Tíminn Sunnudagsblað - 20.08.1967, Blaðsíða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 20.08.1967, Blaðsíða 10
 ÓTTI Langt úti í auðninni, þar sem alda minninganna rís og fellur, býr vonln hún ætlar að hitta vinkonu sína girndina þær ætla að hlusta á söng næturgalans, sem söng sitt síðasta vers í gær. Hann söng hásri röddu og enginn hlustaði, nema fiðrildið, sem flögrar nú yfir leiði hans, og óttast, óttast, óttast. Baldur Kristjánsson. nfcwfcifcwfcifctfctfctfcifctfcifctfctfcifcifcifctfcifcifctfcmfcnitfcwfcnmfcn gleymdi Júðinn hótunum þess, er mundaði rýtinginn, og gömul augu hans skutu gneistum. Hann rétti út hægri hönd sína og ætlaði að hrópa: „Látið þetta kyrrt liggja!“ En hrópið dó út á vörum hans, hnífsskaftið nam við tærða brjósthúð öld- ungsins, og blóðið spýttist undan kutanum yfir litlu skjóð- una. Hann hné á gólfið, en ræn- ingjarnir réðust að skjóðunni ali ir í senn. Hún geymdi þá dýrasta djásn Júðans. Þeir urðu fyrir sárum vonbrigð- um. Blóði gamlingjans var spillt að erindlausu. í skjóðunni var hvorki silfur né gull, enginn skart gripur né heldur nokkuð annað, sem talið er dýrindi í mannheimi. í skjóðunni var einungis handfylli af mold, mold frá landinu helga, sem lögð skyldi í gröf auðmanns- ins. Þessi luka af mold var hið eina, er Júðinn vildi forða undan ránsmönnum. Hann fórnaði lífi sínu fyrir eina handfylli moldar frá landinu helga. Og sálin tók blóði drifna skjóð- una og knúði dyra á paradís. Hin- ir frómhjörtuðu þáðu skjóðuna að gjöf. Það var fyrsta gjöfin. Önnur gjöfin. „Sálartetur,“ kallaði varðengill- inn, um leið og hann lokaði hlið- um himnaríkis eftir sálinni, „mundu vel, að enn áttu að færa hinum frómhjörtuðu tvær gjaf- ir.“ „Guð mun hjálpa mér,“ svar- aði sálin, og ókvíðin flögraði hún niður aftur. En brátt glataði hún nær allri von um að finna aðra gjöf. Það leið óratími. Hún sá ekkert, sem var fágætt, fagurt og gott, og sál- in var döpur í bragði. „Mannlífinu má iíkja við fljót, sem á upptök sín í drottni. Því lengra sem það líður, þeim mun gruggugra verður það. Hvar get ég nú fundið gjafir að færa hinum frómhjörtuðu?" Og sálin hugsaði sem svo, að vog- arskálarnar rpundu vafaMð vega salt, þótt drottinn legði á þær allt> hið góða og allt hið illa, er sjá má i mannheimi. ) En skyndilega var sálin hrifin úr þessum hugleiðingum. Loítið skalf af lúðraþyt, og sálin leit til jarðar, — það var fyrir langa löngu —, og hún kom auga á smá bæ, ef til vill þýzkan smábæ. Og hún sá ráðhúsið og ráðhústorgið, og á torginu var múgur og marg- menni. Andlit gægðust fram úr hverjum glugga, sumir hötfðu hreiðrað um sig á húsþökunum, og allir fylgdust með því, sem henti á torginu. Hjá ráðhúströppunum stóð græn dúkað borð, og við borðið sátu bæjarráðsmennirnir, skartklædd ir með skinnhúfur, prýddar fjöðr um og dýrum steinum. Fyrir niiðju borðinu sat bæjarstjórinn. Á hlið borðinu stóð Gyðingastúlka, og eigi allfjarri héldu tíu karlmenn ólmum fola, sem fnæsti og froðu- felldi. Bæjarstjórinn reis nú á fæt- ur og kvað upp dóm yfir stúlk- unni. Hann beindi orðum sínum til fólksins á torginu. „Þessi Gyðingur, þessi kven- maður, hefur drýgt svívirði- legan glæp, sem drottinn mun vart geta fyrirgefið, þótt gæddur sé hann mikilli miskunnsemi. Síð- asta helgidag laumaðist þessi stúlka út úr Gyðingahverfinu og ráfaði um bæjarstrætin. Hún horfðí i kringum sig blygð- unarlaus og saurgaði helgi- göngu vora. Hún saurgaði helgimyndirnar, sem vér bár- um með söng og hljóðfæra- slætti um bæjarstrætin. Hún hlýddi á söng vorra saklausu barna hún, þessi Gyðingur. Og hver veit, og hver veit nema djöfullinn sjálf ur hafi brugðið sér í líki Gyðinga stúlku, og hver veit nema djötfull- inn sjálfur standi hér mitt á meðal vor og látist vera dóttir hins við- urstyggilega rabbína. Hvers vegna brá djöfullinn sér í líki fallegrar stúlku? Því að hún er fögur, þessi stúlka, hún er svo fögur, að feg- urð hennar á sér aðeins einn föð- ur, djöfulinn sjálfan, Hvers vegna, spyrjum vér. Djöfullinn vildi án efa svipta sálir vorar þeim guð- dómsanda, sem hrífur oss á helgi- göngu, og djöflinum tókst það, því er verr og rniður. Riddari nokkur af göfugum ættum hrópaði á göng unni: „Sjáið hana, stúlkuna þarna, hvað hún er fögur!“ Og hermenn- irnir, sem skálmuðu fyrir göng- unni, gátu ekki látið stúlkuna lengur afskiptalausa. Þeir lögðu hendftlT á djöfulinn, og’þeir megn- uðu að yfirbuga djöfulinn, af því að þeir voru syndlausir úr helgi- göngunni og djöfullinn gat ekki veitt-þeim viðnám. Og nú dæmi ég djöfulinn, sem stendur hér á torg- inu í líki ungrar Gyðinga- stúlku. Dómurinn hljóðar svo: Á hárinu skal hún bundin við tagl þessa fola, sem ólmast hér á torginu, og síðan dregin líkt og mannsbani eftir strætunum, þar sem hún fór í bág við lögin, og blóðið mun skola hellurnar, þar sem þær saurguðust á göngu henn ar.“ Lýðurinn laust upp fagnaðar- ópi, en bæjarráðsmennirnir þögguðu niður hrópin og spurðu síðan stúlkuna, hvort hún ætti sér 706 TÍMlNN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.