskapur, og for
ráðamaður Skáiholtsstóls ætlar sér
■ekki að lifa einlífi. Hann hefur
beðið sér konu af norsku fremdar-
ikyni, Guðrúnar, dóttur Gottskáiks
Hólabiskups Nikulássonar og systur
Odds á Reykjum, og fengið jáyrði.
Og áður en hann stígur á skips-
fjöl er festarölið drukkið. Festar-
konan er þegar komin í Skálholt,
og þar skal hún bíða heimkomu
festarmannsins.
Nýi kirkjupresturinn í Skálholti,
síra Eysteinn Þórðarson, nýtur
mikils trausts húsbónda síns, og
Gissur súperintendent felur hon
um á hendur að annast Guðrúnu,
svo að henni verði ekki langsamt.
Slíks hins sama biður hann móður
sína, Gunnhildi, er hann hefur tek-
ið heim á biskupsstólinn, ásamt
þremur bræðrum sínum, séra Jóni,
Þorláki og Halldóri.
Síðan gengur Gissur á skip í
drottins nafni. Hann hefur tekið
sér fari með Stakknum, er legið
hefur í Straumfirði i kauptíðinni,
og þeir verða vel reiðfara. Gissuri
ef tekið með kostum og kynjum i
Kaupmannahöfn. Aðfarir hans við
Ögmund biskup eru metnar mikið
manndómspróf, og háfur Skálholts-
kirkju hefur verið meðtekinn fegin-
samlega: Þessi hávaxni súperintend-
ent frá Skálholti hefur gengið undir
jarðarmen hins nýja siðar á iofsam-
legan hátt. Konungur eftirlætur hon
um biskupsvígslu, og Pétur Palladíus,
hinn frægi Sjálandsbiskup, sem harð-
ast predikar gegn flakahosunum,
uppfinningu sjálfs djöfulsins, vígir
hann snemma hausts. Gissuri Einars-
syni gefst tækifæri til þess að gista
Hamborg enn einu sinni í nokkra
mánuði, og áður en hann kveður
Kaupmannahöfn, lætur konungur
honum í té kvittun fyrii sex hundr-
uð niutíu og fimm lóðum silfurs, auk
peninga og gullkaleiks þess hins
mikla, sem kenndur er við Klæng
biskup Þorsteinsson og fylgt hefur
dómkirkjunni í Skálholti í nálega
fjórar aldir. Barma hans hafa varir
U
TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