Tíminn Sunnudagsblað - 24.11.1968, Blaðsíða 19

Tíminn Sunnudagsblað - 24.11.1968, Blaðsíða 19
Vísnaspjall Gamh Ein syndin býðnr annarri heim, segir máltækið. En ég segi: Ein vísan býðnr annarri beim. Nýjasta dæmi: Daginn eftir að þátturinn með vísum Þorsteins birtist, hitti ég þrjá kunningja inni í búð, þar sem stundum er talað um bækur og vísur. Gau'kaði einn þeirra að mé,r þessari vísu, sem hann sór að væri eftir Þorstein Erlingsson, ort til Hannesar Þorsteinsisonar, eftir biaðadeilur þeiirra aiimikiar: Viljirðu fljúgast oftar á, • ættirðu að bæta fötin. Það er engum yndi að sjá á þér bannsett götin. Roskin kunningjakona mín, sem þarna var stödd, tók heldur betur við sér, þegar talað var um rifin föt og hafði yfir þessa vísu, og sagði þetta vera tástagaða, sam- yrta ferskeytlu, en til skáldaleyfis gripið: Komið er gat á kjólinn minn. Kalla ég stórum, stórum, Mður tíminn, iof mér inn, ljú'ktu upp, Þórunn, Þórunn. Þegar upplýstist, að höfundur- inn væri Jón frá Bægisá, fannst okkur alveg sjálfsagt, að honum hefði verið veitt þessi Mtla bón Sá þriðji, sem hafði staðið á- lengdar og glott út í það verra, dró úr pússi sínu blað með vísu, sem hann sagði, að væri ferskeytt, frumsniðhendu- og rímsneidd, síð- frumaðalhent, táskeytt og t.á-, sneidd: Silfurkálfur gengur um gólf 'grínir og horfir í torfið, hálfur álfur heldur um kólf, hörfar að tarf með orfið. Já, þarna hafið þið það: 11 f í ednni vísu. En samúð okkar sner- ist að aumingja hálfa álfinum, sem U----------------—--------—----- 8. þáttur okkur fannst mundi eiga í tvisýn- um leik við tarfinn Hættum svo bannsettum spéskap. Ekki er ofsögum sagt af þvi, að erfitt gat verið að ferðast á ís- landi meðan brýr voru fáar. Þeg- ar heitt var í veðri og leysing til fjalla þurfti oft að liggja lengi við árnar og bíða eftir að úr þeim drægi. En Guðmundur Frímann veit, að það dugði ekki ávallt til: Þér torfært varð margt von- arskarð, hjá vaði á margri svartá beiðstu. Að úr þeim dragi aidrei varð, og ógæfuna í taglhvarf reiðstu. Ekki leizt Tryggva Emilssyni al- veg nógu vel á veðurútlit, þegar þessi staka fæddist: Hljóðnar unn við yztu hvel, en þó kunni að hlána, kembir sunna kólguþel kringum þunnan mána. Um fleiri geisla en þann, sem Tryggvi lýsir í næstu vísum, er víst svipaða sögu að segja — því miður: Skýjaþykkni skyggir á, að skíni sól á hnjúkinn. Þó var áða-n geisM að gá \ gegnum rósadúkinn. En þannig er um þennan yl, þegar hann hlær sem kátast og þykist vera að þrífa til, þá er hann bara að látast. Margur hefuir orðið að sætta sig við enn þá minni auðlegð en þá, em Guðmundur Geirdal talar um: Enginn gafst mér auðurinn utan vonarskíma. Hef um sérhvern málsverð minn mátt við lífið glíma. Ef til vill er það þessi glíma, sem gert hefur Geirdal sikyggnan: Æskuharma fingraför, fjöld af tárarúnum, blasa við mér eins og ör undir sumra brúnum. Ekki treysti ég mér til að gefa Guðmundi Frímann neitt svar við spurningu hans, en kannski þið getið það: Hví vekja oss ávallt angur mest þau æskuglöp, sé horft til baka, sem mundurn vér, ef fengj- um frest, þó fram í dauðann endurtaka? Aftur á móti tek ég undir með Guðmundi Geirdal, já — af öllu hjarta, þegar hann segir: Oft ég hryggur hugsa um það — hætti því að skrifa — hvað ég ber mig öfugt að íþróttinni — að lifa. Þegar þetta er skrifað er ágæt- is tíð og hlýindi til sveita. En þeg- ar þið lesið þetta, gæti þessi vísa átt betur við: Fölnar bali, fjall og grund, fækka salir rósa, haustsins svala mjallarmund málar daíi Ijósa. Þótt eitthvað harðni á dalnum eigum við sarnt ekki eftir að lifa þetta, sem Sigurður Einarsson lýs- ir: Þá var bágt um bjargarráð brotlegum og svöngum. Köld og handstutt kóngsins náð, þótt kallað væri löngum. Ég var að lofa að hafa ekki meiri spéskap í frammi. Þó get ég ekki stUlt mig um að enda svona: Nú er búið að negla pott, nú er fast við eyra, nú er þetta nógu gott. Nú ég kveð ei meira. T f M I N N — SUNNUDAGSBLAF 955

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.