Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1968, Qupperneq 11
Teikningarnar hér á opn-
unni eru ailar handaverk
barna í Melaskólanum í
Reykjavík. Afi og amma og
framtíðarhúsið voru verkefn-
in, sem þeim voru fengin til
þess að glíma við, en að öðru
leyti var þeim frjálst að velja
sér viðfangsefni að geðþótta
sínum.
Þessar teikningar eru þátt-
ur í miðsvetrarprófinu í skól-
anum.
Það vantaði hvorki áhuga
né natni, þegar við þessi verk
efni var glímt, og oft var nú
búið að reka tunguna út í kinn
ina eða bíta í blýantsendann,
áður en auðnaðist að leggja
síðustu hönd á verkið.
©
Það varðar miklu, að höndin
sé hög og drættirnir fallegir.
En það reynir líka á hug-
kvæmnina, því að án hennar
yrði jafnvel snoturlega teikn-
uð mynd ósköp flatneskjuleg
og lífvana. Og börnin skortir
yfirleitt ekki hugmyndaffug.
Því miður njóta teikningarn
ar sín ekki hér sem skyldi,
því að litirnir, sem eru margir
og lostfagrir, fara forgörðum
hjá okkur.
þeim, húsinu þeirra og fjöllunum þeirra.
Þóra Þorsfeinsdóttir á líklega afa og ömmu uppl í sveit, og ekki eru nú fjöllin
síðri í byggðarlaginu þeirra.
3
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
2^3