Tíminn Sunnudagsblað - 28.09.1969, Side 3

Tíminn Sunnudagsblað - 28.09.1969, Side 3
VBBURNkTr- Á árunum upp úr 1930 var minkur fluttur tll NorSur- landa frá Bandarikjunum. Ekki var þess langt að bíSa, að hann slyppi úr búrum og girðingum. Hann er syndur ' ur sem selur og grimmur sem vesla, og hefur orðið skaðvaldur I hinum nýju heimkynnum. Það þekkja ís- lendingar. Ógurlegur fjöldi villiminka flæddi yfir Noreg og SviþjóS, þegar norskir loðdýraeigendur slepptu dýrum sínum þús- und saman á styrjaldarárunum, svo að þau lentu ekki I höndum Þjóðverja. Fyrir voru í Svíþjjóð minkar, sem sloppið höfðu úr haldi þar í landi. Hárbeitfar tennur minksins hlífa engu, sem þær ná taki á. Minkur, sem hefur verið handsamaður, á auð- velt með að læsa tönnunum gegn um þykka hanzka. Minkar eru fljótir að eyða fiski, þar sem þeir setjast að. Þeir kafa eftir laxi, læsa klóm í bakið á hon- um og leitast við að rífa úr honum tálknin. Sleppi laxinn í fyrstu atrennu, eltir minkurinn hann til botns og banar honum þar. Minkur getur ver- ið fimm mínútur í kafi án þess að anda. Minkurinn myrðir meira en hann étur. Urriði og bleikja er honum auðveld bráð, sem litla mótspyrnu veitir. Minkahjón með unga sína geta eytt urriðastofni í nánd við sig á einu sumri. Fuglunum er líka mikill háski bú- inn. Ungar fá engum vörnum við komið, og fullorðnir fuglar eru í hættu. Að öndum og öðrum sund- fuglum ráðast minkarnir neðan frá, oft bæði hjónin i einu. IIIII ■ UnfiiHHI Sums staðar á Norðurlöndum er afarverðmæt krabbaveiði. Einnig þar gera minkarnir hinn mesta usla. I Svíþjóð einni eru nú felldir tiu þúsund viliintlnkar á ári, og sér þó ekki högq á >vatni. TfMINN — SUNNUDAGSBtAB 747

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.