Tíminn Sunnudagsblað - 06.10.1968, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 06.10.1968, Blaðsíða 4
Rætt við Ingibjörgu Sveinsdóttur, snyrtisérfræðing: Andlitið, böt okkar og blessun Snyrtistofa Ingibjargar er í kjaliara gistihúss Loftleiða. Hún er þarna að framkvæma hina dægilegu andlitshreinsun, en auk þess veltir hún handsnyrtingu og fótsnyrtingu. Sú elzta, sem komið hefur 1 fótsnyrtingu, var áttatíu og þriggja og líkaði vel. Fyrstu snjóar haustins hafa fallsS. Kvöldin eru orðin dimm og löng. Til að stytta þau er upp hafið hvers kyns félagslíf: leik- sýningar, tónleikar, árshátíðir, matarhoð og kaffikvöld blasa við í langri röð til vors- Það setur karlmenn í lftinn vanda að búast á slík mannamót. Þeir þurfa ekki annað en bursta rykið af dökku jakkafötunum og biðja frúna um hvíta skyrtu. En vér aumar konur! Til að vera vel klæddar og snyrtar þurfum við að vanda til fjölda smáatriða. Ég heid þess vegna, að við verðum að láta karlmenn- ina eina um fræðagrúsk sitt í dag og fara sjálfar í óandlega heimsókn til snyrtisérfræðings. Hennar sérgrein er andlits- hreinsun og andlitsnudd. „Vesalings andlitið“ segir hún, urn leið og hún býr um viðskipta- vin í fegrunarstól, „vesalings and- litið er varnarlaust gegn öllum veðrum. Á veturna getum við íar- ið í kuldastígvél, föðurland, lopa- peysu, belgvettlinga og loðhúfu, en viðkvæm andlitshúðin er eftir sem áður berskjölduð fyrir köld- um kossum Kára. Það er þvi ekki fuirða, þó áð hún þairfmist aðhlynm- ingar. Amdlitshúðin er ekki dauður hlutur eins og púðaborð, hún er lifandi og hefur ærið að starfa. Hún temprar líkamshitann með því að losa líkamanm við vatn og önnur úrgamgsefmi. Auk þess fram leiðir hún og gefur frá sér fitu og sýrur, sijálfri sér til endurnýjumar. Það er auðsætt mál, að húðin get- ur ekki sinmt þessum verkefnum, nema hún sé tandurhrein og allar holur óstiflaðar, en þar sem hún laðar að sér óhreinindi eins og rykisuga, þá þarfnast hún hjálp- ar“. Meðan Ingibjörg talar, ber hún hreinisumarmjólk á andlit dömunm- ar í stólnum. Þurirkar hama af og leggur þvottapoka, umddmm úr volgu vatmi, á amdlitið, þrisvar simmum. Til þess að opma svitahol- Uirmar. En það er ekki nóg. Til að gal- opna þær lætur hún heita, súreín- isþrungna gufu leika um amdlitið góða stund. „Á morgnana er bezt að þvo sér úr vatni. Á kvöldin úr hreinsun- armjólk, gjarma tvisvar, og þurrka af með mjúkum pappír, fríska síð- am upp með mildu andlitsvatni og loks köldu vatni. 772 T I M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.