Tíminn Sunnudagsblað - 11.12.1966, Page 5

Tíminn Sunnudagsblað - 11.12.1966, Page 5
um til glöggvunar, er um ætterni sitt liir'ða: 1) lírlendur, 2) Magnús, á) Öísíi, 4) Sigríður —- fór til Vesturheims, 5) Ktistjana — fór til Vesturheims, 6) Ingileif, 7) Guðbjorg, 8) Guðný, 9) Kristín, 1Ó) Guðríður. Tveim þeim síðastnefndu kynntlst ég. 6lí urðu þessi systkini háöldruð lifðu fram á tírætt þau elztu. Kristín var gift Ásmundi bátsfor- manni 1 Seli í Reykjavík. Af bðrn- um þeirra nefni ég aðeins þau, sem ég hef eitthvað kynnzt: Áslaugu, frú í Hafnar.firði, þekkti ég lítils háttar, en meiri kynni hef ég haft af tvíbura- systrunum, Helgu Johansen og Sigur- björgu Ásmunds, sem báðar hafa ver ið búsettar í Kaupmannahöfn frá unga aldri, en eiga fastar rætur hér heima, ættræknar og þjóðræknar, svo að af ber, og hafa margir fslend- ingar notið þess, og þeir mest og bezt, sem hjálpar hafa þarfnazt. Sá maður, er ég veit fyrstan hafa búið í Neðradlreppi, minna ætt- ingja, (samkvæmt heimildupi Guð- mundar Illugasonar), var Ámi Jóns- son frá Kiðafelli í Kjós. Son átti hann, Gisla, með Þuriði Ólafsdóttur, er var prestsdóttir, og átji til presta og biskupa að telja hið næsta sér og lengra aftur. Voru þar prestar í hverj um ættlið, en ekki fer ég nánar út í ættfærslu Þuríðar. Liggur það utan þess ramma, er ég hef markað efni mínu, nema að því leyti, sem frá- sagnirnar útheimta. Gísli Ámason bjó eftir föður sinn í Neðra-Hreppi. Hann kvæntist reyk vfkskri stúlfcu, Þuríði Teitsdóttur, Sveinssonar vefara' við innréttingar Skúla Magnússonar fógeta. Kona Teits var Guðríður Gunnarsdóttir, Brandssonar, en móðir hennar hét Hildur. Voru þau hjón búsett i Reykjavík. Frá Teiti Sveinssyni segir svo í sögu Reykjavíkur eftir Klemens Jóns- son: ,Hann var norðlenzkur og í miklu áliti fyrir dugnað og fram- takssemi." Teitur byggði sér bæ, þar sem síðar stóð Guðjohnsenshúsið, núm er 6 við Tjarnargötu. „ . . • Teitur og Guðriður áttu fjölda barna og er mikill ættbálkur frá þeim kominn." Yfirgrip af Teitsætt er að finna í fylgiskjali _ við fyrra bindi Sögu Reykjavíkur. f þessum fylgiskjöl- um eru að nokkru raktar tíu reyk- vískar ættir. Ættir þessar eru nú orðnar mjög fjölmennar í Reykjavtk, og dreifðar út um byggðir landsins, og önnur lönd. í sambandi við nöfn, sem festast í ættum má geta þess, að margir eru Teitarnir og Guðríð- arnar út af þeim Teiti og Guðríði Gunnadóttur. Saman koma ættir móðurforeldra minna: Get ég þéss hér af þeirri orsök, að amma min átti þrjár syst ur með nafninu Guðríður. Döu að minnsta kosti tvær þeirra í bernsku, liqld raunar allar, en uþp skyldi Guð- ríðamafninu komið, á hverju sem gekk. Ingveldur lét heita Guðnðar- nafninu, en sú dóttir hennar, sem bar það, dó á góðum aldri. Ingveldur, amma mín, bað dætur sínar að koma ekki upp nafni sinu, því að ekki myhdi lán fylgja. Eln dóttir hennar lét heita nafninu Inga. Stúlkan dó nýfædd. Magnús, móður- bróðir minn, lét heita nafninu Ingvar (Aðalsteinn) í höfuð móður sinni: Drengurinn dó í frumbernsku, en tvíburabróðir hans lifir-enh. Neðra-Hreppshjónin komu upp nafninu Magnús, er svo vel hefur enzt ættinni, að nú eru komnir fimm Magn úsar í beinan karllegg frá Gisla. Móð- ir mín