Tíminn Sunnudagsblað - 23.05.1965, Blaðsíða 21

Tíminn Sunnudagsblað - 23.05.1965, Blaðsíða 21
»3i3S&£íes: Sigríður Hjálmarsdóttir: Nokkrar lausavísur Vorvisur Vetrarkvíði víkur senn, vakna úr hýði stráin. Vorið býður okkur enn út í víðan bláinn Úti til stranda, innst í dal opnast landi dagur, vorið bandar blómasal, batnar andans hagur Blána nætur, roðnar reyr, Ránar kætast dætur, ána grætur þýður þeyr, þrána rætast lætur Skýjalindir skarar boða skraut og yndi um sólarlag, laugast tindar léttum roða. lofa yndislegan dag. Brot. Dagsins önnum sein ég sinni, sífellt löt og meyr, þótt mér brenni í brjósti inni bergmái ljóðs, sem deyr. En ef penna j hendi héldi. helsið grennast finn. Senn þá kenni af Sónar veldi sáran spenninginn Þá er líkt og opnist allar óravíddir geims, yfir fjöllin andinn kallar að endimörkum heims. Ekki verður feigum forðað. Skuld á sök, að hann er hér hels í vök að berjast Feigðarrökum okkar er engin tök að verjast Gangnav’ gömul. Hestar leystu úr læðing spor leiðum treystir ströngum reyndi á hreysti þrek og þor, þreýtzt og sveitzt i göngum. Esjan. Esjan bláa undrahiý. ævaforn i háttum — hún er minning mina í meitluð sterkum dráttum. Staka Þó að leiki létt um kinn iífsins andardráttur ber þó með sér boðsk. pinn að bíða dauðans sáttur Upprisuhátið. Páskasólin signir láð sigrar njólu kalda. Himnasjóli af sinni náð sendir skjólið valda. Bragaylur. Mér 1 skyndi leggur lið, leiðum hrindir trega. vonir ryndar. veitir frið vísan yndislega Missir. Höfug tárin hryn]a um kinn, heiguð látnum vini. Hjartasárin helfrosin hygg ég fáir lini Mín er íokið flest i skjól, fæst nú hvergi styrkur. Bót er þó, að blessuð sói brosir gegnum myrkur Að loknu útvarpserindi, orð Hallgríms Jónassonar bundin stöku: Ljómar fjalla fannatraf, fléttast ár á söndum. landið samansaumað af silfurhvítum böndum Tii Einars Beinteinssonar. skálds. Húmið virki hleður ný, hljóð ég yrki braginn. Oft er styrkui stuðlum i, er stytta myrksn daginn lýðskólahreyfingarinnar um öli Norð urlönd. Fyrst ég er farinn að skrifa um Askov, get ég ekki látið hjá líða að minnast á þann mann, sem öðrum fremur hefur sett svip á bæinn á und anförnum áratugum, bæði með rit störfum sínum og fyrirlestrahaldi við skólann og ekki sízt með sinni ein stæðu persónu. Þetta er Jörgen Buk dahl rithöfundur. Hann er fæddui 8. desember 1896 í smábænum Sund by á Falstri. Stúdent varð hann frá menntaskólanum í Rípum. Hann hef ur ekki lokið neinu embættisprófi en unnið að ritstörfum alla ævi. Rit verk hans eru aðallega á sviði bók imenntagagnrýni og menningarsögu Norðurlanda. Hann er jafnvígur á ís lenzka og danska bókmenntasögu, ei jafnframt að vitna til íslenzkra forn sagna og norskra hetjuljóða. Þá kem ur maður ekki að tómum kofunum, hjá honum, ef talið berst að finnskri og sænskri menningararfleifð. En íslendingar minnaSt Bukdahls þó fyrst og fremst vegna þess, að hann hefur staðið í fylkingarbrjósti danskra lýðskólamanna um afhend ingu íslenzkra handrita úr dönskum söfnum. Fyrir það mikla starf hefui íslenzka ríkið sæmt hann fálkaorð unni. Þykir honum vænt um þenn an heiður, en miklast þó ekki af hon um. Bukdahl hefur nú átt heimili í Askov í 33 ár, en árið 1925 kvæntist hann Magnhildi Ödvinsdóttui frá Stafangri. Bjuggu þau í NToregi ti) 1932. Magnhild er mjög vel menntuð kona. Eftir stúdentspróf lagði hún stund á listasögu og bókmenntir Hún skrifar að staðaldri g.einar i dönsk og norsk blöð um bækur og listir. Þau hjónin eru samhent og styðja hvort annað. Það hefur verið Bukdahl mikil gæfa að eiga slíkan lífsförunaut sem Magnhild er. Hefði hann átt konu, sem fremur hefði latt hann en hvatt til ritstarfa, er hætt við, að minna sæist eftir hann á þeim vettvangi Heimili þeirra hjónanna er í út jaðri Askov og heitir Bjerget Þett: er gamalt timburhús, tveggja hæða Uppi á loftinu hefur rithöfundurinr vinnustofu sína innan um allan sinn aragrúa bóka, er þekja alla veggi Sjálfur veit hann ekki aákvæmlega tölu bóka sinna, en segir, að þæi séu nú orðnar um þrettán þúsund Úr vinnuherberginu er dásamlegt út sýni til Iíóngaárinnar ti) suðurs og nokkurra sveitaþorpa. Það er vegna þessa útsýnis, sem Bukdah) býr hér Þegar hann er i essinu sínu, lætui hann móðan mása með miklum handahreyfingum. Hann er alls stað- ar heima. Skemmtilegri menn en þau hjón bæði er varla unnt að heim sækja. Eg varð þeirrar ánægju nokkr um sinnum aðnjótandi hinar fáu vik- ur, sem ég dvaldi í Askov. Bukdah) minntist á ýmsa rnenn a Islandi. sem hann þekkir vel og stendur i stöð- ugu bréfasambandi við. Hann hefui komið nokkrum sinnum til fslands, síðast sumarið 1963, er honum var boðið á Skálholtshátíðina. Minnist hann þess með mikilli ánægju. Einn ig ferðaðist hann þá ailmikið um landið, einkum um Suðurland. Bukdahl er maður nokkuð öldur- mannlegur orðinn og sópar að hon um, hvar sem hann fer, með hár, sem hann lætur vaxa óáreitt. Minn- ir ásýnd hans nokkuð á norska skáld- T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 453

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.