Tíminn Sunnudagsblað - 19.01.1969, Blaðsíða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 19.01.1969, Blaðsíða 6
mórberjatré og ræktaði silkiorma, yrði hagnaðurinn hundrað og fimmtíu dalir á ári, ef markaður- inn brygðist efcki. En þó að þeim veitti ekki af skildingunum, hraus Ósúmí hugur við því, ef nú ætti að leggja á hana meiri vinnu. Silfci- ormarækt var tímafrek, og hún hafði hvorki þrek né þol til þess að leggja þair sitt að mörkum. Loks gat hún ekki á sér setið leng- ur og fór að malda í móinn. „Það er efcki af því, að ég vilji Ihlífa mér, Ótamí“, sagði hún. „En það er nú enginn karlamaður á þessu heimili, nema rellandi dreng urinn, sem þarf að vaka yfir. Ég rís varla undir því, sem á mér hvílir. Mér finnst þetta hrein fjar- stæða. Hvernig ætli ég gæti hugs- að um silkiorma? Leggðu það efcki á mig — þú verZ&c þó að gæta að því, hvaða garmur ég er orðin“. Ótamí gat ekki fengið af sér að fara sínu fram, þegar hún sá, hve raunamædd tengdamóðir hennar varð. Hún hætti við silkiormarækt ina, en viidi ekki láta af þvi að gróðursetja mórberjatré við skurð inn. „Það bitnar ekki á þér. Hór fcemur enginn á akur nema ég“, sagði hún einbeittlega og renndi um leið augunum til tengdamóður sinnar. Þetta varð til þess, að Ósúmi fór ó ný að hugsa um að fá einhverja fyrirvinnu á heimilið. Upphaflega hafði það verið þyngst á metunum, að hún kveið bágri afkomu og mis- jöfnum dómum fólks, sem kunni því illa, að tvær konur hokruðu fcarlmannslausar á jarðarskika. Nú gefck henni það mest til að losna við heimilisverkin, sem orðin voru orðin henni um megn. Að þessu sinni fannst henni því enn meira við liggja, að Ótamí giftist sem fyrst. Ósúmí herti upp hugann um það hi'l, er mandaríntré voru blómguð. Þetta var að kvöldlagi, og Ósúmi sat með sauma sína við olíulamp- ann. Hún rafc undir sig höfuðið, svo að hún gæti litið til tengda- dóttur sinnar yfir gleraugun, sem hún notaði við saumasfcapinn á kvöldin. „Ertu nú farin að tala um þessa giftingu aftur“ sagði Ótamí, sem sat með krosslagða fætur á gól'finu og tuggði saltaðar baunir. „Ég er efcki í neinum giftingarhiug“. Áður hefði þetta sennilega nægt til þess, að Ósúmí felidi talið. „Þú ættir þó ekki að taka svo þvert fyrir það nú“, sagði gamla konan, sem hafði einsett sér að reyna til þrautar að tala um fytrk Ótamí þetta kvöld. „Á morgun á að jarða Míjashíta, og það kemur á okkur að taka honum gröf- ina. Það er bágt að hafa ekki karl- mann á að skipa, þegar þannig stendur á“. „Settu það efcki fyrir þig. Ætli ég geti ekki mokað upp úr einni grö'f?“ „Kemur efcki til mála. Þú ert kvenmaður — það væri óheyrt“. Ósúmí ætlaði að reka upp hlát- ur, en þegar henni varð litið fram- an í Ótamí, ieizt henni efcfci á svip- inn á henni. „Þú vilt fara að setjast í heig- an stein, góða mín“, sagði Ótamí og spennti greipar um knén á sér, vitandi það, að hér var komið við kviku. „O-nei, Ótamí — því ætli ég vilji það. . .“ ðsúmí hafði verið slegin út af laginu, og hún reif af sér gleraug- un án þess að vita, hvers vegna hún gerði það. „Þú manst kannski, hvað þú sagðir, þegar fáðir Hírós dó?