var Magnúsdóttir, Magnússon- ar. Bróðir hennar heitir Magnús Magnússon og eiginmaður hennar og frændi hét Magnús Magnússon og svo kom næsti ættliður og þar næsti með sama nafnið. Heyrt hef ég, að Magnúsarnafnið hafi komið inn í ættina sakir kynna við Magnús Stephensen, konferens- ráð, er bjó á Leirá í Leirársveit, áður «n hann fluttist til Viðeyjar, en þaðan var skammt í land til Reykja- vikur og samgangur milii beimila kon ferensráðsins og Teitsfólksins. Auk þess gat verið vinskapur milli Magn úsar Stephensens og Teitsfólksins, meðan Magnús bjó að Leirá. Einn- ig kynni við Neðra-Hrappsfólkið. Sagt hefur verið, að Þuríður Teitsdóttir hafi dvalizt með Stephensensfjölskvld unni, verið þormikil eftirlætisstúlka og þá trúlega orðið Magnúsarnafnið kært. Annað er hugsanlegt, að Magnús fyrsti í Neðra-Hreppi hafi borið nafn Magnúsar Gíslasonar á Leirá sem var aldavinur föður hans. Gísli í Neðra-Hreppi og Magnús á Leirá, vor hestamenn ágætir, ferðuðust sam- an og höfðu fleyg upp á vasann til að hýrga geðið og verða léttara um kveðskap. Ölvun til skaða hefur varla þurft að óttast hjá slíkum hestavin- um sem þessir bræður voru. Móðurbróðir minn kann margt af ætt sinni að segja, sem fyrr er að vikið, og hefur nefnt mér ýmsa þá ættmenn okkar, sem nafnkunnir hafa orðið sakir menntunar og embættis- frama. „Við eigum marga presta í okkar ætt, líka biskupa og dómara mann eskja,“ sagði Magnús frændi. Meðal annarra presta nefndi hann þá feðga, séra- Hjört í Reytoholti, og son hans, séra Jón á Gilsbakka. Meö al dómara, Guðmund Grímsson í Ameríku, afbragðsmann á alla lund. Ef rakin er ættin um aldir, sést, að GuSríður Magnúsdóttir frá Neðri-Hrepp og maður hennar, Jón Jónsson frá Hjörsey. fyrrum var meirí festa í því en sið- ar,að embættismenn væru óslitið ætt- lið eftir ættlið. Móðir min var ættvís og fróð, enda stálminnug á það, sem hún heyrði Og las af þjóðlegum fróðleik. Hei'nar kynslóð hafði meiri áihuga á því, en nú gerist, að vita deili á sinni ætt og annarra. Hverra manna þessi eða jhinn \ar, var þá algengari spurn- ing en nú. Á timum mikillar efnis- hyggju skipta peningar meira en ætt með góðar erfðir. Oft gáfust móður minni tilefni til að fræða mig, og sjálfsagt systkini mín einnig, um ættingja okkar. Til- efnið gat verið blaðagrein eða frétt- ir í blöðum og útvarpi. Man ég, er hún sagði mér frá skyldleika okkar við Pétur Jónsson óperusöngvara, að ég hugsaði mér hann sem fulltnía hinna söngvnu og söngelsku í ættinni. Sama var að segja, er hún nefndi mér þau af borgfirzku skáld- unum, er mestan orðstír hefðu getið sér. Þegar Kristmann Guðmundsson var að brjóta sér leið til heimsfrægð- ar, rifa sig upp úr sárri fátækt, og umkomuleysi hér heima, og varð vin- sæll rifchöfundur í Noregi og þýddur á fjölda tungumála, sat Halldór á Ás- bjarnarstöðum heima í ættarbyggð sinni og orti við bústöri sín, sern og fjöldi annarra íslenzkra skálda. Mér verður gjarnt til að vitna í ljóð- ið Sveitaskáld eftir Guðmund Böðv- arsson, bónda og skáld á Kirkjubóli á Hvítársíðu, er ég hugsa til þessara manna, strits þeirra og drauma, sem T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 1061

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.