Tíminn Sunnudagsblað - 23.05.1965, Blaðsíða 11

Tíminn Sunnudagsblað - 23.05.1965, Blaðsíða 11
Reykhólar í Reykhólasveit. Þar hélzt kornyrkja lengi, og mun jarðhitans hafanotið þar við. og 11. öld, en þar mun þessi at- vinnugrein með öllu aflögð um 1200. Hún virðist með öðrum orðum hafa haldizt meðan skógar voru óeyddir og skýldu ökrunum .Sama er að segja um Múlasýslur, nema þar mun korn- rækt aldrei hafa orðið jafnalmenn og á Norðurlandi. Á Vestfjarðakjálkanum virðist ak- uryrkja aldrei hafa náð teljandi fót- festu, ef þannig mætti að orði kom- ast, utan jarðhitasvæða, nema í Barðastrandasýslu. Um 1330 á Vatnsfjarðarkirkja sáðjörð á Reykja- nesi sem vill, en í Barðastrandar- sýslu er getið um akurgerði undir hrauni á Skálanesi í Gufudalshreppi og í Svínanesi í Hlíðarlandi í Þorksa- firði. Þá segir í Þorgils sögu og Haf- liða frá veizlu, sem haldin var á Reykhólum í Reykhólasveit í ágúst- byrjun árið 1119. Skyldi þar vera Ólafsgildi hvert sumar, ef korn gæti að kaupa, tvö mjölsáld, á Þórsnes- þingi. „Á Reykhólum voru svo góð- ir landskostir i þann tíma, að þar voru aldrei ófrævir akrarnir, en það var jafnan vani, að þar var nýtt mjöl haft til beinabóta og ágætis að þeirri veizlu.“ Menn eru ekki á einu máli um það, hvenær Þorgils saga muni rituð, en þó er hún ekki talin eldri en frá síðari hluta 12. aldar. Af tilvitn- uðum orðum sést, að höfundur tel- ur, að kornið á Reykhólum sé ekki framar jafnbráðþroska eins og það hafi verið um 1100. Bæði örnefni og aðrar heimildir vitna um talsverða akuryrkju á eyj- um í Breiðafirði, en vafasamt er, að hún hafi haldizt fram á 13. öld, og ef til vill nokikru lengur. Þá virðist kornyrkja vera úr sögunni hér á landi norðan Snæfellsness og Lónsfjarðar, ef undan eru þegin jarðhitasvæði á Barðaströnd og við Djúp. Hér hafa menn snemma lært að nytja jarðhita að nokkru til rækt- unar. í máldaga kirkjunnar á Syðri- Reykjum á Mosfellssveit frá því um 1180 segir meðal annars: „En kirkj- an á nítján mæla akurlönd í Görð- um út og selja sáin hálf af hendi/ Út (vestur) frá Syðri-Reykjum var túnblettur með gömlum girðingum og nefndist Akrar, en það er jarð- hitasvæði. Þá átti ábúandi jarðarinn- ar að gjalda presti „hundrað álna gjaldamjöl af helmingi, ef hann vill það heldur en vöru. Bóndinn hefur því stundað akuryrkju engu síður en prestur. í máldaga kirkj- unnar frá því um 1400 eru báðar þessar greinar felldar niður. Þá virð- ist kornyrkja úr sögunni á Syðri- Reykjum. Annálar greina, að óáran varð á korni 1331 og enn fremur, að akrar spilltust 1389. Af máldögum kirkna má ráða, að um 1400 hafi kornyrkja gengið talsvert saman í kornyrkju- héruðunum um sunnanvert landið og við Faxaflóa, einskorðazt mjög við strandhéruðin, en á Suðurnesjum, um lágsveitir Árnes- og Rangárvalla- sýslu, sunnanvert Snæfellsnes og á Reykjanesi við Djúp mun þessi at- vinnuvegur hafa haldizt fram um miðja 16. öld og jafnvel lengur. Erf- itt er að ráða af heimildum, hvenær kornyrkja leggst niður í Skaftafells- sýslum, af því að þær greina lítt á milli meltekju og sáðkorns. Vitnisburðir frá um 1600. Um 1593 ritaði Sigurður Stefáns- son Skálholtsrektor (dáinn 1594 eða 1595) íslandslýsingu á latínu: Qual- is cunque Descriptio Islandiæ — og segir þar meðal annars: „En eyjarskeggjar (íslendingar) eru sviptir þeim hlunnindum, sem þeir nutu áður, þegar akuryrkja var víða almennt stunduð á íslandi eins og fornrit vor, sjálfir akurgarðarn- ir og forn örnefni vitna um enn í dag. Ég álít ekki, að eyjunni hafi hnignað svo mjög, að hún sé óhæf til akuryrkju, einkum af því ð kornrækt er eyjarskeggjum til mik- illa nytsemda á ýmsum stöðum um sunnanvert landið, heldur hafa allir íslendingar um langan aldur og allt til vorra daga smám saman afrækzt öll akuryrkjustörf, enda eru þeir flestir sammála um, að það sé miklu hagfelldara að kaupa innflutt lcorn Framhald á 454. síðu. T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 443

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.