“ hélt Ótamí áfram. „Þú sagðir, að það væri misgerð við forfeðurna, ef jörðinni yrði skipt“. „Nú — jæja. Ég kann að hafa tekið svo til orða. En við verðum áð horfast í augu við það, sem okfcur ber að höndum. Enginn kemst hjá því“. Enn reyndi Ósúmí að telja um fyrir Ótamá. En rök hennar voru veil og hikandi, og hún fann það sjálf. Hún gat ekfci ymprað á því, sem henni var þó ríkast í huga: Löngun sinni til þess að eiga kyrr- látari daga en henni hafði auðnazt fram að þessu. Ótamí, sem nú hafði komizt að raun um, hvað klukkan sló, stakk upp í sig meiri baunum. „Svona getur þú tálað, sem sjálf sagt deyrð á undan mér“, sagði hún, tannhvöss að eðlisfari. „Ég stend í þeim sporum, að ég get ekki hlaupizt frá ábyrgðinni. Ég hef ekki hafnað giftingu af tómu stærilæti. Ég finn það oft á kvöld- in, þegar ég get ekki sofnað fyrir þreytuverkjum í sfcrokknum, að þessi þrái er mér dýr. Ég held mig samt við þetta vegna Hírós og ofck- ar allra“. Ósúmí leit agndofa á Ótamí. Allt 1 einu rann það upp fyrir henni, hverju hún stóð andspænis: Milli þeirra varð efcki friður saminn fyrr en hún lokaði gömlu augun- um sínum í síðasta sinn. Þegar tengdadóttir hennar þagnaði, lét hún aftur á sig gleraugun. „En Ótamí“, sagði hún svo til þess að sló botninn 1 þetta, lífct og hún væri að tala við jálfa sig. „Við sjáum ekki alltaf fyrir, hvað lífið ber í skauti sínu. Hugsaðu um það. Meira ætla ég ekki að tala um þetta“. Tuttugu mínútum síðar gekk hópur unglinga úr þorpinu fram hjá húsinu, syngjandi hánri raustu: Karlmannslaus er ekkjan með orf og beittan ljá á enginu í skóginum og hamast við að s'lá. Þegar söngurinn dó út í fjarska, leit Ósúmí aftur til tengdadóttur sinnar yfir gleraugun. Ótamí, sem var hinu megin við lampann, teygði frá sér fætuma og tuggði baunir í ákafa. „Nú fer ég að hátta“ tautaði hún. „Ég verð að fara snemma á fætur í fyrramálið11. Að svo mæltu þreif hún hand- fylli sína af baunum og reis upp. Hún var þreytuleg að sjá, þarna við eldstóna. ósúmd bar ok sitt þögul næstu þrjú eða fjögur árin. Hlutskipti hennar var viðldkt ævi gamals hests, sem beitt er fyrir æki með öðrum mik'lu yngri. Ótamí hlífði sér ekki við erfiðinu fremur en fyrri daginn, iðin sem bý á akrin- um. Ókunnugir urðu ekki annars varir en Ósúmí sinnti heimilisveirk unum með sömu ánægju og áður. í rauninni lifði hún í sífedldum beyg við ósýnilega svipu, sem yfir henni vofði, og það bar oft við, að Ótamí, dugnaðarforkurinn, setti ofan í við hana eða atyrti hana, þótt með óbeinum orðum væri. Stundum láðist henni að hita baðvatn, og stundum gleymdi hún að láta út kýrnar eða snúa hrds grjónunum, er breidd höfðu ver- ið til þerris. En hún beygði sig und ir okið og svaraði aldrei fyrir sig. í fyrsta lagi hafði lund hennar ver ið tamin til undirgefni, og í öðru lagi vildi hún allt á sig leggja vegna sonarsonar sdns, Hírós, sem var miklu hæodari að henni en móður sinni. Það var raunar ekkert kynlegt, 38 T t H I N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.