Tíminn Sunnudagsblað - 19.01.1969, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 19.01.1969, Blaðsíða 4
Ryúnósúke Akatagava: HOLD OG MOLD Teuppsfceran var að hefjast og ósúimí vair döpur, því að hún hafði misst son sinn, INítarí, er legið hafði nálega ósjálfbjarga í átta ár. Þessi gamla ekkja, sem var svo grandvör, að nágrannar hennar isögðu, að sál hennar myndi endur- tfoeðast til dýrlegs Mfs á landi sæl- unnar eftir daúða hennar, kenndi þó ekki sorgar einnar við sonar- missinn. Þegar 'hún brenndi reyk- elsið oig bað 'þess, að sál hans, er nú thafði bústað í kistunni, mætti njóta ljúfrar hváldar, var henni innan brjósts líkt og henni hefði toks auðnazt að komast upp brún ifjahisins. Eftir útför Nítarís kom það fyrst tdi álita, hvað yrði um konu hans, ótamí, og kornungan son hennar. Búskapurinn hafði mest hvílt á herðum þessarar ungu konu, því að máður hennar gat ekki stigið í Ifiæturna. Færi hún brott, lenti það ekki aðeins á Ósúmí að fóstra Mtla drenginn, heldur stóð hún þá einn ig uppi ráðalaus með jarðarskik- ann. Osúmi var það efst í huga að leita að mannsefni handa ekkjunni, tengdadóttur sinni, þegar biðdag- arnir fjörutáu og níu væru liðnir og sál manns hennar farin burt, isvo að hún gæti notið verka henn- lar eins og hún hafði gert fram að þessu. Hún gat ekki betur séð en Jókikki, frændi hins dána sonar hennar, væri ungu ekkjunni hent- ugt manmsefni. „Þú ert kannski í þann veginn að yfirgefa okkur, mig og direng- inn?“ sagði Ósúmi milli vonar og ótta og frekar með bæn en ásök- un í röddinni, þegar hún sá, að Ótamá var farin áð þrífa herbergi sitt að morgmi áttunda dagsins eft- ir dauða mannsins. „Það er yfiir- sjón mán að hafa ekíki orðað það fyrr, hvað um þig yrði“. ósúmí hafði verið með sonarson sinn úti á skörinni bak við húsið, og hún hafði fengið honurn blómg- aða grein af kirsuberjatré, er hún hafði fundið á ieikvelMnum við sikólann, Ótamí brosti við, en leit ekki upp. „Hváð áttu við?“ spurði hún. Ósúmá létti stórlega. „Mér datt það svona í hug. Þú ferð auðvitað ekki frá okkur“. Ósúmi gat ekki annað en stag- azt á þessu, mjóum, biðjandi rómi. Og hún klökknaði svo, að tár fyUtu augu hennar og hrundi nið- ur kinnarnar. „Mér væri ekkert kærara en vera hér kyrr, ef þú vilt hafa mig“. Ótami vöknaði láka um augu, áður en hún vissi af, og í fátinu tók hún litla barnið, Háiró, og setti það á hné sér. „Ég hef eignazt þennan dreng, og hvers vegna ætti ég svo að vilja fara eitthvað annað?“ sagði hún. Það var engu Mkara en Híró litM væri hálfifeiminn. Hann ein- bMndi á blómgaða kirsuviðar- greinina, sem lá á gamalli sessu á gólfinu. Ótamí vann engu minna en hún hafði gert á meðan Nátaró liíði. En það gekk ekki jafngreitt að gifta hana aftur og Ósúmí hafði búizt við. Hún sat sig auðvitað aldrei úr færi að glæða löngun hennar til giftingar og ámálga við hana að festa sér pilt. En Ótamí fór ævinlega undan í flæmingi. „Kannski að ári, ef hamingjan lof- ar“, sagði hún. Og það var ekki í það að ráða, hvort hún sagði þetta í gamni eða alvöru. Ósúmí varð að beygja sig fyrir vi'lja tengdadóttur sinnar, og öilu var skotið á frest til næstu áramóta. Þó bar hún kvíð boga fyrir því, hvernig þetta sei-n- læti mœltist fyrir meðal nágrann- anna. Nýtt ár gekk í garð, og Ótamí virtist ekki hugsa um neitt annáð en vinnuna á akrinum. Gamla kon- an bað og ámálgaði og lagði fast- ar og oftar að tengdadóttur sinni að gifta sig. Meðfram stafaði þetta af þvá, hve mikill stuggur henni stóð af hnotabiti ættingja sinna og álasi annars fólks. „Þú veizt þó bezt sjálf, að þú ert ung og heilbrigð og getur ekki verið karlmanns'laus til eiláfð- arnóns", sagði hún. „Ég veit ekki, hvernig það blessast“. „Haimingjan góða“, svaraði ósúmá. „Get ég ekki verið karl- mannslaus? Ætli það tæki betra við? Tækir þú ókunnugan mann á beimili, færi hann undir eins að siða Híró, þú yrðir sjálf að lúta vilja hans og ég að þjóna honum og stjana endalaust við hann“. „Það er nú einmitt af því, að ég er að tala um þetta. Jókikki væri hentugastur. Nú heyd ég, að hann sé orðinn alveg frábitinn fjárhættu spilinu. Taktu hann!“. „Já, hann er náttúrlega skyidur manninum minum sáluga. En raun ar þekki ég hann hreint ekki neitt“, svaraði unga konan. „Þetta endar með því, að þú situr af þér tækifærin ár eftir ár“, sagði Ósúmi. „Ég læt mér það lynda. Ég geri það fyrir elsku drenginn minn. Leg'gi ég þetta á mig, fær hann jörðina ósikipta“, sagði Ótamí huigsi. „Jæja“, sagði Ósúmá og lœkkaði röddina eins Oig hún var vön, þeg- ar þær ræddu þessi mál. „Jæja. þú mátt samt vita, hvað fólk skraf- ar. Ég bið þig þess að minnsta kosti lengstra orða, Ótamí, að segja öðr- um nákvæmlega, hverju þú hefur svarað mér“. Það var æðioft, að þeim fór á milii eitthvað Mkt þessu. En Ótamí varð þeim mun einbeittari sem Ó- súmi sótti fastar sitt mál. En satt var það, að vinnudagurinn varð langur í þessu karlmannsleysi, og mörg voru handtökin við að setja kartöflurnar og þreskja byggið. Á sumrin tafðist hún við kýrnar, og hún varð að standa við slátt, hvern ig sem rigndi. En við allt þetta erfiði festist með henni sú ákvörð un að leyfa ekki, að ókunnugur karlmaður væri tekinn á heimilið. Loks gafst Ósúrná upp á því að gifta hana. í rauninni var það ósig- ur, sem henni var ekiki að öllu leyti ógeðfelldur. Ótamí hélt áfram að sjá heimil- inu farborða með höndum sínum. Engum gat blandazt hugur um, að hún lagði þetta ai'lt á sig vegna drengsins hans Hírós litla. En hún reis undir þessu, því að hún hún hafði þegið mikla þrautseigju í vöggugjöf, erfða frá kyni til kyns. Hún var komin af snauðum leigu- Mðum, sem borizt höfðu á þessar slóðir ofan úr fjallabyggðum, þar sem allt var miklu harðsóttara. „Ótamí er miklu sterkari en mann skyldi gruna“, sagði gömul grann- kona stundum við Ósúmí, þegar þær hittust á bæjairhlaðinu. „Um 36 T I M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.