Tíminn Sunnudagsblað - 12.01.1969, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 12.01.1969, Blaðsíða 4
'Hrísamela. MAGNÚS KRISTJÁNSSON: MINNINGAR FRÁ ÁRINU 1902 1902 var ég vinnumaður hjá Kristni bróður minum á Kerhóli í Sölvadal. Kona hans hét Rósa Sveinsdóttir, Jónssonar, sem lengi var á Hrísum. Kona Sveins var Ingibjörg Pálsdótbr frá Helgastöð- um. í þá daga var öldin önnur en mú, og þegar maður fer að bera saman lifnaðarhætti fóiks í þá daga og nú, tel ég víst, að margt af unga fólkinu spyrji, hvernig gat fólkið lifað við slík skilyrði? Engir vegir, engin samkomuhús, enginn sími, engir bílar, fáar verzl anir. Allt purfti að flytja á hest- um, að og frá heimilunum, ekk- ert rafmagn, engin kol, nema lít- ið eitt af steinkoium til smíða, engin jarðynkjuverkfæri, nema orf ið og hrífan, reipin og klyfberinn Allt hey var flutf á hestum, þá var það aðalverkið við heyskapinn að losa grasið af jórðinni og fóru menn oft a fætur klukkan fimm að nóttu til, ef dögg var á jörðu — var það köiluð rekja Klukkan átta á morgnana var húsmóðirin kom- in á fætur, búi:i að hita á katlin- um og fsngu menn sér þá kaffi og flatbrauð eða nræru og slátur, eftir því sem hver vildi Störf konunnr'.i voru ekki eftir sóknarverð. Þá var á mjög fáum bæjum eldavé-ar aðeins hlóðir í eldhúsi, og urðu pær að matreiða allan mat í reyk og sótleka í þess- um torfkoium. Aidrei heyrði ég þær mögla yfir þessum störfum sínum fyrr en eldavélarnar fóru að ryðja sér til rúms Fyrsta elda- vélin, sem flutt var inn í hrepp- inn, kom i Möðruvelli Var það stór eldavél. Einhvern tíma heyrði ég, að hún hefði verið keypt úr skipi, sem strandaði við Eyjafjörð. Um aldamótin fóru kaupmenn að hafa eldavélar til sölu. Eftir því sem mig minnir keyptu Hleiðar- garðsbændur tvær eldavélar, og var mikið taiað um þessar fram- farir í sveitinni. Þá voru kerrur að ryðja sér til rúms Kom þá stund- um fyrir, að ágreiningur varð á millum hjóna — bóndinn vildi út- vega sér Kerru og aktygi, en kon- an vildi e davélina á undan kerr- unni. Mun því hafa valdið veg- leysurnar. Fyrstu þrjár kerrurnar sem flutfar voru mn 1 hreppinn, voru notaðar kerrur. Þeir, sem keyptu þessar kerrur. voru þeir Siggeir Sigurpálsson á Stekkjar- flötum, Árni Stefánsson í Litladal og Daniel Sigfússon á Núpufelli. Á þessum 66 árum, sem liðin eru síðan þetta var hefur margt breytzt. Nú kemar maður tæplega inn á ne:tt heimili. að húsmóðir- m hafi ekki yfir að ráða öllum mögulegum heimilistækjum. Fyrst og fremst eru það ný steinhús, stofur fullar af nýtízku húsgögn- um, eldhúsáhöld öll með sama sniði, útihús steinsteypt. Hlöð- ur eru víða útbúnar þannig, með súgþurrkunartækjum að heyinu er blásið mn með sömu tækjum, öll hugsanleg jarðyrkjuverkfæri, dráttarvél, snúningsvél, uppmokst- ursvél, rakstrarvél, mjaltavélar, og það síðasta, bíll hér um um bil á hverju heimili Þá væri gaman. að gera svolít- inn samanburð á skemmtanalífi 12 I I li I N (i - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.