Tíminn Sunnudagsblað - 14.01.1968, Blaðsíða 3
M^Tf.
'v/ - ■ ;■
Stærsta eðlutegund í heiminum á heimkynni sín á
Komódó í Indónesíu. Það var Hollendingurinn Aldegon,
sem varð hennar var fyrstur hvítra manna árið 1910.
En Malajar á þessum slóðum höfðu lengi kunnað skil á
landkrókódíl, er þeir nefndu svo, en Hollendingar héldu
vera þjóðsagnadýr.
Aldegon var landstjórí á Flóres. Hann fór til Komódó með
þjóni sínum á veiðar. Þeir voru staddir í rjóðri i frum-
skóginum, er þeir sáu allt í einu risaeðlu teygja sig upp
úr hávöxnu grasinu og reka út úr sérlanga tunguna.
Landstjórinn vissi varla, hverju hann
átti að trúa. Drekans, sem hann
hafði séð, var hverg getið í dýrafræð
inni. Heimamenn, sem setið höfðu
um þetta óþekkta dýr, lögðu það að
velll, svo að mlssýning var þetta
ekki.
Hollendingurinn keypti eðluna af þeim,
sem höfðu fellt hana. Seinna skaut hann
sjálfur aðra eðlu af sama tagl. Skinnið
sendi hann náttúrufræðisafni I Buiten-
zorg í Batavíu. Forstjóri þess gaf eðlu
þessari vísindanafn.
Trölleðlan í Komódó, sem getur orð-
ið allt að þriggja metra löng, er hræ
dýr, en leggur þá stundum hirti og
villisvin að velli. Fæturnir eru mjög
sterkiegir, og á þeim eru hvassar
klær, sem eðlan beitir þó aðallega
vlð gröft.
Þessu stórvaxna dýri er margt til
lista lagt: Trölleðlan getur hlaupið,
klifrað og synt. Þefvís er hún, en
heyrnin er afarsljó. Nálgist villi-
svín, biður trölleðlan átekta. Ekkert
hreyfist nema klofin tungan.
Halinn er skætt vopn. Þegar bráðin er
komin í færi, slær trölleðlan hana með
halanum. Höggið er svo mikið, að fórn-
ardýrið beinbrotnar venjulega. Síðan
rífur eðlan í sig bráðina. Þá koma hvass
ar klærnar að notum.
Eðluna okkar munar ekki um að
gleypa væna bita. Kokið getur þan-
izt út eins og á slöngu og hálsinn
gengur líkt og smiðjubelgur á með
an hún er að kyngja. Trölleðlan var
alfriðuð 1926 og veiðidýr hennar
r:
T I M I N N - Sl) N NUDAGSBLAí)
35