Tíminn Sunnudagsblað - 04.09.1966, Blaðsíða 4
Séð yfir höfnina í Miðvogi. í fjarska rís cyjan Koltur.
Greinarhöfundur tók allar myndirnar.
★
Nú hélt ég niður að höfn og fór
um borð í Vesturleiðir og tók mér
far með skipinu til Miðvogs og Vest-
manna. Leiðin lá um Hestfjörð, sem
er nú reyndar sund, en ekki fjörð-
ur. Þarna var Straumey á aðra hönd,
en eyjarnar Hestur og Koltur á hina.
Á Hesti er samnefnt kauptún, en á
Koltri er samnefnt býli.
Stöðugt hamast sjórinn á þessari
litlu eyju, sem segja má, að snúi
baki að hinum aðgangshörðu öldum
Atlantshafsins. Eina desembernótt ár
ið 1952 gerði eitthvert stórkostlegasta
óveður og brim, sem komið hafði í
manna minnum, og gekk sjórinn yfir
björgin. Bjarg, sjö lestir að þynyd,
bifaðist úr stað og annað bjarg, 1500
kg að þyngd, tókst á loft og flaug
gegnum loftið nokkurn spöl. Mikið
af dauðum fiski lá um allt á eynni,
en það var lítil uppbót fyrir allt hið
góða graslendi, sem sjórinn hafði eyði
lagt. Allt þetta gerðist sextíu metr-
um ofar sjávarmáli og sýnir, hve nátt-
úruöflin geta verið Færeyingum háska
leg. En þrátt fyrir allt getur kóngs-
bóndinn á eyjunni, Niclas Niclasen,
einn kunnasti skipasmiður Færey-
inga, leikið sér við að byggja líkan
af höfn með fjölda skipslíkana, sem
eru um og innan við tuttugu sm.
löng. Oft hafa birzt myndir af þess-
ari módelhöfn hans í erlendum blöð-
um.
Ferðin til Miðvogs tók um tvær
klukkustundir. Þar var aðeins tuttugu
mínútna viðdvöl, svo að ég gat lítið
skoðað mig um í plássinu. En út-
sýni var fallegt yfir höfnina með
Koltur í baksýn. Rétt hjá Miðvogi er
þorpið Sandavogur, og mitt á
milli þeirra stendur barnaskólinn,
sem bæði þorpin hafa afnot af. Mér
finnst einhvern veginn, að ekki muni
líða mörg ár, þangað til bæði þorp-
in renni saman í eina byggð.
SÍÐARI HLUTI
Sigurður lögþingsmaður Jo*nsen og kona hans, Sigrið av Skarði.
748
T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